Dagblaðið - 29.04.1978, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978.
ÚTBOÐ
Framkvæmdanefnd um byggingu leigu- og
söluíbúða í Ólafsvík óskar eftir tilboðum í
byggingu fjölbýlishúss við Engihlíð, Ólafsvík.
Húsið verður þriggja hæða fjölbýlishús 242 m2
— 2258 m3, með 8 íbúðum. Skila á húsinu full-
frágengnu eigi síðar en 31. maí 1979.
Húsið er boðið út sem ein heild, en heimilt er
að bjóða í nokkra verkþætti þess sérstaklega.
Útboðsgögn verða til afhendingar á skrifstofu
Ólafsvíkurhrepps og hjá tæknideild Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins gegn kr. 20.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðum á að skila til skrifstofu Ólafsvíkur-
hrepps eigi síðar en mánudaginn 22. maí 1978
kl. 14.00 og verða þau opnuð að viðstöddum
bjóðendum.
Formaöur f ramkvœmdanof ndar um
byggingu leigu- og sökiibúða i Ólafsvík.
Alexander Stefánsson.
Fimleikakennari
óskast
Fimleikadeild íþróttafélagsins Gerplu í Kópa-
vogi óskar eftir að ráða fimleikaþjálfara nú
þegar til að annast þjálfun stúlknaflokka í
félaginu. Upplýsingar í síma 43065.
Aðalskoðun
f maí 1978
Þriðjudagur 2. maí R-18401—R-18800
Miðvikudagur 3. maí R-18801 — R-19200
Föstudagur 5. maí R-19201—R-19600
Mánudagur 8. mai R-19601—R-20000
Þriðjudagur 9. maí R-20001 — R-20400
Miðvikudagur 10. maí R-20401—R-20800
Fimmtudagur 11. maí R-20801 — R-21200
Föstudagur 12. maí R-21201 — R-21600
Þriðjudagur 16. maí R-21601 — R-22000
Miðvikudagur 17. maí R-22001—R-22400
Fimmtudagur 18. maí R-22401—R-22800
Föstudagur 19. maí R-22801—R-23200
Mánudagur 22. mai R-23201—R-23600
Þriðjudagur 23. maí R-23601—R-24000
Miðvikudagur 24. maí R-24001—R-24400
Fimmtudagur 25. maí R-24401—R-24800
Föstudagur 26. mat R-24801—R-25200
Mánudagur 29. maí R-25201—R-25600
Þriðjudagur 30. maí R-25601—R-26000
Miðvikudagur 31. maí R-26001—R-26400
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar
sínar til bifreiðaeftirlitsins, Bíldshöfða 8 og
verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga
kl. 08:00—16:00.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþfcgabyrgi
skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðannia leggja
fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki
fyrir því að bifreiðaskattur og vátryggfng fýrir
hverja bifreið séígildi.
Athygli skal vakin á því, að skráningarnúmer
skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn
sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og
bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar
næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavfk
26. apríl 1978.
Sigurjón Sigurðsson.
Slysavamakonur færðu
félagi sínu ræðustói
HátíðlegurafmælisfunduráGrandagarði
Aðalfundur Slysavarnafélags Islands
hófst í gær og var margt tll hátíðabrigða
vegna 50 ára afmælis félagsins. Var fyrst
hlýtt messu i Dómkirkjunni en síðan var
hátíðafundur i SVFÍ-húsinu á Granda-
garði. Þar sátu undir kaffiborðum um
I75 manns. Þar voru 130 fulltrúar á
aðalfundi félagsins, fjöldi gamalla bar-
áttumanna og kvenna í félagsstarfinu og
ýmsir gestir, m.a. sjávarútvegsráðherra,
borgarstjóri, lögreglustjóri, siglinga-
málastjóri, póst- og símamálastjóri o.fl.
í upphafi fundar afhenti Hulda Sigur-
jónsdóttir varaforseti sambandsins og
formaður Hraunprýði i Hafnarfirði
félaginu forkunnarfagran ræðustól að
gjöf. Mælti hún fyrir munn allra slysa-
varnakvenna á landinu sem standa að
gjöfinni. Hafa konur löngum verið
Slysavarnafélaginu máttarstoð sem
landsfrægt er.
SVFl-fundurinn stendur yfir helgina.
Á morgun fer þingheimur til Bessastaða
Gunnar Friðriksson forseti SVFÍ flytur ræðu í nýja rxðustólnum sem slysavarna-
konur um land allt færðu félaginu i afmælisgjöf.
Hulda Sigurjónsdóttir hefur orð fýrir slysavarnakonum um land allt sem gáfu ræðu-
stólinn. Með henni eru frá vinstri Sigrún Pálsdóttir Húsavik, Ingibjörg Guðmunds-
dóttir Höfn og Hulda Viktorsdóttir Reykjavik.
í boði forsetahjónanna en forsetinn er
verndari félagsins.
Síðdegis á sunnudaginn verður ferð-
azt til Hafnarfjarðar og Sandgerðis. I
Sandgerði verður skoðuð ný og fullkom-
in björgunarstöð en hún er eign Sigur-
vonar, fyrstu slysavarnadeildar á
landinu. Verður deildin 50 ára á þessu
ári — eins og félagið — og á afmælinu
verður stöðin vígð.
Mikill hugur er i slysavarnafólki um
land allt á þessu merkisári í sögu félags-
ins.
- ASt.
Alþýðuflokkurinn
íMosfellssveit:
Senda sjálf-
Séð yfir þéttskipaðan fundarsalinn á hátíðaaðalfundinum.
KUPPINGAR!—KUPPINGAR!
B
L
r
A
S
T
U
R
Hárgreiðslustofa Steinu ogDódó
Sími24616 — Laugaveg 18— Sími24616
Alþýðuflokkurinn býður sjálfstætt
fram til hreppsnefndarkosninga í
Mosfellshreppi að þessu sinni. I siðustu
kosningum voru aðeins tveir listar þar,
listi sjálfstæðismanna og listi vinstri
manna og óháðra.
I efsta sæti lista Alþýðuflokks er
Guðmundur Sigurþórsson deildarstjóri.
2. Kristján Þorgeirsson skrifstofumaður,
3. Bryndís Óskarsdóttir húsmóðir, 4.
Hreinn Ólafsson bóndi, 5. Reynir Huga-
son verkfræðingur, 6. Gréta Aðalsteins-
dóttir hjúkrunarfræðingur, 7. Hreinn
Þorvaldsson byggingarstjóri, 8. Margrét
Þóra Baldursdóttir skrifstofumaður, 9.
Guðjón Haraldsson verktaki, 10.
Kristjana Jessen húsmóðir, 12. Guðrún
Ólafsdóttir húsmóðir, 13. Ragnheiður
Ríkarðsdóttir húsmóðir og 14.
Guðbjörg Pálsdóttir sjúkraliði.
1 hreppsnefnd i Mosfellssveit sitja 7
menn.
DS
Sjálfkjöríð
á Eyrarbakka:
Aðeins einn
óháður listi
Eyrbekkingar gera nú allnýstárlega
tilraun i stjórnmálum. Hjá þeim var
aðeins einn listi i framboði í hrepps-
nefndarkosningum og er hann þar af
leiðandi sjálfkjörinn. Á listanum eru
menn úr öllum flokkum og einnig menn
sem ekki hafa skipað sér á ákveðna
flokka áður. Tveir af mönnunum hafa
áður setið i hreppsnefnd, Kjartan
Guðjónsson og Bjarnfinnur Ragnar
Jónsson.
Aðrir í hreppsnefnd verða þá Þór
Hagalín, Guðrún Thorarensen, Kristján
Gíslason, Magnús Karel Hannesson og
Valdimar Sigurjónsson.
DS