Dagblaðið - 29.04.1978, Side 12

Dagblaðið - 29.04.1978, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978. UMHVERFIS JÖRÐINA Á 30 DÖGUM MEÐ DB Róm FORNAR RUSTIR ROMARI OG HINIR LÍFSGLÖÐU ÍTAI Þotan frá Alitalia-flugfélaginu þeytist eftir flugbraut á Heathrow-vellinum við Lundúnir. Hestöflin eru þanin til hins ýtrasta. Vélin losar tengslin við brezka grund — og nú teljum við að 30 daga hnattferðin okkar sé hafin fyrir alvöru. Flugið til Rómaborgar stendur ekki lengi. Eftir að búið er að stjana við okkur í tvo klukkutíma segir flugstjórinn okkur með sínum skemmtilega italska syngjandi hreimi að veriðsé að undirbúa lendingu í Róm. Þegar stigið er út úr flugvélinni andar á móti okkur volg golan utan af Miðjarðarhafinu. Hér verður gott að dvelja næstu tvo dagana. Já, vel á minnzt, veðrið heima var nú hálfónota- legt og beit i kinnarnar. Á flugvellinum spígspora flugvallar- starfsmenn á stuttermaskyrtum, raul- andi eða blístrandi, og farþegahópar ganga i léttu skapi milli véla og hinnar skemmtilegu flugstöðvar í Fiumico. Já, ítalir eru sannarlega glaðværir menn, enda þótt þeir séu löngu heillum horfnir sem heimsveldi. Þessi borg, sem við munum brátt lita augum, er óvenjuleg um margt. Hér stóð fyrir mörgum öldum mesta stór- veldi heimsins. Byggingar sýna það og sanna margar hverjar hvílikt veldi hefur verið á Rómverjum hinum fornu. Tvö þúsund árum síðar lesum við aðallega um Rómverjana í bókmenntunum um Ástrík hinn gallvaska. En hér fáum við semsé staðfestinguna. En fegurð og töfrar Rómaborgar liggja ekki eingöngu í hinni fornu frægð. íbúarnir eru einstaklega kátir og lifs- glaðir.Hvar í veröldinni mundirðu geta boðið lögregluþjóni inn á veitingahús og rætt við hann í klukkutíma um alla heima og geima yfir góðu glasi af ísköldum bjór? Það hefur undirritaður upplifað — en það mundi trauðla gerast nema í „borginni eilífu”. Og fari maginn að gerast tómur eru veitingastofur á hverju götuhorni. Og þar færðu pizza og spagetti eins og það á að vera. Enginn veitingastaður er þar til svo aumur að geta ekki boðið upp á glas af léttu víni fyrir lítið fé með matnum (að vísu þekkist slíkt aðeins heima á tslandi). t Róm verðum við að útbúa lista yfir það sem við viljum skoða. Þar er hægt að vera vikum saman og skoða mark- verða hluti án þess að komast nokkurn tíma til botns. En eflaust munum við heimsækja Vatíkanið og freista þess að sjá páfa eða hans mönnum bregða fyrir. Péturskirkjan er einstakt listaverk og innan dyra er margt að sjá fyrir íslend- inga sem ekki eru vanir stórbrotnu kristnihaldi. Katakomburnar skoða menn ugg- laust. Þar eru hin fornu fylgsni kristinna manna í Róm, en I Rómaborg stendur vagga kristinnar kirkju. Colosseum- hringleikahúsið er þó líklega það mann- virki frá gömlum dögum Rómaríkis er ferðamenn kannast hvað bezt við. Þegar við erum búin að skoða nægju okkar og setjumst inn á einhverja þessara litlu og notalegu veitingastaða gæti einhverjum komið i hug að „Róm var ekki byggð á einum degi”. Borgin er bókstaflega fleytifull af minningum um forna dýrðardaga og frumbernsku kristninnar en inn I milli er hið Ijúfa ítalska nútíma- líf eins og bragðgott krydd. Dagarnir okkar i Rómaborg eru bara tveir. Og einu má lofa: Þeir dagar liða allt of fljótt og við verðum að gæta þess vel að nota okkur hverja sekúndu til hins ýtrasta. En hvað um það við látum einkafararstjórann okkar frá Sunnu sjá um að við sjáum sem flest og mark- verðast. Á morgum munum við aka sem leið liggur út á flugvöll og þá yfirgefum við Eg er að plata ég hef ekkert ð vera í bungum bönkum Hugsa. Hugleiða. Heeehee Hugsa. Thihii Hoohoo Haha haha

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.