Dagblaðið - 29.04.1978, Side 6

Dagblaðið - 29.04.1978, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978. Laus staða Staða fulltrúa I Menntamálaráðuncytinu er laus til umsóknar. Aðalstarf skv. 10. gr. laga nr. 50/1976: „Menntamálaráðuneytið fer með málefni almenningsbókasafna. Sérstakur fulltrúi l ráðu- neytinu annast málefni safnanna og skal að öðru jöfnu ráða eða skipa I það starf bókasafns- fræðing með reynslu í starfi”. Samkvæmt 5. gr. reglugerðar um almenningsbókasöfn frá 7J. 1978 skal hann ennfremur m.a. fjalla um málefni skólabókasafna. Laun samkvæmt launakerfí starfsmanna rikisins. Umsóknir með upplýsingum um mcnntun og starfsreynslu sendist Menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 24. maí nk. Menntamálaráðuneytið, 24. apríl 1978. Verzlunarfólk — Suðurnesjum Orlofshús Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í orlofshúsum V.S. í Ölfusborgum og Svigna- skarði, á skrifstofu félagsins að Hafnargötu 16, frá og með þriðjudeginum 2. maí Þeir sem ekki hafa dvalið í húsunum áður hafa forgang til 10. maí. Vikuleigan greiðist við pöntun, krónur 12 þúsund. Verzlunarmannafélag Suðurnesja Fasteignasalan EIGNABORG sf Hamraborg Kóngsbakki 2ja herb. 47 ferm góð ibúö. Verð 8 millj. Efstihjalli 2ja herb. íbúö, 65 ferm, vönduö innrétting. Verö 8 1/2 millj. Efstaland 2ja herbergja 50 fcrm góö íbúö. Verö 8 1/2 millj. Kópavogsbraut 2ja herb. 80 ferm. Verö 7,5 millj. Þinghólsbraut 3ja herbergja 96 ferm, bílskúrsrétt- ur. Verö 11.5-12 millj. Holtagerði 3ja herb. 80 fcrm í tvíbýlishúsi, efri hæö, bílskúr. Verð 13 millj. Víðihvammur 3ja herb. 95 ferm í tvíbýlishúsi, jarðhæð, þarfnast viðgerðar. Verð9,5 millj. Borgarholtsbraut 3ja herbergja glæsileg neöri hæð i tvibýli, 90 ferm — jarðhús fylgir. Verö 13.5 millj. Ásbraut 3ja herb. 95 ferm bilskúr í fjölbýlis- húsi, góöíbúð. Verð 12 millj. Ásbraut 4ra herb. 102 ferm í fjölbýlishúsi. Verð 14 millj. Álfhólsvegur 4ra herb. íbúö, 90 ferm, jaröhæð. Vcrö 12 millj. Hlégerði 4ra herb. 100 ferm sérhæð I þribýiishúsi, bílskúrsréttur. Verð 14.5 millj. Asparfell Ira herb. 124 ferm stórglæsileg íbúð. Verð 14.5 millj. eða skipti á einbýli. Kópavogur Smiðjuvegur ca. 400 fm iðnaðarhúsnæði til leigu. Teikningar á skrifstofunni. Hlíðarvegur 3ja herb. 75 fm. Verð 10.000.000.- Þarfnast lagfæringar. - Símar 43466 - 43805 Grenigrund 5 herb. 100 ferm raðhús í eldra húsi. Verð 12 millj. Stigahlíð 5 herb. ibúð I fjölbýlishúsi ca 140 ferm á 4. hæð. Góðar geymslur yfir Ibúðinni. Glæsileg eign. Verö 18 millj. Álfhólsvegur 5 herb., 125 ferm góð jarðhæð í þrí býlishúsi. Verö 14 millj. Bjarnhólastígur Forskallað einbýlishús, 7 herb. Verð 14 millj. Hlíðarvegur Erfðafestuland 10 þús. ferm, 80 ferm ibúðarhús er á landinu. Verð 15 millj. Sumarbústaður norðaustan við Þingvallavatn. Verð 2,5 millj. Engjasel Fokhelt raðhús, múrhúðað að utan, gler i gluggum, einangrun og ofnar fylgja, ca 210 ferm. Verð 14,5 millj. Seljabraut 2 st. fokhelt raðhús, múrhúðað að utan, gler í giuggum, jöfnuð lóð. Verð 12 millj., útb. 7 millj. Kópavogur Iðnaðarhúsgrunnur, 450 ferm stevpt plata, góð lóð. Uppl. á skrif- stofunni. Garðabær Stórglæsilegt einbýlishús á Markarflöt, ca 200 ferm með bílskúr, skipti möguleg á sérhæð eða minna einbýlishúsi. Auðbrekka Iðnaðarhúsnæði á efri hæð, 100 ferm fullfrágengið. Verð 10 millj. Hveragerði 76 ferm raðhús nýtt úr steinsteypu á einni hæð. Verð 8 millj. Útb. 5 millj. Grundarfjörður 5 herb. ibúð við Hlíðarveg 105 ferm. Verð 14 millj. Vilhjálmur Einarsson sölustjóri. Pétur Einarsson lögfræðingur. hálfan milljarð „Verkmenntaskólarnir eru sveltir fjárhagslega þvi einblínt er á háan stofn- kostnað. Gleymist þá að taka tillit til þeirra verðmæta sem viðkomandi starfs- grein skapar. Byggingariðnaðurinn veltir árlega um 60 milljörðum en þó þykir ekki fært að stofna fullkomna byggingadeild fyrir hálfan milljarð.” Þetta kom fram meðal annars I erindum sem flutt voru á ráðstefnu um verkmenntunarmál sem haldin var ný- lega fyrir tilstuðlan Sambands iðnskóla á íslandi í Iðnskólanum í Reykjavík. Var tilgangurinn að vekja athygli á stöðu verkmenntunar og finna ráð til þess að auka hana og bæta þannig að hún veki meiri áhuga hjá ungmennum þegar þau velja sér framtíðarstarf. Hundrað og sjötíu manns sóttu ráð- stefnuna, kennarar og nemendur verk- menntaskóla víða að af landinu og fjöldi fulltrúa frá hinum almennu bóknáms- skólum á framhaldsskólastigum og æðri skólum. Þá sóttu einnig ráðstefnuna fulltrúar úr atvinnulífinu og ráðuneyt- um. Á ráðstefnunni voru fjórtán frum- mælendur sem ræddu forsögu verk- menntunar, stöðu hennar I dag, áform menntamálaráðuneytisins og að hverju beri að stefna i framtiðinni. Kom fram sem lausn til þess að ná jafnrétti á við almenna bóknámsskóla og til að leysa vandamál dreifbýlisins aðallt framhaldsskólastigið yrði rikisrekið og ríkið ætti frumkvæðið um staðsetningu og stærð skólanna, en þó þannig að stjórnun fari fram að miklu leytf i héraði. Einnig kom fram að til þess að verk- menntun höfði til ungs fólks þarf að gera henni jafnhátt undir höfði og annarri menntun. Einnig kom fram að hugar- farsbreýting gagnvart verkmenntun hefur orðið á undanförnum árum. Lögð var á það áherzla á ráðstefnunni að allir eigi jafnan rétt til menntunar og ekki megi gleyma þeim stóra hópi sem vegna einhvers konar örorku þurfi á sérstakri aðstöðu að halda bæði í námi og starfi. Samband iðnskóla á Islandi var Þeir sem unnu að ráðstefnuhaldinu á vegum Sambands iðnskóla á tslandi, talið frá vinstri: Þórarinn B. Gunnarsson framkvæmdastjóri sambandsins, Pálmar Ólason kennari viðFjölbrautaskólanni Breiðholti, Guðmundur Hjálmarsson kennari við Iðn- skólann i Hafnarfirði og Skjöldur Vatnar Björnsson iðnskólakennari úr Reykjavik. Meðal ráðstefnugesta var fjöldi fulltrúa frá hinum almennu bóknámsskólum á fram- haldsskólastiginu og kennarar og nemendur verkmenntaskóla viðs vegar að af land- inu. Margir nemendur úr verknáms- og bóknámsskólum sóttu ráðstefnuna. stofnað árið 1948 og er félagslegt sam- band iðnskólanna í landinu. Síðar gengu fjölbrautaskólarnir í sambandið. Þannig er sambandið nú félagslegur vettvangur allra skóla á iðnfræðslustigi i landinu. Sambandið rekur útgáfustarfsemi um námsefni fyrir iðnfræðslustigið og rekur verzlun sem dreifir námsefni og kennslu- gögnum til iðnfræðsluskólanna. Formaður sambandsins er Þór Sandholt skólastjóri og setti hann ráðstefnuna. Framkvæmdastjóri sambandsins er Þórarinn B. Gunnarsson. - A.Bj. Byggingariðnaðurinn í landinu: VELTIR 60 MILUÖRÐUM KRÓNA Á ÁRIHVERJU — en samt er horft í að stof na byggingadeild fyrir Stranglershljómleikarnir: Forsalan gengur samkvæmt vonum Alls munu nú vera um þúsund miðar seldir að hljómleikum Stranglers, Poker, Þursaflokksins og Halla og Ladda. Forsala miða hófst á ellefu stöðum síðastliðinn miðvikudag og gengur samkvæmt vonum, að sögn aðstandenda hljómleikanna. Stranglers koma til landsins um miðjan dag á þriðjudaginn og skoða þá meðal annars Hljóðrita og halda blaðamannafund fyrir íslenzku blöðin. Um kvöldið bregða þeir sér á dansleik i Klúbbnum. — Þar gefst fólki kostur á að líta gripina augum í fyrsta skipti. Forsala aðgöngumiða fer fram á sjö stöðum í Reykjavik. Þeir eru verzlanir Karnabæjar í Austurstræti, Laugavegi 66 og Glæsibæ. Verzlanir Fálkans Suðurlandsbraut 8, Laugavegi 24 og í Vesturveri og loks í Skifunni, Lauga- vegi 33. Þá fást miðar í Fatavali I Kefjavfk, Eplinu á Akranesi.verzluninni Cesar á Akureyri og I Eyjabæ i Vestmannaeyj- um. - ÁT - Albert Björgvin BYGGUNG REYKJAVIK Aðalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 30. apríl kl. 14 að Hótel Esju. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kynnt verður kostnaðaráætlun fyrir byggingarhópa tvö og þrjú. Gestir fundarins verða borgarfulltrúarnir: Albert Guðmundsson, Björgvin Guðmundsson og Markús örn Antonsson. Stjórnin

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.