Dagblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRlL 1978. Ferðamálaráð og Evrópa okkar EFNA TIL SAMKEPPNIUM HÚSA- OG UMHVERFISVERND Hin síðari árin hefur áhugi manna um. víéa veröld beinzt mjög að varðveizlu og endurbótum á byggingar- og náttúruarf- leifð. Samtökin Evropa Nostra hafa það að markmiði að vinna að þessum málum og nýlega kom út bók hjá stofnuninni, Arfleifð Evrópu i haettu, gefin út i sam- vinnu við Kodak-fyrirtækið. Nú hefur Ferðamálaráð Islands og samtökin Evropa Nostra eða Evrópa okkar, eins og það heitir á islenzku, hafið samkeppni meðal þeirra sem unnið hafa að varðveizlu og endurbótum byggingar- og náttúruarfleifðar Evrópu. Dómnefnd skipuð af Ferðamálaráði mun veita sérstaka viðurkenningu einum íslenzku þátttakendanna en verk- lýsingar keppenda verða sendar höfuð- stöðvum Evropa Nostra. Viðurkenning Ferðamálaráðs verður veitt 1. júli nk. en Evropa Nostra í september nk. i Hamborg. 1 verklýsingu, sem Ferðamálaráð hefur gefið út, segir að skipta megi henni i nokkra flokka, s.s. endurgerð gamalla bygginga þar sem myndir sýna „fyrir”' og „eftir” nýbyggingar sem falla vel að umhverfi, gamlar byggingar til nýrra nota, lýti sem rutt var úr vegi, flóðlýstar byggingar, torg, brýr, garða. bilastaeði, göngusvæði, endurbætt umhverfi í gömlum borgum, notkun málningar til að bæta umhverfi í þéttbýli og aðgerðir til að vernda fögur náttúrusvæði gegn byggingaráætlun, sem stinga mundi í stúf við umhverfið. Nánar getur Ferðamálaráð greint þeim sem áhuga hafa frá þátttökuskil- yrðum og tilhögun allri og þar liggja frammi keppniseyðublöð. .IBP Brezka rfkisstjórnin hugðist reisa húsið á neðri myndinni og rifa hin gömlu sem enn gleðja augu Lundúnabúa vegna almennra mðtmæla gegn hinni nýju byggingu. íslands Nýir nemendur verða teknir inn í skólann 4. september 1978 og 8. janúar 1979. Umsóknar- frestur er til 10. janúar næstkomandi. Umsóknareyðublöð og upplýsingar er að fá í skólanum. Skólastjóri. Námskeið f skyndihjálp verður haldið vikuna 8.—13. maí næstkomandi í húsakynnum Bifreiðaeftirlits ríkisins, Dugguvogi 2 kl. 20—22. Leiðbein- andi verður Sigurlína Daviðsdóttir. Öllum heimil þátttaka. Þátttökugjald kr. 3.000. Skráningar og upplýsingar á skrifstofu FÍB til 5. maí næstkomandi. Félag íslenzkra brf reiðaeigenda Skúlagötu 51. Simi 29999. BYGGUNG Kópavogi Framhaldsaðalfundur verður haldinn laugardaginn 3. júní 1978. Nánar auglýst síðar. Stjórnin Kosningaskrifstofa A-listans f Garðabæ Skrifstofa A-listans í Garðabæ að Garðaflöt 23 er opin alla virka daga kl. 20,30 til 22,30 nema laugardaga kl. 14 til 18. Hafið samband við skrifstofuna, síminn er 42244. Nýir félagar velkomnir til starfa. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla bæjarstjórnakosning- anna hefst á morgun 30. april. Kosningaskrifstofan aðstoðar þá, sem þess óska. Verið velkomin til starfa! A-listinn í Garðabæ. Alþjóðleg bílasýning í Sýningahöllinni aó Bíldshöfóa sýnigunni lýkur á morgun opið frá 17— til 22— nema laugard. og sunnud. frá 14— til 22— Símar sýningarstjórnar: 83596 og 83567 (

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.