Dagblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. APRlL 1978. 5 Reglur um rekstur veitingahúsa og næturþjónustu í Reykjavík verði endurskoðaðar „Ég tel að breyta þurfi reglum og gera alla framkvæmd frjálsari í sam- bandi við veitingastaði og kvöldsölu- staði hér í borginni,” sagði Björgvin Guðmundsson borgarfulltrúi i viðtali við DB í gær. „Ekki hvað sízt tel ég að allof strangar reglur gildi um nýjar tegundir veitingahúsa, svonefnda grill- staði,” sagði Björgvin. Hann vakti máls á þessum atriðum á fundi borgarráðs i fyrradag. Spurði hann meðal annars um störf nefndar, sem i maimánuði í fyrra var kosin til þess að endurskoða reglur um þessi efni. „Margar umsóknir um afgreiðslu- hætti hinna nýrri matstaða hafa fengið mjög dræmar undi: tektir, ’ sagði Björgvin. Hann benti m.a. á að öllum umsóknum um rekstur pylsu- vagna hefði verið skipulega synjað af hálfu borgaryfirvalda. Fyrir slíkri af- greiðslu væru oft á tíðum hæpin rök eða jafnvel engin haldbær. í þessu sambandi má geta þeirra við- ræðna sem fram hafa farið um nokkurt skeið milli veitingahúsaeig- enda og dómsmálaráðuneytisins um lokunartíma vínveitingastaða i borg inni. Allir þekkja biðraðirnar við veitingahúsin, þegar klukkan er farin að nálgast hálftólf. Þær eru mest áberandi um helgar. Veitingahúsaeigendur hafa óskað þeés að viðskiptavinir gætu gengið út og inn eftir vild á hverjum veitinga- stað meðan þeir starfa hvert kvöld. Er þetta undantekningarlitil venja annars staðar vandkvæðalaust. Nú hefur lögreglustjórinn í Reykjavík tjáð dómsmálaráðuneytinu að hann geti fyrir sitt leyti fallizt á umbeöna tilhögun. Er þess því að vænta að inn- an tiðar leggist niður hvimleiður troðningur við veitingahús borgarinn- ar. Loks má geta þess að í umræðum i borgarstjórn hafa komið fram þau sjónarmið að greitt yrði fyrir því með samþykki af hálfu borgaryfirvalda að næturþjónusta svo sem bensinsala og matsala verði leyfð við sæmilegri aðstæður en þær sem um langt skeið hafa veriðá Umferðarmiðstöðinni. BS Ur vetri f voi Þeir bjartsýnu eru ákveðnir i að vorið sé komið. Lóan er lika komin „heim” úr vetrarfriinu i sólarlöndum, snjórinn hverfur óðfluga og hitastigið er ósköp notalegt að verða. Þeir svartsýnu benda þó á hretin og vitna þá í ákveðin ár til að leggja áherzlu á hrakspárnar. Engu að síður er það staðreynd að vorlegt er um að litast um allt land. Syðra er hlýtt og notalegt og nyrðra og eystra þiðnar snjórinn svo mjög að til vandræða hefur horft víða. Myndirnar tóku Ijósmyndarar okkar á dögunum. Hörður Vilhjálmsson fann þetta vetramótif við Lynghól, sumar- Stjörnufákun Beztu Ijóð Jóhannesar úrKötlumá hljómplötu Mál og menning fylgist greinilega með timanum, öld hljómflutnings- tækjanna. M&M hefur stofnað dótturfyrirtæki, sem nefnist Streng- leikar og hefur með höndum hljóm- plötuútgáfu fyrirtækisins. 1 gær kom önnur plata Strengleika á markaðinn. Stjörnufákur heitir platan og hefur að geyma upplestur Jóhannesar skálds úr Kötlum á eigin ljóðum. Hér eru birtar upptökur á beztu ljóðum skáldsins en þær voru til í fórum útvarpsins. Óskar Halldórs- son annaðist útgáfu hljómplötunnar. Fyrri plata Strengleika heitir Frá- færur með hljómsveitinni Þokkabót. - JBP- bústað Guðmundar heitins frá Miðdal. Milli hliðstólpanna trónar rafmagns- mastur, sem fiytur orkuna að austan. Þau hafa staðið sig með prýði i vetur og geta Reykvíkingar þakkað það. Hin myndin er af svani sem æfir lend- ingar og flugtök af kyrru vatni í nágrenni' borgarinnar. Þá mynd tók Ólafur Guðbjartsson. ungur og upp- rennandi Ijósmyndari. Myndirnar sanna að skjótt skipast veður i lofti því myndirnar voru teknar með fárra daga millibili. Um helgina er ekki spáð góðu göngu- eða skíðaveðri, i gær féll jafnvel eitthvað sem liktist snjó. En svo virðist sem vorið yfirbugi þessi snjókorn gjörsamlega. En kannski erum viði hópi bjartsýnismannanna? FATAVERZLUN Hamnborg Það erhagstættað verzlaí Skyrtublússur Utir. HWtt, blátt, beige, l/ósbrúnt Verd kr. 3480.- Pb'seruð pils Verökr.8900.- Blússur í mörgum lítum Verðkr.5360. Hálsbindi Verð kr. 1690. PÓSt- sendum

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.