Dagblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978. JÓN ÓLAFSSON: - Þrátt fyrir að ilia horfði með plötusölu fyrrihluta ársins í fyrra iagaðist það, þegar á leið. Við seldum um 36.000 eintök sem mér telst til að sé þriðjungur allrar plötusölunnar í fvrra. Jón Ólafsson fram- kvæmda- stjóri Hljómplötuútgáfan M. er otóin að alvörufyrirtæki Gefurútsjö eða átta plöturá árinu Brunaliðsplata, Mannakornsplata, plata með Halla og Ladda, sólóplata með Björgvin Halldórssyni og önnur með Ruth Reginalds, Ijóðaplata með Magnúsi Sigmundssyni, auk einnar eða tveggja annarra. — Þannig litur listinn út yfir verkefni Hljómplötuút- gáfunnar hf. á þvi herrans ári 1978. tslenzku hljómplötufyrirtækin eru nú sem óðast að skipuleggja starf- semina, ýmist fram á haustið eða út árið. Til þess að forvitnast um hvaða plötur kæmu á markaðinn á þessu ári heimsótti Dagblaðið helztu út- gefendurna og spurði þá útúr. Árangur jteirra heimsókna kemur siðan i Ijós á næstunni. — Jón Ólafs- son framkvæmdastjóri Hljómplötuút- gáfunnar hf. leysir fyrstur frá skjóðunni. Brunaliðið ríður á vaðið „Fyrsta platan frá okkur kemur út i næsta mánuði — Úr öskunni i eldinn með Brunaliðinu. Hún er eina platan, sem ég get sagt ákveðið um útgáfutima. Nú, við erum nýbúnir að gera útgáfusamning við hljómsveitina Mannakorn, er byrjar upptökur síðar í þessum mánuði og i næsta mánuði verður byrjað á plötunni með Halla og Ladda.” Jón Ólafsson bætti því við, að i stórum dráttum væri búið að skipuleggja útgáfustarfsemi Hljómplötuútgáfunnar hf. út árið. „Við reynum að gefa út eins lítið og við mögulega getum,” sagði hann. „Eins og dæmið lítur út núna koma frá okkur sjö eða átta plötur én þó má alls ekki lita á þann titlafjölda, sem eitthvertendanlegt takmark.” Upptökur á sólóplötu Björgvins Halldórssonar hefjast um mitt árið. Enn hefur ekki verið ákveðið neitt með plötu Ruthar Reginalds utan það að hún verður gerð fyrr en síðar. Magnús Sigmundsson er sem kunnugt er búsettur I London og hann ætlar að gera sina plötu þar með erlendum hljóðfæraleikurum. — Jón var að því spurður hvort það væri ekki mun dýrara að taka plötuna upp i Englandi en í Hljóðrita. „Jú, vitaskuld er það dýrara. En ætlunin er aö gera vandaða plötu — Ijóðaplötu með textum eftir Kristján skáld frá Djúpalæk. Að fenginni reynslu treysti ég mér ekki til að nota fólk frá Sinfóníuhljómsveit tslands til að gera virkilega góða hluti svo að þess vegna verður hún tekin upp úti.” Óhræddur um söluna í ár Á siðasta ári gaf Hljómplötuút- gáfan hf. út fjórar plötur. Útgáfuaukningin á þessu ári verður þvt um hundrað prósent. Jón Ólafsson kvaðst vera alls ósmeykur um sölu islenzkra hljómplatna á þessu ári. „Ég er búinn að selja fleiri plötur það sem af er þessu ári en átta fyrstu mánuði ársins í fyrra. Þó hef ég alls ekki ástæðu til að kvarta yfir siðasta ári — hvað sem aðrir segja. Ég seldi um 36.000 plötur þá, sem er þriðjungur sölunnar á íslenzkum plötum. Eftir slíka vertíð get ég ekki kvartað. Reyndar var ég uggandi um tíma og útlit var á að við myndum ekki lifa af áramótauppgjörið, en seinni hluta ársins tók salan mjög vel við sér. Til dæmis eru þrjár af plötunum okkar frá því í fyrra enn i góðri sölu — plöturnar með Ruth, Vilhjálmi og Halla og Ladda.” Og Jón bætti við: „Markaðurinn hér er nú orðinn þannig, að þeir sem vanda sig og gera góða hluti selja sína framleiöslu, en hinir sem eru blankir og kasta til höndunum fara halloka. Mér virðist ekkert plötufyrirtæki auglýsa vöru sína meira en Hljómplötuútgáfan — það er kannski af því að ég fæ reikningana i hendurnar — en jsessar auglýsingar hljóta að skila sér. Þessa tel ég vera skýringuna á því, hve Hljómplötuútgáfan hf. hefur sótt i sig veðrið. Fyrirtækið hefur tekið miklum stakkaskiptum á einu ári — þetta er orðið alvöru fyrirtæki. Við erum farnir að geta leyft okkur að gera góða hluti — höfum efni á að gera plötukaupendunum til hæfis.” Halda áf ram í sama anda Fyrir skömmu féll einn aðaleigenda Hljómplötuútgáfunnar hf„ Vilhjálm- ur Vilhjálmsson, frá. Jón sagði að breytingar yrðu ekki gerðar að svo stöddu vegna þess. „Vilhjálmur er virkur þátttakandi I fyrirtækinu þótt hann sé ekki lengur meðal okkar. Hann skildi eftir sig mikið af textum, sem verða notaðir og hann var búinn að leggja mikið hér inn, sem við búum að i framtíðinni. Við höldum starfseminni áfram i þeim anda, sem skapaðist þegar við vorum hér þrír við stjórnvölinn.” -AT- [ Verzlun Verzlun Verzlun ) Hátalarar f sérflokki El þú vilt smiða kassana sjálfur, hnfuni vió hátalara- svtt, lítil og stór frá SEAS: Mini, 203, 303, 503 «g Disco. Einnig höfum við ósamsetta kassa, tilsniðna «|> spón- lagða. SAMEIIMD, Grettisgötu 46, simi 21366. Húsbyggjendur, byggingaverktakar: Eigum á lager milliveggjaplötur úr gjallí. Stærð 50 x 50 cm. Athugið verð og greiðslu- skilmála. Loftorka sf Dalshrauni 8 Hafnarfirði, sími 50877. Fjölbreytt URVAL skrifborðsstóla. Nytsamar fermingargjafir. Framleiðandi: Stáliðjan Kópavogi KRÓM HÚSGÖGN Smíðjuvegi 5 Kópavogi. Simi 43211 L. Gardínubraufir (lll Langholtsvegi 128 Simi 85B05. jjnj Eigum fyrirliggjandi allar geröir af Iff viöarfylltum gardínubrautum, 1-4 L brauta, meö plast-eöa viðar- jjUfl köppum, einnig ömmustangir, ^0* smíöajárnsstangirogallttil gardínuuppsetningar {jm'dinin sium skhhúm Islevtt Hugiit igHandmt STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað. SVERRIR HALLGRÍMSSON Smidastofa h/i .Trönuhrauni 5. Simi 51745. Ferguson litsjónvarps- tækin. Amerískir inn- línumyndlampar. Amer- ískir transistorar og díóður. ORRI HJALTASON Hagamel 8, simi 16139. DRÁTTARBEIZLI — KERRUR Vorum aö taka upp 10” tommu hjólastell fyrir Combi Camp og flairi tjaldvagna. Höfum á lager allar atnröir af hjólastellum og alla hluti í kerrur, sömuleiðis allar gerðir af kamim og vögnum. ÞÓRARINN KRISTINSSON Klapparstíg 8. Sími 28616 (Heima 72087) MOTOROLA Alternatorar 1 bíla og báta, 6/12/24/32 volta. Platínulausar transistorkveikjur I flesta bíla. Haukur & Ólafur hf. Ármúla 32. Slmi 37700. ALTERNATORAR 6112/24 volt i flesta bila og báta. VERÐ FRÁ 13.500. Amerisk úrvalsvara. — Póstsendum. Varahluta- og viðgerðaþjónusta. Rafmag'nsvörur I bila og báta. BÍLARAF HF. 5SSS*

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.