Dagblaðið - 08.04.1978, Page 1
4. ÁRG.— LAIJGARDAGUR 8. APRÍL 1978 - 73. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI27022.
Fundur ríkisstjórnar og vinnuveitenda í gaer.
HENDUR í SKAUTI
„Það var nú litið rætt um framúr-
stefnuna mina,” sagði Davtð Scheving
Thorsteinsson formaður félags iðnrek-
enda þegar hann gekk út að loknum
fundi ríkisstjórnarinnar og atvinnu-
rekenda í gær.
Ráðherrarnir gáfu á fundinum
engin vilyrði fyrir neins konar aðgerð-
um til að auðvetda atvinnuvegunum
að bæta kjör verkafólks. Þá hafði rikis-
stjórnin engan boðskap að flytja um
annars konar ivilnanir. Helzt virtust
menn ætla að sitja með hendur í
skauti og sjá hver framvindan yrði.
Á fundinum, sem stóð í klukku-
stund, var „skipzt á skoðunum” um
fyrirsjáanlegt útskipunarverkfall. Hátt
á annan tug verkalýðsfélaga hefur
boðað slikt verkfall frá 10. til 15. april
að telja. Félög á Vestfjörðum og
Reyðarfirði verða ekki með.
- HH
Vi
S-27022
VERÐUR
HANN
ÞÍN EIGN?
Svona litur bíllinn út sem einn af
áskrifendum Dagblaðsins hreppir á
laugardaginn kemur en þá mun
áskriftatölvan draga nafn eins áskrif-
anda úr „pottinum”. Hrein flóðalda
áskrifta hefur dunið yfir siðustu
dagana og um helgina má búast við að
hún nái hámarki sínu.
Þeir sem gerast áskrifendur næstu
dagana fá tækifæri til að vera með i
áskrifendaleiknum okkar. Simanúmer
blaðsins. er 27022 og þar er hægt að
koma á framfæri beiðni um áskrift að
blaðinu.
Trúlega verður leikurinn til þess að
margir láta nú verða af þvi að gerast
áskrifendur. Vitað er að fjölmargir
hafa hugleitt áskrift I stað þess að
kaupa blaðið i lausasölu. Hér er sem sé
tækifærið til að fá blaðið heimsent, —
og möguleiki á að eignast bílinn sem
svo fjöldamargir láta sig dreyma um,
rennilegan og kraftmikinn amerískan
fjölskyldubíl.
Siminn okkar er sem fyrr segir
27022. JBP
Hverá að borga hallann
af Kröf luvirkjun?
— sjá kjallaragrein Magnúsar Kjartanssonar
á bls. 10 og 11
An lcelander frá Danmörku
— norræn samvinna í verki? — bls. 6
Nýjarogfrjálsari reglur
um veitingahús - sjá bis.s
Akureyrsk ungmennií höfuðborginni:
Tll C/lMá — sagði Reykjavík-
I IL OUIflM urlögreglan— bls.7
Kuldaleg
helgi
framundan
„Hann er að ganga I norðanátt og
kólna, ætli það verði ekki svo fram
yfir helgi,” sagði Guðmundur Haf-
steinsson veðurfræðingur er DB
spurði hann um helgarveðrið.
„Það verður sennilega hvasst á
laugardag og éljagangur fyrir norðan
og um vestanvert landið. Þá má
aftur á móti búast við léttskýjuðu
veðri á Austur- og Suðausturlandi.
Ég geri mér vonir um að það
dragi eitthvað úr norðanáttinni
vestanlands og fari að létta til. Á
sunnudag má gera ráð fyrir björtu og
fjllegu veðri sunnanlands en það
verður vafalaust kuldalegt," sagði
veðurfræðingurinn.
Það viörar þvi varla fyrir garðeig-
endur að gera nein meiriháttar garð-
yrkjustörf. En vel má taka sér eitt-
hvað nytsamlegt fyrir hendur utan-
húss, ef menn eru vel klæddir. A.Bj.