Dagblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978. <sS», RAUMATRIOIÐ $«$$$$•í %'>X W* />eZ*ö'l4. bZ*t* rf>t *£* *í>/ % Jazzstarfsemi á Norðurlöndum nýtur ríkisstyrkja Á Norðurlöndum hefur jazzinn átt miklu fylgi að fagna, allt frá tímum swingsins. Þar byggir jazzinn því á traustum grunni nú í dag. Elsta jazz- blað I heiminum er gefið út I Svlþjóð, það er Orkester Journalen. Þá má geta þess að I Noregi, Finnlandi, Dan- mörku og Sviþjóð eru sterk jazzsam- tök sem hafa sameiginlega útgáfustarf- semi og skipulagsstjórn. Jazzklúbbar I þessum löndum eru rikisstyrktir og fá þeir niðurfelld öll opinber gjöld. Mont- martre I Kaupmannahöfn, einhver þekktasti jazzklúbbur á Norðurlönd- um, fær rlkisstyrk að upphæð 11 millj. ísl. kr. ár hvert, auk þess sem borgin veitir klúbbnum styrk. 1 þessu andrúmslofti hefur fjöldinn allur af góðum jazzleikurum þroskast. Svíar eiga heimsþekkta jazzara og ber nöfn þeirra Sven Asmundsen fiölara og söngkonunnar Alice Babs einna hæst. Alice Babs náði þvi einstaka marki að syngja með hljómsveit Duke heitins Ellingtons I nokkurn tima. Danir eiga marga þekkta jazzara og Norðmenn og Finnar eru á hraðri uppleið Niels-Henning stærsfa nafnið Þekktasti Norðurlandabúinn I jazz- heiminum I dag er tvlmælalaust hinn stórgóði bassaleikari Niels-Henning örsted Pedersen. Niels-Henning er fæddur árið 1946 I Danmörku. Hann hóf ungur tónlistarnám og var píanóið hans fyrsta hljóðfæri. En fljótlega náði jazzinn tökum á honum. Var það bassinn sem Niels valdi sér þá til að kljást við. Sá bassaleikari sem heillaði dreng- inn mest, var Walter Page sem starfaði með hljómsveit Count Basie 1939. Það var einmitt upptaka frá þeim tima með Basie bandinu sem fékk Niels til að gera upp hug sinn til jazzins. Strákurinn vakti snemma athygli fyrir afburða hæfileika sina. Hann var rétt nýfermdur þegar bassaleikarinn Ray Brown heyrði hann leika I Kaup- mannahöfn. Brown varð yfir sig heill- aður af þessum unga Dana. Aðeins fimmtán ára gamall lék Niels með píanóleikaranum Bud Powell og liggur ein hljómplata eftir þá. Bud Powell hafði starfað með meistara Charles Parker og var einn af brautryðjendum Be-Bopsins. Powell var orðinn fár- sjúkur á geði þegar Niels starfaði með honum. Niéls vissi stundum ekki einu sinni hvaða lög þeir voru að leika. Kom það nokkrum sinnum fyrir að þeir léku móti hvor öðrum, I staö þess að leika hvor með öðrum. Á þessum árum voru margir banda- riskir jazzarar að setjast að I Dan- mörku og víðar i Evrópu. Niels kynnt- ist flestum þeim sem settust að i heimalandi hans og starfaði með mörgum þeirra. Af þeim hefur hann mikið lært. Fastráðinn við Radioens Big Band Niels var fljótlega ráðinn til' Radi- oens Big Band og þar hefur hann starfað alla tið, með hléium þó. Hann hefur leikiö með mörgum af þekktustu jözzurum heims. Átján ára að aldri lék hann inn á hljómplötu með framúr- stefnumanninum Albert Ayler. Þetta var önnur plata Aylers og nefnist hún „My Name is Albert Ayler”. Á þessari plötu voru flest lögin þekktir jazzslag-’ arar,en I flutningi Aylers fengu þeir á sig allsérstæðan blæ. Annars mun Dexter Gordon saxó- fónleikari vera sá sem einna mest áhrif hefur haft á Niels og félaga hans. Hefur Niels leikið með honum við ýmis tækifæri. Þá hefur hann einnig leikið með Ben Webster, Roland Kirk, Dizzy Gillespie, Roy Eldrigde og jazzhljómsveitinni I 6 mánuði ár hvert. Hina 6 mánuðina starfar hann við session vinnu, með tríói Oscar Peterson, eða með eigin tríói. Hann vill hvergi annars staðar búa en I Dan- mörku. Honum hefur oft verið boðið að starfa og búa í Bandaríkjunum, en hann tekur það ekki i mál. Þegar Dexter Gordon kom úr hljómleikaferð sinni um Bandaríkin slöastliðið ár, kom hann að máli við Niels. „Nú skil ég af hverju þú viltekki flytja frá Dan- mörku,” sagði Dexter. Þeim ber saman um að í Bandaríkjunum sé ekki hægt að búa vegna glæpa og soralegs mannlifs. En nafn Niels Pedersen stendur við hlið stærstu nafna jazzheimsins, þrátt Gítarleikarinn úrFocus Philip Catherine er fæddur i London, af belgísku faðerni. Þar sleit hann barnsskónum, en ól síðan manninn I Belgiu. Hin frábæra snilld hans sem gltarleikara kom fljótt I Ijós. Um hann hefur margt verið sagt, en þó er mesta hrósið líklega að hann skuli oft nefndur „hinn ungi Django Reinhardt”. Hann lék með Jean Luc Ponty, Mike Gibb og John McLaughlin m.a. áður en hann tók sæti Jan Akkerman I hollenzku hljóm- sveitinni Focus árið 1974. Þá um leið varð hann heimsfrægur. Lék hann inn á hljómplötuna Mother Focus með Tríó Niels-Henning 0rsted Pedersen. Anthony Braxton svo einhverjir séu nefndir. Niels lék um tima með kvartett Sonny Rollins, hljómsveit Count Basie og hann leikur enn stöku sinnum meðöscari Peterson. Einn virtasti bassaleikari heims Niels-Henning er einn virtasti bassaleikari veraldar. Ýmsir af þekkt- ustu jazzleikurum Bandaríkjanna hafa gengið hart að honum að starfa með hljómsveitum sínum. Count Basie sóttist mikið eftir honum og eins Oscar Peterson. Norman Granz producer og eigandi Pablo útgáfunnar notar Niels mikið á plötum sínum. Niels-Henning er fastráðinn hjá dönsku útvarps- fyrir að hann starfi nær eingöngu í Evrópu. Nú síðast kusu lesendur Melody Maker Niels jazzbassaleikara árins 1977. Þá er hann ávallt ofarlega á blaði gagnrýnenda jafnt sem áhuga- manna I kosningum I Bandarikjunum. Norman Granz hefur lýst þvi yfir að Niels sé vanvirtasti bassaleikari heims og að sér gremjist að fólk skuli ekki átta sig á hæfileikum hans. Og I bókinni „Jazz of the Seventies”, sem er nýjasta uppsláttarbókin um jazz, gefin út fyrir hálfu ári, segja þeir Leonard Feathers og Ira Gitler að Niels Pedersen sé besti bassaleikari heims. Það má geta þess að þessir tveir eru taldir einhverjir áreiðanlegustu jazzgagnrýnendur I heiminum. þeirri hljómsveit. Er gítarleikur hans á þeirri plötu stórgóður, þó að hún hafi farið framhjá mörgum aðdáendum Focus. Áður en Catherine tók sæti I Focus lék hann inn á tvær sólóplötur ásamt löndum sinum. Þær heita „September Man” og „Guitars”. Warner Brothers I Bandarlkjunum tóku svo efni af þessum tveimur plötum og gáfu út á einni. Nefnist hún „Nairam”. Bandarískir plötugagn- rýnendur urðu mjög hrifnir af gítar- leik Catherine á þessari plötu og spá honum frama þar I landi ef hann leggur leið sina þangað. Philip Catherine er jafnvigur á rokk . og jazz. Hann leikur jafnt á hljóm- gitara og rafmagnaöa gítara. Hann hefur nokkuð nýlega leikið inn á hljómplötur með Larry Coryell og bassaleikaranum Charles Mingus á plötunni „Three or Four Shades of Blue”. Trommarinn frá Herbie Hancock Billy Hart trommuleikari triósins er Bandaríkjamaðurinn I hópnum. Hann er negri, fæddur og uppalinn I frum- skógum stórborgarinnar New York. Þar ólst hann upp I miðpunkti jazzllfsins. Hann lék með ýmsum þekkt :m jazzleikurum áður en hann sló í gegn með sextetti Herbie Han- cocks árið 1970. Þessi hljómsveit starfaði á samvinnugrundvelli og er talin einhver merkasta hljómsveit þessa áratugs. Þar skipaði Billy Hart sér I röð fremstu jazztrommuleikara. Eru plöturnar „Mwandishi” og „Sextant” frægastar með þessari hljómsveit. Á þessum tíma tók hann sér afríska nafnið Jabali að fornafni og nefndist þá Jabali Billy Hart. Eftir að hann hætti I sextettinum fluttist hann til Evrópu og hefur m.a. leikið I hljóm sveit Stan Getz. Billy Hart er meðal litríkustu trommuleikara jazzheimsins og passar vel sem samleikari Niels- Henning og PhilipCatherine. Draumur sem rættist Þegar Niels Winther eigandi SteepleChase útgáfunnar spurði Niels- Henning hvernig hann mundi skipa i draumahljómsveit sína, sama hvað það kostaði, svaraði hann að bragði: „Philip Catherine á gítar og Billy Hart á trommur.” Þetta trió er því sú sveit sem Niels-Henning lét sig dreyma um. En nú er draumurinn orðinn að veruleika og gefst tslend- ingum kostur á að upplifa hann í Háskólabiói mánudagskvöldið 24. apríl kl. 21.15. Hljómsveitin hefur leikið inn á tvær hljómplötur og er önnur þeirra komin út hjá SteepleChase, en hin er væntan- leg næsta haust. Jónatan Garðarsson. Nóg að gera hjá Björgvini Halldórssyni Byrjaó á Brimklóaiplötu innan skamms — sólóplata verður tekin upp íjúní Eftir svo sem átta daga kemur út hjá Ariola hljómplötufyrirtækinu litil plata sem Björgvin Halldórsson fór utan til að syngja inn á á dögunum. Að sögn Björgvins átti platan að koma út 24. marz síðastliðinn en útkomunni var frestað vegna þess að fyrirtækið þurfti að koma á markaðinn laginu sem nota á fyrir Englands hönd I Eurovision ' söngvakeppninni marg- frægu. Aðallagið á plötu Björgvins er Casa- nova Jones eftir Magnús Sigmunds- son. Magnús syngur með Björgvin á plötunni auk Shady Owens. Saman nefnast þau Hot Ice. En það er fleira að gerast I hljóm- plötumálum Björgvins Halldórssonar en aðeins lltil plata á Englands- markað. Innan skamms — sennilega i næstu viku — hefjast upptökur á nýrri Brimklóarplötu. Að sögn Björgvins stendur til að Mark Dodson upptöku- maður I Ramport stúdióinu I London (einn hljómsveitarinnar Who) taki plötuna upp. Það veltur á þvl hvenær hann getur komið hingað til lands hvenær upptakan hefst. „Við erum búnir að velja öll lögin á nýju plötuna og erum að æfa þau þessa dagana,” sagði Björgvin. „Við stefnum að þvi að hafa plötuna létta og skemmtilega — dálítið líka pró- gramminu sem við höfum leikið I Sigtúni að undanförnu. Lík fyrri plötum Brimklóar? Ja, það er alltaf Gömlu SpencerDavis lögin saman á plötu Vonandi muna einhverjir, sem enn lesa poppsiður dagblaðanna, eftir hljómsveitinni Spencer Davis Group. Hún flosnaði upp árið 1967 eftir fjög- urra ára árangursrikt samstarf. Og nú á að taka öll frægustu lög hljómsveit- arinnar og setja þau á eina plötu. Það var fyrst i febrúar 1965 sem Spencer Davis Group náði einhverjum árangri á vinsældalista. Þá komst lag hljómsveitarinnar, Every Little Bit Hurts, inn á enska listann og hékk þar I neðstu sætunum um þriggja vikna skeið. 1 desember 1965 komst hljóm- sveitin aftur á móti á toppinn. Þá kom út lagið Keep On Running sem var á listanum I fjórtán vikur samtals. Keep On Running var ekki fyrr horfið af lista en næsta lag skauzt upp. Það var Somebody Help Me sem náði toppnum I apríl ’66 og var á lista j tiu vikur. Keep On Running og Some- body Help Me eru bæði eftir Jackie Edwards, söngvara frá Jamaica. Nú, I nóvember 1966 kom Spencer Davis Group þriðja laginu I fyrsta sæti enska vinsældalistans. Það nefnist Gimme Some Loving og var á listan- um I tólf vikur. Því var síðan fylgt eftir með laginu I’m A Man, lagi eftir Stevie Winwood söngvara og hljóm- borðsleikara Spencer Davis Group. Vegna..... ..plássleysis á poppsiðunni verður birting erlendujrinsældalist- anna að biða þar til á mánudag. Þá verður einnig fjallað um hljómleika Stranglers, sem óvist er um eins og stendur hvar verða haldnir. V Á ,, K Q,< rfe j .j Q I’m A Man var síðasta lagið sem hljómsveitin kom á vinsældalista. Stuttu eftir að það kom út hætti Stevie Winwood og stofnaði hljómsveitina Traffic. öll þessi fimm lög — Every Little Bit Hurts, Keep On Running, Some- body Help Me, Gimme Some Loving og I’m A Man — verða á samsafns- plötu Spencer Davis Group sem kemur á markaðinn 1. mai. Útgefandi éru Island-Records. Björgvin Halldórsson. hægt að heyra að það eru frumkvöðlar flutnings sveitatónlistar á tslandi sem eru á ferðinni.” Að sögn Björgvins er það hljóm- plötuútgáfan Steinar hf. sem gefur Brimklóarplötuna út. Sjálfur hefur hann gert samning við Hljómplötuút- gáfuna hf. um útgáfu á sólóplötu. „Sú plata verður tekin upp hér heima að hluta og einnig I Marquee stúdíóinu 1 London,” sagði Björgvin. „Um það bil helmingur laganna á plöt- unni verður erlendur og hin eftir mig og ýmsa aðra.” ÁT.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.