Dagblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 24
„Litvæðing” Borgarspítalans hafin: Sjónvarpið komið á deild A-3! Það varð uppi fótur og fit á deild A—3 á Borgarspitalanum i gær þegar Þorsteinn Garðarsson kom með Finnlux litsjónvarpstækið. Sjúklingar á spitalanum, starfsfólk og gestir, svo og lesendur Dagblaðsins, sáu til þess að hægt var að kaupa tækið. Inn- flytjandinn, Þorsteinn Garðarsson, gaf einnig mjög góðan afslátt eða 67 þúsund krónur. Hann hringdi til Jóns Gests, sem var „aðalmaðurinn” i söfnuninni, strax og hann las fréltina um söfnunina i Dagblaðinu og bauð þcnnan rausnarlega afslátt. „Fólk hefur verið óskaplega örlátt,” sagði Jón Gestur. „Þó fannst mér einna mest til um þrjá litla bræður. sem kontu hingað. Það voru Haukur, Bjarki og Þröstur Arnórssynir, sem unnu 15 þúsund krónur i happ- drættinu. Haukur lá á deildinni með mér í vetur og vildu bræðurnir cndi- lega gefa allan happdrættisvinninginn sinn I söfnunina. Það fannst mér alveg stórkostlegt," sagði Jón Gestur. Annars var það Guðrún Ásdís Ólafsdóttir, sem byrjaði á söfnuninni. „Ég var farin að halda að það væri eitthvað að sióninni hjá mér,” sagði hún. „Ensvokom iljós aðþaóvarbara Þorsteinn Garðarsson afhendir Jóni Gesti Finnlux-tækið en þúsund slík hafa selzt siðan i haust er farið var að auglýsa tækið i Dagblaðinu. DB-mynd Bj. Bj. sjónvarpið sem var svona lélegt”. Guðrún Ásdis hefur áður komið við sögu sjónvarpssöfnunar ásamt Dag- blaðinu. Hún er bankagjaldkeri í Vegamótaútibúi Landsbankans og tók við peningunum sem lesendur DB gáfu á sinum tima til að kaupa sjónvarpstæki fyrir barnadeild Landa- kotsspitala. „Litlu krakkarnir hafa verið svo áhugasamir við söfnunina, þeir hafa verið að gefa fimmtiu kall og fimmiiu kall,” sagði Kolbrún Björnsdóttir deildarritari, sem var eins konar „bankastjóri” og geymdi sjóðinn þegar Jón Gestur var ekki að telja hann. Þegar Guðrún og Jón töldu sjóðinn kom i Ijós að safnazt höfðu 425 þúsund krónur, bæði á spítalanum og á Dagblaðinu. Þannig eru eftir 45 þúsund krónur þegar búið er að greiða andvirði tækisins. Þar að auki voru ekki öll kurl komin til grafar því þegar blm. kom á ritstjórn DB eftir að tækið hafði verið afhent kom kona með söfnunarbauk frá starfsfólkinu á Kirkjusandi sent gaf 20 þúsund krónur! í ráði er að kaupa eitt fót- boltaspil sem hægt verður að tengja við gamla sjónvarpstækið og síðan að gefa afganginn, sem þá verður, til nýrrar söfnunar á næstu hæð. Þannig skulum við öll hjálpast að þvi að „lit- væða” Borgarspítalann. Því verður söfnuninni haldið áfram og við á DB tökum enn á móti peningum. Við skorum á fólk á stórum og mannmörgum vinnustöðum að taka saman höndum og safna fyrir fleiri sjónvarpstækjum. A.Bj. Umferðin frjálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 15. APRtL 1978. Guðla mát aAialk, nema eina íDanmörku — hlaut 100% vinninga að Flúðum Guðlaug Þorsteinsdóttir, okkar bezta skákkona, tefldi um páskana á kvenna- móti í Horsens i Danmörku. Keppendur voru 16 frá 5 þjóðum og varð Guðlaug i öðru sæti með 5.5 vinninga. Sigurveg- ario varð Nina Höjberg, Danmörku, með sjö vinninga af sjö mögulegum. í þriðja sæti var Else Thygesen, Dan- mörku, með 4.5 vinninga. Guðlaug er félaga í skákfélaginu Mjölni og unglingameistari félagsins, Birkir Leósson, tefldi á alþjóðlegu unglinga- móti í Noregi á sama tíma og Guðlaug í Danmörku.- Þátttakendur voru 56 og Birkir varð i 16. sæti með 4.5 vinninga af átta. Þá má geta þess að Guðlaug tefldi nýlega fjöltefli við unglinga að Flúðum, 16 skákir, og Guðlaug sigraði í öllum. Daginn eftir var hraðskákmót að Flúðum, Monrad-kerfi, og Guðlaug sigraði, hlaút niu vinninga af níu mögulegum. hsim. DAGBLÖÐ HÆKKAÍVERÐI Verðlagsstjóri hefur heimilað dag- blöðunum sex að hækka verð á auglýsingum, áskriftargjöldum og blöðum í lausasölu. Frá og með deginum I dag kosta dagblöðin 100 krónur í lausa- sölu, 2000 krónur á mánuði til áskrif- enda, nema hvað apríl kostar 1850 krónur. Hver dálksentimetri I auglýsingum kostar kr. 1200 og smá- auglýsingin kostar þá 1700 krónur ein: birting. Bryndis Kristjánsdóttir, niu ára nemandi I Breiðholtsskóla, fékk fyrstu verðlaun fyrir teikningu af tillitssemi i umferðinni i samkeppni Menntamálaráðs og Umferðarráðs. Alls bárust 57 myndir frá niu ára bórnum viðs vegar að á landinu. Og hér birtum við semsé myndina — I lit — þvi nú gerist flest „litvætt” i landi voru. Greinargerð rannsóknarlögreglustjóra iLandsbankamáli: Flutti Haukur peninga utan fyrir aðra menn? Skömmu áður en Haukur Heiðar. fyrrum deildarsljóri ábyrgðardeildar Landsbankans, var handtekinn 22. desember sl. hafði hann gert tilraun til að draga sér rúmar sex ntilljónir. Það tókst ckki og nokkrum dögum siðar komst upp að hann hafði um margra ára skcið dregið sér tugi milljóna i bankanum. Samtals eru það 51,5 milljónir króna sem Haukur tók til sin i 25 til- vikum, að því er segir i greinargerð rannsóknarlögreglustjóra ríkisins til fjölmiðla um Landsbankamálið i gær. Fésent tilútlanda í samtali sem fréttamaður DB átti við Hallvarð Einvarðsson rannsóknar- lögreglustjóra kom fram að rannsókn- in á fjárdrætti Hauks Heiðars hefur aðeins náð aftur til síðustu sjö ára. „Við rannsóknina lágu fyrir gögn frá árslokum 1970 til ársloka 1977,”sagði Hallvarður. Hann færðist eindregið undan að svgra spurningum um hvort það þýddi að fjártökur Hauks gætu allt eins hafá staðið lengur, með lilliti til þess að ekki er skylt að geyma bók- haldsgögn nema i sjö ár. 1 greinargerð rannsóknarlögreglu- stjóra segir að i Ijós hafi komið að Haukur haft sent fé til útlanda og notað starfsaðstöðu sina i bankanum til þess. Fréttamaður DB spurði Hall- varð fyrir hvern Haukur hefði sent þetta fé til útlanda, hvort það hefði einungis verið fyrir hann sjálfan. „Það er rannsóknarefni,” sagði rannsóknar- lögreglustjóri. Hann kvaðst að öðru leyti ekki vilja tjá sig frekar um málið að öðru leyti en því sem kæmi fram i greinargerðinni og bréfum sínum og Landsbankans til viðskiptaráðherra sem lögð hefðu verið fram á alþingi í vetur. Tregar játningar í fyrstu Þegar i fyrstu yfirheyrslum viður- ' kenndi Haukur Heiðar að hafa undan- farin ár dregið sér fé i sambandi við viðskipti Landsbankans og fyrirtækis- ins Einar Ásmundsson Import-Export (Sindra-Stál). í fyrstu kvaðst hann hvorki geta neitað þvi né játað að um væri að ræða að minnsta kosti 35 milljónir. Peningana hefði hann notað til eigin þarfa, aðallega i sumarbústað sinn í Grafningi, til viðhalds á íbúðar- húsinu, til ferðalaga og svo framvegis. Sagðist Haukur i fyrstu vera búinn að eyða öllum peningunum og væri ekk- ert á bönkum, hvorki hérlendis né erlendis. Siðar hefur komið í Ijós, og Haukur Heiðar viðurkennt, að hann hefur komið verulegri upphæð til geymslu i banka í Sviss, eða rúmlega 20 milljón- um. „Kærði hefur hins vegar neitað frekari skýrslugjöf um hvenær eða með hverjum hætti fjármunir þessir hafa verið fluttir til Sviss,” segir í greinargerðrannsóknarlögreglustjóra. Þannig fór hann að Rannsóknin hefur leitt í Ijós hvernig Haukur stóð að þjófnaðinum. 1 greinargerðinni segir: „Haukur Heiðar hafði ekki á sínu starfssviði aðgang að neinum sjóði (kassa). Til að koma fjárdrættinum í kring hefir hann ýmist falsað skjöl eða skotið skjölum undan og þá útbúið ný skjöl í staðinn en annars efnis en þau.sem undan var skotið. i tilvikum þeim, sem að framan er getið, hefir framkvæmdin á þvi byggst, að eftir að innborgunar- og útborgunarskjöl höfðu farið um hendur gjaldkera fékk Haukur Heiðar þau aftur til baka, og þar með tækifæri til að breyta þeim áður en hann afhenti þau viðkomandi viðskiptamanni. Með þessum hætti tókst honum að skapa misræmi milli þeirra fjárhæða, er viðskiptamaðurinn greiddi i þóknun og vexti o.fl. gjöld vegna erlendra ábyrgða og innheimtu- víxla og þeirra upphæða, sem til bank- ans runnu vegna þessara sömu við- skipta. Mismunur, sem þannig skap- aðist, var síðan að hluta notaður til greiðslu krafna á íslenzk fyrirtæki, sem síðan endurgreiddu Hauki Heiðari þessar fjárhæðir beint.” Rannsókn heldur áfram Er þarna vikið að þeirri „lánastarf- semi” sem Haukur hefur stundað og nokkur fyrirtæki hafa viðurkennt að hafa þegið, eins og fram hefur komið i Dagblaðinu. Rannsóknarlögregla rikisins vinnur áfram að rannsókn Landsbankamáls- ins, að þvi er segir i niðurlagi greinar- gerðar rannsóknarlögreglustjóra. Þegar henni lýkui» sem væntanlega verður innan skamms, verður málið sent rikissaksóknara til ákvörðunar um málshöfðun á hendur Hauki Heiðari. ÓV/BS. r

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.