Dagblaðið - 08.04.1978, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. APRIL 1978.
Pólverjar
heiðra Arthur
/
Rubinstein
Pólverjar hafa löngum þótt gera vel
við listamenn sína og eru hrcyknir af
þeim mörgum öðrum þjóðum fremur.
Arthur Rubinstcin píanólcikarinn
heimsfrægi, sem nú er orðinn niutiu og
eins árs, er fæddur I Póllandi en hefur
um langt skeið haft bandarískan rikis-
borgararétt.
Pólverjar láta slík formsatriði engin
áhrif hafa á sig og hafa nýverið skipað
gamla manninum I hóp þeirra sem veitt
er eitt æðsta heiðursmerki sem þar er
veitt.
Athöfnin fór fram I pólska sendiráð-
inu i Paris.
Arthur Rubinstcin erorðinn niutíu og eins árs en eiginkona hans, Eva, er mun
yngri. Þarna eru þau að ræðast við hjónin. Eða er Arthur að mynda sig við að
kyssa konuna? Eöa er hún að hjálpa honum á fætur? Allavega eru þetta herra og
frú Rubinstein.