Dagblaðið - 06.04.1978, Side 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 1978.
Vélin sem var mjnu heillei’ fvrir mislukkaða æfinuu slökkviliAsins var rústin ein á eftir. DB-mynd: R.Th. Sír.
Flugmaður um mislukkaða brunaæfingu á Reykjavíkurflugvelli:
Slðkkviliðið kom upp
um vanmátt
Flugmaður hringdi:
Það hefur lengi verið skoðun og
reyndar vissa okkar flugmanna að
slökkviliðið á Reykjavikurflugvelli sé
óhæft til meiriháttar slökkvistarfa. Nú
vil ég strax taka fram að ég er með
þessu ekki að gagnrýna starfsmenn
þess sem slika.
Þessu viðkvæma máli hefur þvi
miður verið alltof lítið hreyft og
gjarnan hefur umræða um það endað
með lokaorðum einhvers embættis-
manns um málið sem gagnrýnislaust
fær að kæfa málið með vafasömum
orðalengingum.
Nú verður það hins' vegar ekki gert
lengur, getuleysi liðsins er nefnilega
orðið borðleggjandi. Fyrir skömmu
komu liðsmenn talsverðu af eldsneyti
fvrir i gamalli stórri flugvél nálægt
flugvellinum.
Var tilgangurinn að kveikja svo í og
æfa sig við að slökkva. Þegar elds-
neytinu hafði verið komið fyrir stóð
hins vegar ekki til að æfingin hæfist
sinn
strax. Var flugvélin yfirgefin meðelds-
neytinu.
Einhverjir pörupiltar komu þar að
og kveiktu í öllu saman áður en
slökkviliðið hafði komið sér vendilega
fyrirumhverfis vélina.
Hvað kom þá á daginn? Af því að
eldurinn kviknaði slökkviliðinu að
óvörum brann vélin til kaldra kola. En
hvenær hefur slökkviliðið fyrirvara á
að eldur muni koma upp í flugvél? Það
er því miður sjaldnast.
Þetta alvarlega atvik leiðir þá
staðreynd i Ijós að þetta lið getur alls
ekki talizt lullnægjandi til að þjóna
mesta umferðarflugvelli alls innan-
landsflugs okkar. Það þýðir ekkert
yfirklór yfir þá staðreynd.
Viðkomandi embættismenn ættu
frekar nú þegar að taka sig til og fara
að vinna raunhæft að endurbótum
þessa lífshagsmunamáls.
Hríngið
f síma
27022
kl. 13-15
eða
skrifið
Gleymum
ekki
dýfingun-
um
íþróttaunnandi skrjfar:
Kæru DB-vinir.
Dýfingar eru einn skemmtilegasti
þáttur í sundinu og hefur Sundhöllin
frá opnun hennar haft þennan útbún-
að oft i góðu standi — enda er lága
brettið vel fjaðurmagnað fyrir full-
orðið fólk og mikið notað af eldri
flokkum. — En ungbörnunum langt
innan við fermingu má ekki gleyma
því þau vilja spreyta sig á erfiðum
verkefnum og er háa brettið vel við
þeirra hæfi og gerir þau glöð að mega
gera heldur betur, að þeim finnst,
heldur en sá fullorðni sem spreytir sig
á lága brettinu og hefur unun af.
Nú er háa brettið I Sundhöllinni
sprungið og ekki hægt að nota það. Vil
ég því biðja ykkur að koma þessum
linum þannig vel á framfæri að brettið
verði endurnýjað sem fyrst og þar með
stuðlað að dirfsku hinna yngri. Og ég
vil segja um slysahættu — þó að ein-
hver kunni að leita að lús í þvi sam-
bandi — þá er hún hin mesta fjar-
stæða og slysin verða með öðrum
hætti og þannig að unglingar fá ekki
að spreyta sig á erfiðum verkefnum og
þá er líkaminn aldrei og hugurinn
þjálfaður sem skyldi til að varast hætt-
urnar. — Baðvörður tók vel í að reyna
að kippa þessu heillandi bretti fyrir
unglinga í lag og sagðist ætla að reyna
að leggja áherzlu á að fá það sem fyrst.
LOGREGLAN
REIÐIST
RÉTTUM
Undrandi vegfarandi hringdi:
Ég vildi biðja ykkur að koma smáá-
bendingu á framfæri við lögregluna.
Fyrir nokkru lenti ég i þvi að vera
tekinn fyrir of hraðan akstur. Ég nam
staðar eins og mér bar og er ég opnaði
rúðuna til að tala við lögregluþjóninn
spurði hann mig hvort ég væri að flýta
mér. Kvað ég já við, enda stafaði brot
mitt af þvi. Þá brá svo undarlega við
að lögregluþjónn fyitist við og virtist
taka þessu sem útúrsnúningi. Lög-
regluþjónar, ég bið ykkur að sýna
kurteisi og nota almennar umgengnis-
venjur. Með þvi einu tekst ykkur að
brjóta niður þann múr tortryggni sem
þið sjálfir hafið reist milli almennings
og ykkar með framkomu ykkar.
Raddir
lesenda
KK/MM/ £/? ÍRÓAsl/ASO, V
//Æ<CT> &Ú Æ77/<^ *)■£> J OG Á./TS9 Æ9 t/ÆpASAS / ' v'-