Dagblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. APRlL 1978. Irjálst, óháð dagblað Útgofandi Dagblaðið hf. Framkvœmdastjórí: Svoinn R. EyjóHsson. Ritstjórí: Jónas Krístjónsson. Fróttastjórí: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Holgason. Skrífstofustjórí rítstjómar. Jóhannos Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Aöstoðarfróttastjóri: Atíi Steinarsson. Handrit: Ásgrímur Pólsson. Blaðamonn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefónsdóttir, Gissur Sigurös- son, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lór. Ljósmyndir: Ámi Póll Jóhannsson, Bjamleifur BjamleHsson, Hörður Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurðs- son, Sveinn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkerí: Þróinn ÞoríeHsson. DreHingarstjóri: Mór E.M. Halldórs- son. Ritstjóm Síðumúla 12. Afgreiðsla Þverholti 2. Áskríftir, auglýsingar og skrHstofur Þverholti 11. Aöal- simi blaðsins 27022 (10 linur). Áskríft 1700 kr. ó mónuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Sotning og umbrot Dagblaðtð hf. Siðumúla 12. Mynda- og piötugerð: HUmir hf. Siöumúla 12. Prentun: Arvakur hf. SkeHunni 19. Lífskjörí hættu Tveir forystumenn hafa í vikunni bent /jjj á hættuna á, að lífskjör íslendinga hrynji, eins og þeir hafa komizt að orði. Doktor Jónas Bjarnason, formaður Bandalags háskólamanna, fjallaði um þetta í kjallaragrein í Dagblaðinu, og Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður Félags íslenzkra iðn- rekenda, varaði við hættunni á ársþingi félagsins. í báðum tilvikum kom fram sama orsökin. Fjárfesting hefur ekki byggt á arðsemissjónarmiðum. Uppbygging iðnaðar er langt á eftir því, sem vera þyrfti. Rétt er að gjalda varhug við kröfugerð þrýðtihópa. Það er ein helzta undirrót meinsins, að stjórnvöld hafa beygt sig fyrir þrýstihópunum. Af atvinnuvegunum er þar fyrst og fremst um að ræða sjávarútveg og landbúnað, sem kalla mætti háþrýstihópa, gagnstætt iðnaðinum, sem hefur orðið út undan og kalla mætti lágþrýstihóp. Þegar litið er á kröfugerð lágþrýstihópsins, kemur í ljós, að hann á sér fullgild rök á mörgum sviðum. Hinn fyrsta janúar 1980, eftir um tuttugu mánuði lýkur þeim tíma, sem iðnaðurinn fékk til að aðlaga sig samkeppni við innfluttar vörur frá löndum bandalag- anna EFTA og EBE. Á þessum tíma átti innlendur iðnaður að verða þannig í stakk búinn, að hann yrði ekki undir í samkeppninni, þegar tollmúrar hryndu. Langt er frá, að svo sé. Eigi að varðveita lífskjörin og bæta á næstu árum og áratugum, þarf að koma til stórefling iðnaðar, sem kalla mætti iðnbyltingu. Stjórnvöld hafa þvert á móti haldið iðnaðinum niðri með því að láta hann sæta verri kjörum en háþrýstihópana. Iðnaðurinn er settur hjá um aðgang að fjármagni. Hann nýtur lakari kjara en aðrir atvinnuvegir í skatt- lagningu, svo sem um launaskatt, aðstöðugjöld og sölu- skatt af orku og aðföngum. Undanfarin ár hefur vöxtur iðnaðarframleiðslu verið að meðaltali hlutfallslega meiri en vöxtur þjóðarframleiðslunnar. Því hefði mátt búast við, að fyrirgreiðsla bankakerfisins hefði vaxið. En annað er uppi á teningnum. Hlutur iðnaðarins í heildar- útlánum bankakerfisins hefur minnkað stöðugt síðan 1970, þegar hann var þrettán prósent. Hann var í fyrra kominn niður í 9,9 prósent. Hefði hlutfallið frá 1970 haldizt, hefði iðnaðurinn haft 4,3 milljörðum króna meira en hann hafði á síðasta ári. Athyglisvert er, að Iðnlánasjóður hefur aðeins fengið 9,1 prósent af lánveitingum Framkvæmdasjóðs á síðasta ári. Ekki var tekið tillit til arðsemissjónarmiða. Á árs- þinginu gátu iðnrekendur þeirra augljósu sanninda, að án fjárfestingar í iðnaði verður engin iðnvæðing og án lána er fjárfesting nær óhugsandi við núverandi aðstæður í landinu. Stjórnvöld hafa á síðustu mánuðum gert lítið eitt til að bæta hlut iðnaðarins. Frumvörp eru á leiðinni með frek- ari úrbætur. En allt það, sem boðað hefur verið eða gert, nægir skammt til að leiðrétta misréttið, sem þessi lág- þrýstihópur er beittur. Svo horfir, að í stað iðnvæðingar stefni í alger vand- ræði, þegar aðlögunartímanum lýkur. Háþrýstihóparnir hafa vaðið yfir iðnaðinn. Þess vegna eru núverandi lífs- kjör í hættu. Hreinsunaraðgerðir vegna Amoco Cadiz strandsins ífullumgangi Vísindamenn bjart- sýnir á árangurinn Vonazt er til að mengunin haf i ekki langtímaáhrif á líf ríkið Vísindamenn vinna nú að rann- sóknum á afleiðingum mestu olíu- mengunar, sem um getur í sögunni eftir strand risaolíuskipsins Amoco Cadiz úti fyrir Bretagneströndum.' Þrátt fyrir gifurlega mengun eru vísindamenn eftir atvikum bjartsýnir á það að mengunin hafi ekki langtima áhrif á strönd Bretagne eða sjávarlíf undan ströndum. Risaolíuskipið strandaði 16. marzsl. og brotnaði i tvennt strax næsta dag skammt undan landi, þar sem fiski- þorp eru á ströndinni. U.þ.b. 200 þúsund tonn af hráoliu fóru í sjóinn og til þess að flýta fyrir hreinsun sprengdi franski flotinn göt á lestar Franski fiotinn sprengdi djúpsprengjur til þess að öll olian rynni úr skipinu, en þegar um 200 þúsund lestir höfðu runnið úr skipinu þegar það brotnaði, voru enn 20 þúsund lestir um borð i heilum lesturn. r TÍU MILUÓN ÁRA GAMALL F0RFAÐIR OKKAR Fátt er mönnum hugstæðara en að velta fyrir sér ætt sinni, uppruna og tengslum við aðra menn. Sköpunar- sögur trúarbragðanna hafa löngum nægt flestum þegar um hefur verið að ræða uppruna manna. Þær skýra flestar frá þvi, að einhvern tima i ár- daga hafi guð eða guðir skapað manninn og konuna, og þau tvö síðan orðið foreldrar allra manna, allra kyn- þátta og allra samfélaga. Vandamálið um manninn var þannig leyst i eitt skipti fyrir öll. Enginn vafi lék á því hvers eðlis hann væri, hver væri upp- runi hans. Náttúrufræðingar 19. aldar áttu eftir að spyrja nýrra og óvæntra spurninga i sambandi við manninn, og svörin voru aðvitað ekki síður nýstár- leg. Menn komust að því, að tegundir voru breytingum háðar, að þessar breytingar gátu leitt til þess að nýjar tegundir yrðu til, og breytingarnar réðu niestu um framvindu allra lífvera á jörðinni. Þróunarkenningin, sem kennd er við Darwin, er einmitt kenn- ing um breytingar og hvernig þær eiga sér stað. Framlag Darwins til náttúru- visindanna var að skýra hvað stjórn- aði þessum breytingum, hvernig þær væru mögulegar. Þegar Ijóst var, að menn og apar voru harla skyldir varð ekki önnur ályktun af því dregin en sú, að þeir ættu sér sameiginlegan for- föður einhvers staðar langt aftur i myrkviði aldanna. Þegar menn siðan fundu ýmsar leifar útdauðra teg- unda, sem ýmist liktust mönnum eða öpum vaknaði sú von, að takast mætti að finna tengiliðinn milli manna og apa. „The missins link” var hann kallaður, og lengi vel töldu visinda- menn að einn góðan veðurdag kæmi hann upp á yfirborðið, þessi merkilegi mannapi, sem sannaði hvernig menn og apar tengdust og hvað hefði valdið þvi að leiðir skildu. Hér verður ekki rakið hv.emig hver týndur hlekkur eftir annan reyndist gera gátuna flóknari i stað þess að leysa hana. Java-maður, Peking- maður, Afríku-maður. allt voru þetta greinilega menn. Milliliður manna og apa var enn jafn fjarlægur og hann HVER Á AÐ BORGA HALLANN Á KRÖFLUVIRKJUN? Nýlega gerðust þau einstæðu tiðindi, að meirihluti stjórnar Raf- magnsveitna rikisins — þrír menn af fjórum — sagði af sér störfum. Greint var frá þvi í blöðum að framkvæmda- stjóri Rafmagnsveitnanna hefði verið að þvi kominn að gera slíkt hið sama. Ástæðan fyrir þessum viðbrögðum var sú að þessir sérfræðingar vildu lýsa sem harkalegustu vantrausti á Gunnar Thoroddsen orkumála- ráðherra vegna afskipta hans af þessu mikilvæga fyrirtæki. Þeir röktu opinberlega að Gunnar Thoroddsen hefði steypt Rafmagnsveitunum i botnlaust skuldafen með afskiptum sínum — og ekki síður verkleysi. Hann hefði æ ofan i æ gefið Raf- magnsveitunum fyrirmæli um fram- kvæmdir og efniskaup án þess að geta tryggt nokkurt fjármagn til fram- kvæmdanna, þannig að ekki var unnt að leysa út vörur sem þó voru komnar V ______ til landsins. Það sem af er þessu ári hefur naumast liðið svo dagur að Rafmagnsveiturnar hafi ekki hótað að taka rafmagn af einum eða öðrum stað á landinu vegna þessa gjaldþrota- ástands. Á fjárl. þessa árs var fjármagn svo naumt skammtað að Rafmagnsveiturnar geta ekki einu sinni rækt lágmarksathafnir i ár. For- maður stjórnarinnar sem sagði af sér var Helgi Bergs bankastjóri Lands- bankans, einn áhrifamesti forustu- rtiaður Framsóknarflokksins. Ekki þarf að efa að hann hefur haft náið samráð við félaga sína i forustu flokksins áður en hann greip til þessara harkalegu aðgerða. Þarna birtist spilamennskustjórnkænska Framsóknarflokksins enn sem fyrr; Helgi Bergs lýsir harkalegasta van- trausti á orkumálaráðherrann út á við, en á ríkisstjórnarfundum brosa Ólafur, Einar og Halldór framan í Gunnar félaga sinn, enda bera þeir auðvitað sömu ábyrgð og hann meðan þeir gera engan ágreining opinberan. Þetta er að vera opinn i báða enda. Viðbrögð Helga Bergs og félaga hans eru einsdæmi t islenskri stjórn- málasögu þann aldarþriðjung sem ég hef fylgst með málum, og hvarvetna þar sem ég þekki til í Vestur-Evrópu hefði ráðherra sem fyrir slíku hefði orðið talið óhjákvæmilegt að kanna hvort hann nyti trausts þjóðþingsins. En hér á landi gera ráðherrar ekki siðgæðiskröfur til sjálfra sin, né aðrir til þeirra. Snjóbolti I hundslappadrlfu Mál Rafmagnsveitna rikisins komu i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.