Dagblaðið - 06.04.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. APRtL 1978.
---------------- _
7
\
Erlendar
fréttir
Barre lagði f ram ráðherralista sinn í gæn
UTLAR BREYTINGAR Á
FRðNSKU STJÓRNINNI
REUTER
Tætti
Van Gogh
mynd
með hnífi
Fræg og mjög verðmæt mynd eftir
hollenzka málarann Vinœnt Van Gogh
var stórskemmd er maður réðst að henni
með hnífi og risti sitt á hvað. Verkið
hékk uppi í Borgarlistasafninu í Amster-
dam i Hollandi og er jafnvel talið svo
skemmt að ekki verði auðið að lagfæra
það sómasamlega.
Tilræðismaðurinn sem sagður er þrjá-
tíu og eins árs var handtekinn á staðnum
en sleppt skömmu síðar. Að sögn lög-
reglunnar verður hann ákærður fyrir að
skemma eigur annarra.
Málverkið sem nefnt er La Bercause
var málað af Van Gogh árið 1889 eða
aðeins einu ári fyrir dauða listamanns-
ins.
V
— Simone Veil þriðji valdamesti ráðherrann
Hin nýja franska stjórn undir stjórn
Raymond Barre mun koma saman í
fyrsta sinn í dag. Frakklandsforseti
Valery Giscard d’Estaing vonar að
stjórn þessari takist að binda enda á
hinar hörðu deilur vinstri og hægri
manna í landinu.
Barre lagði fram ráðherralista sinn I
gær og gerði færri breytingar á stjórn-
inni en búizt hafði verið við. Stjórnin
fékk hálfvolgar kveðjur i blöðum
sósíalista og kommúnista. Blað sósía-
lista, Le Matin, sagði að ráðherralist
inn kæmi ekki á óvart og L’humanite,
blað kommúnista sagði að raunin væri
sú að engar breytingar hefðu orðið á
stjórn Frakklands.
Fyrir hálfum mánuði, eftir að ljóst
var að mið- og hægri flokkar í frönsk-
um stjórnmálum höfðu haldið völd-
um, sagði Valery Giscard d’Estaing
forseti að hann óskaði eftir stjórn á
breiðari grundvelli. Hann óskaði eftir
auknu samstarfi á milli stjórnar og
stjórnarandstöðu og hélt fjölda funda
með leiðtogum vinstri flokkanna áður
en hann tilnefndi Barre sem forsætis-
ráðherra nýrrar stjórnar.
Meðal þeirra sem héldu ráðherra-
embættum sínum var Simone Veil
heilbrigðisráðherra, sem var talin
vinsælasti ráðherra fráfarandi stjórn
ar. Hún er enda talinn þriðji
valdamesti ráðherra hinnar nýju
stjórnar á eftir Barre forsætisráðherra
og Alain Peyrefitte dómsmálaráð-
herra.
Louis de Guiringaud utanrikisráð-
herra, Christian Bonnet innanrikisráð-
herra og Yvon Bourges varnarmála-
ráðherra voru allir endurskipaðir.
Barre sem sjálfur var fjármálaráð-
herra I fyrri stjórn skipti þvi embætti
nú í tvö, efnahags- og fjárlagaráðu-
neyti. En þótt hann skipi þessi ráð-
herraembætti ekki sjálfur tilkynnti
hann að hann héldi áfram að vinna
sérstaklega að efnahags og fjármálum.
Raymond Barre forsætisráðherra á fundi með Frakklandsforseta Valery Giscard D’Estaing. Barre hefur verið forsætisrao-
herra frá því f ágúst 1976.
Cyrus Vance utanrfkisráðherra hyggst ekki beita sér fyrir refsiaðgerðum gegn ísrael
þótt þeir haS brotið vopnasamkomulagið við Bandaríkin er þeir réðust inn i Suður-
Lfbanon í síðasta mánuði.
VOPNASAMKOMULAG
BROTIÐ VIÐINN-
RÁSINA í LÍBANON
Likur benda til að Ísraelsmenn hafi
brotið samkomulag sitt við Bandarikin
um notkun vopna sinna þegar þeir
réðust inn i Suður-Líbanon i siðasta
mánuði. Þetta kom fram í ræðu Cyrus
Vance utanrikisráðherra í gær en sam-
komulagið sem hann ræddi um var gert
árið 1952 og kvað svo á, að ísraelsmenn
mættu aðeins nota vopn þau sem þeir
fengju frá Bandaríkjunum sér til varnar
en alls ekki í árásarskyni.
Sagði ráðherrann að ef í ljós kæmi að
ísrael hefði brotið samkomulagið gæti
það kostað vopnasölubann. Hann sagði
einnig frá því að líkur bentu til að ísra-
elsmenn hefðu látið vopn af hendi til
kristinna Líbanonmanna en þeir hafa
stutt þá meira og minna í borgarastyrj-
öldinni sem þar hefur staðið undanfarin
ár.
Vance sagði að góður vilji ísraels-
manna til að semja um vopnahlé i
Líbanonbardögunum og hverfa þaðan á
brott með herlið sitt mundi að líkindum
valda þvi að hann mundi ekki leggja til
við Carter forseta að gripið yrði til refsi-
aðgerða gegn Ísrael.
Ungur
Kínverji leitar
læknis sem
geturhjálpað
honum
að deyja
Tuttugu og fjögurra ára gamall Kín
verji í Hong Kong, sem hefur verið lam-
aður eftir slys er hann varð fyrir í sundi
fyrir átta árum, leitar nú læknis er vill
hjálpa honum til þess að deyja.
Ungi maðurinn, sem heitir Lam Wai-
Hung, hefur verið bundinn við hjólastól
frá því að hann lenti í slysinu. Hann
hafði samband við yfirvöld um síðustu
helgi og bar fram ósk sina. Siðan þá hafa
félagsmálayfirvöld boðið honum aðstoð
sína og fjárhagslegan stuðning, þannig
að lífið verði honum ekki eins þungbært.
En Lam Wai-hung tjáði fréttamönn-
um í Hong Kong að hann vildi ekki
hjálp yfirvalda. „Ég vil ekki að neinn
hjálpi mér,” sagði hann. „Ekkert getur
hjálpað mér nema dauðinn.”
Húsgögn fyrír fólk á öllum aldrí
Verd
mjög
hagstætt
ncjnjaviiiui m.
Brautarholti 2 — Símar 11940 -12691