Dagblaðið - 08.04.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. APRlL 1978.
Gæzlan og björgunarstörfin:
Úreltur
björgunar-
búnaður?
Þótt varðskipunum mistakist sutnar björgunartilraunir, hafa þau framkvæmt
margar vel heppnaðar. Nýjasta dæmið er fri þvi að varðskip tðk annað varðsldp
með bilaðar vélar í tog og færði til hafnar.
Sjómaður hafði þetta að segja:
Það kemur manni á óvart, hversu
treglega bjðrgunarstörfm ganga hjá
varðskipunum okkar. Tvær risastórar
vélar, sem framleiða 9000 hestöfl eða
svo, — og ekkert stoðar.
Það virðist vera að virar skipanna
eigi hér sök á. Þá dettur manni i hug
hvort ekki sé eitthvað bogið við
björgunarbúnað skipanna. Getur það
hugsazt að vírarnir séu ekki nægjan-
lega sterkir.
Með það afl, sem varðskipin hafa,
ætti að vera hægt að toga smá„punga”
eins og færeyska saltdallinn og Vest-
mannaeyjabátinn ofan af miðri heiði.
En þetta vefst semsé fyrir varðskips-
mönnum, — og þá trúlega vegna þess
að þeir hafa ekki nógu góðan útbúr.að.
Þröstur Sigtryggsson
skipherra.
Eg tel að þær dráttartaugar sem til
eru séu nægilega sterkar og í fullu
Raddir
lesenda
Ii __í.-, <*•
Allir eru þakklátir fyrir störf hreinsunarmannanna en þau mega ekkl koma óþægilega illa niður á umferóinni ef hægt er að
haga þeim öðruvisi.
Hreinsunin má ekki
verða til vandræða
Reiður vegfarandi hringdi:
Það nær ekki nokkurri átt að
vinnuflokkar borgarinnar, sem vinna
nú þarft verk að hreinsun gatnanna,
taki ekki tillit til umferðarinnarog á ég
þar við umferðina á annatímum. 1
gærmorgun (fimmtudagsmorguninn
sl.) var ég að aka úr Kópavoginum að
vanda til vinnu minnar í Reykjavik.
Var þá mikið umferðaröngþveiti á
Kringlumýrarbrautinni i Fossvogi.
Tók ég þvi framan af með þegjandi
þolinmæði og með vorkunn í garð
þeirra, sem ég hélt að sjálfsögðu að
hefðu lent í slysi eða óhappi.
Fikraði ég mig nú áfram mínútu
fyrir minútu og metra fyrir metra unz
ég sá hvað raunverulega otti
öngþveitinu. Vinnuflokkur frá
borginni var þar með bíl og tvær drátt-
arvélar og var verið að hreinsa'
rennusteininn. Geysileg umferð
Kópvæginga, Garðbæinga og Hafn-
firðinga á sér stað þarna um einmitt á
þessum tima.
Vil ég nú biðja viðkomandi verk-
stjóra, í fullri velvild, að taka tillit til
þessara aðstæðna og annarra
sambærilegra um borgina.
Þjónusta Símans við almenning:
Það á að vera hægt að hríngja
í númer almenningssímanna
H. Teits var á linunni og mikið niðri
fyrir:
„Greinilegt er að símamál okkar eru
öll einhvers staðar aftur í grárri forn-
eskju. Mér dettur núna í hug eitt atriði
af þúsund, bara svona til að gripa
niður á einhverju.
Hvers vegna i ósköpunum eru ekki
símanúmer á almenningssimum?
Þetta hefur verið erlendis um áratuga-
skeið, líklega allt frá því þetta merka
tæki varð almenningseign. Hér er ekki
hægt að hringja i almenningssima, en
slíkt gæti komið að miklu gagni í
mörgum tilvikum.
Gaman væri að fá svör ráðamanna
Simans um þetta einstaka mál, sem ég
hef nú aðeins i mprað á.
Hafsteinn Þorsteinsson, bæjarslm-
stjóri svarar:
„Þetta er vel framkvæmanlegt og
við höfum hugleitt að gera þetta. En
— á meðan umgengni um þessa síma-
klefa er með þeim hætti að við höfum
ekki undan að gera við þá, þjónar
það í sjálfu sér engum tilgangi að fólk
ákveði með sér samband um þá á
ákveðnum tímum en geti svo ekki
stólað á að tækin séu í lagi. Varðandi
simasjálfsala í fyrirtækjum og stofn-
unum höfum við reynt þetta á nokkr-
um stöðum en teljum hinsvegar að
slíkt kunni að skapa þær aðstæður að
notagildi tækjanna verði ekki sem
skyldi vegna hringinga utanaðfrá.
samræmi við getu varðskipanna. Hins
vegar eru aðstæður til notkunar þessa
búnaðar mjög misjafnar og
árangurinn þvi eftir þvi.
Hringið
r r
isima
27022
milfí
kl. 13-15
eða
skrifið
Spurning
dagsins
Er
vorið
komið?
Guðmundina Bjarnadóttir húsmóðin Jú,
ætli það ekki. Veðrið er alltaf svo gott
þessa dagana.
Óskar Þór Ingvarsson, 8 ára: Já, það er
ailtaf svogott veður núna.
Sigriður Þórarinsdóttlr, nemi i Mynd-
lista- og handiðaskólanum: Já, mér finnst
það. Það er minnsta kosti kominn vor-
hugur í mann.
Sigurður Sigurbjörnsson, fyrrverandi
sjómaður: Já, það finnst mér endilega,
fyrst lóan er komin.
Helga Sigurðardóttir húsmóðir: Veðrið
er gott eins og stendur, en það gæti nú
kólnað.
Bæjarsimstjórí: Á meðan umgengni
um simaklefana er jafnslæm og raun
ber vitni sjáum við ekki ástæðu til að
tengja þangað númer. Erlendis gengur
fólk vel um slikt enda litur það svo á
réttilega að um þjónustu við það er að
ræða.
Sigurður Bjarnason pipulagningamaður:
Já, það er alveg klárt mál og er langt
siðan.