Dagblaðið - 29.04.1978, Side 23

Dagblaðið - 29.04.1978, Side 23
23 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRlL 1978. I Útvarp Sjónvarp Sjónvarp á sunnudag kl. 21.20: Söngvakeppni sjónvarps- stöðva í Evrópu 1978 Eins og eflaust flestir vita núoröið fór söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu 1978 fram i París 22. april sl. í sjónvarpinu annað kvöld, sunnu- dagskvöld, kl. 21.20 fáum við að sjá þennan þátt sem alltaf er jafnvinsæll og hefur orðið mörgum söngvurum góð lyftistöng upp á stjörnuhimininn. Eða hver kannast ekki við ABBAæðið sem einmitt á upptök sin í slikum þætti. Þátttakendur eru frá 20 löndum og hafa þeir vafalaust allir lagt sig eins mikið fram og þeim var unnt, enda ekki hverjum sem er boðið að taka þátt i þess- ari keppni. í fyrra fóru Frakkar með sigur af hólmi í keppninni með laginu um barnið og fuglinn. Að þessu sinni voru það ísra- elsmenn sem héldu heim með sigurverð- launin og væntanlega einnig heims- frægð að auki. ísraelska hljómsveitin ber nafnið Alpha-Beta, sem margir kannast einnig við úr íslenzka poppheiminum, og flutti lagið „A-ba-ni-bi”, en söngvari hljómsveitarinnar er Izhar Cohen. Lagið er eftir Nurit Hirsh og stjórnar hann jafnframt hljómsveitinni. Flestir þátttakenda eru lítt sem ekkert þekktir utan heimalands síns. Þó bregður fyrir nöfnum sem flestir kann- ast við, svo sem Baccara og Mabel, en hljómsveitin Mabel er sögð hafa náð nokkrum vinsældum I Þýzkalandi, auk þess sem hún er það allra bezta sem fyrirfinnst í augum danskra unglinga um þessar mundir. Þýðandi er Ragna Ragnars en þáttur- inn, sem er tveggja klukkustunda langur, erí litum. - RK Hljómsveitin Alpha-Beta bar sigur úr býtum i söngvakeppninni ng er söngvari peirra Izhar Cohen. Útvarpá mánudag: ÚTVARPSDAGSKRÁIN Á HÁTÍÐISDEGIVERKALÝÐSINS Mánudaginn 1. maí er hátíðisdagur verkalýðsins og í tilefni dagsins fjalla mörg dagskráratriði útvarpsins um verkalýðsmál. Má fyrst nefna tónleika sem verða kl. 13.05. Á þeim tónleikum verður flutt Sóíeyjarkvæði eftir Jóhannes úr Kötlum við tónlist eftir Pétur Pálsson. Margir kannast við þetta ágæta kvæði og hefur ' það verið gefið út á hljómplötu. Eyvind- ur Erlendsson- mun stjórna flutningi lesara og söngvara. Þá verða einnig á þessum tónleikum flutt lög og Ijóð Kjart- ans Ragnarssonar úr Saumastofunni og eru það félagar úr Leikfélagi Reykja- vikur sem syngja. Eins og öllum ætti að vera kunnugt hefur þetta vinsæla leikrit Kjartans verið sýnt i nærri því þrjú ár og standa sýningar enn og alltaf er uppselt. Segir leikritið frá „stúlkum á öllum aldri” sem vinna á sömu saumastofunni og segja hver annarri ævisögu sína. Að tónleikunum loknum kl. 14.25 verður útvarpað frá hátíðahöldum, verkalýðsfélaganna í Reykjavík á Lækjartorgi. Verða ræður fluttar og tón- list leikin. Meðal annars munu Lúðra- sveitin Svanur og Lúðrasveit verka- lýðsins flytja nokkur lög. Kl. 15.30 mun síðan Alþýðukórinn undir stjórn dr. Hallgrims Helgasonar flytja nokkur lög. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir., for- maður starfsstúlknafélagsins Sóknar, 1. mai flykkjast jafnt ungir sem aldnir til hátiðahalds i tilefni dagsins. mun tala um daginn og veginn kl. 19.40. Sagðist Aðalheiður fyrsi og fremst ætla að fjalla um verkalýðsmál og hverju verkalýðshreyfingin hefur áorkað. Einnig mun hún fjalla um uppbyggingu hreyfingarinnar. Þá ætlar Aðalheiður að tala um leigjendamál. Mun hún þá minnast á stofnun leigjendafélags og einnig ætlar hún að fjalla um þau sál- rænu vandamál sem börn eiga við að striða þegar þau eru á sifelldum þeytingi milli hverfa og skóla. en þessi vandamál koma einmitt oft upp hjá þvi fólki sem er háð leiguhúsnæði hverju sínni. Að síðustu mun Aðalheiður fjalla um jafn- réttismál. Um fræðsluntál verkalýðshreyfingar- innar nefnist þáttur er Hjalti Jón Sveins- son sér um og hefst hann kl. 20.50. Sagðist Hjalti ætla að fjalla vítt og breitt urn fræðslumál verkalýðshreyfing- arinnar. Einnig ræðir hann um virkni félaganna í verkalýðsfélögum. Mun hann ræða við þau Tryggva Þór Aðal- steinsson fræðslufulltrúa MFA, Stefaníu Traustadóttur. en hún vinnur hjá Sjómannasambandinu, og Dag- björtu Sigurðárdóttur formann Verka- lýðsfélags Stokkseyrar. Inn i þessar um- ræður verður fléttað viðtölum við verka- fólk. - RK Sjónvarpá mánudagskvöld: Staða verkalýðshreyfingarinnar GUÐLAUGUR HÁSKÓLA- REKTOR RÆÐIR VIÐ MENN ÚR VERKALÝÐS- HREYFINGUNNI Með mér í þættinum verða þrír menn. Þeir Eðvarð Sigurðsson, Björn Þórhalls- son og Guðríður Elíasdóttir. I Síðan verður einnig skotið inn viðtölúm við fleiri menn úr verkalýðshreyfingunni sem tekin verða utan sjónvarpsins,” sagði Guðlaugur Þorvaldsson háskóla- rektor. Guðlaugur stjórnar umræðum um stöðu verkalýðshreyfingarinnar i sjónvarpssal á mánudagskvöldið, 1. maí, kiukkan 20.45. Er þátturinn í beinni út- sendingu. „Við skiptum þessu í svona þrjá hluta. Fyrst verður rætt um sögu verka- lýðshreyfingarinnar og hverju hún hefur áorkað og hváð henni hefur mistekizt í gegnum árin. Síðan koma viðtölin við fólkið sem ekki er í sjónvarpssal. Þá verður staðan í dag rædd og hver séu helztu einkenni verkalýðsbaráttunnar núna. Að síðustu reynum við svo að horfa aðeins fram á við i Ijósi þeirra stað- reynda sem við höfum um fortið og .nútíð. Við ræðum hver séu brýnustu verkefnin fyrir verkalýðsþreyfinguna og hvernig þeim verði bezt náð,” sagði Guðlaugur. DS OPHÐ VIRKA DAGA FRÁ 9-21 UM HELGAR FRÁ 13—17 Jörð til sölu I Ölfusi, 54 ha land, íbúðarhús byggt 1962, 100 hesta hlaða, 30 kúa fjós, ræktað land 15—20 ha, en góðir ræktunarmöguleikar á hinu. Verð 25-26 m. Bif reiða- og vélaverkstæði 100 km fráReykjavík 380 fm mjög gott verkstæðishús, sér sprautaðstaða, 2ja hæða íbúðarhús, geta verið tvær íbúðir. 2 ha ræktað land. Mikið af verkfær- um fylgir. Verð 25-27 m. Mögu- leikar á skiptum á góðri eign á Reykjavikursvæði + Hafnarftrði. Þorlákshöfn einbýli 2x132 fm 4 svefnherbergi + 2 stofur, 35 fm bilskúr á jarðhæð. Lika á jarðhæð 30-40 fm verzlunaraðstaða, húsið er byggt 1972. Verð 16-17 m. Útb. tilboð. Til greina koma skipti á sérhæð eða einbýli á Húsavik. Neskaupstaður einbýli hæð og ris, 7 herb. íbúð + lítil ibúð í kjallara sem getur fylgt með. Alls konar skipti koma til greina á íbúð í Reykjavík. IAkranes, einbýli Hæð og ris, 3ja herb. íbúð á neðri hæð. Einnig getur verið önnur íbúð i risi. Bilskúr. Verð tilboð útb. 6 millj. Þórshöfn Langanesi einbýli 2ja ára hús 136 fm. 5 svefnherbergi + 2 stofur, 35 fm. bilskúr. Skipti koma til greina á 4-6 herb. íbúð i Kópavogi eða Hafnarfirði, má vera i eldra húsi. Mjög mikil atvinna cr á Þórshöfn. 3ja herb. íbúð Háakinn Hafnarfirði 87 fm nettó Mjög góð 3ja herb. íbúð. Laus 10. júní, 1/2 bilskúr. Útb. 6,5-7 m. Auðbrekka Kópavogi einbýli Húsið er á 2 hæðum. Neðri hæð bílskúr, geymslur o.fl. Á efri hæð 3 svefnherbergi, stofa, eldhús og bað. Fallegt hús og gott, mjög stór og góður garður. Skipti koma til ;rcina á raðhúsi/einbýli með góðri stofu i austurbæ, Kópavogi eða Fossvogi, góðar milligreiðslur. Grenimelur glæsileg sérhæð 4 svefnherbergi + húsbóndaher- bergi, 2 stofur, 35 fm bílskúr. Ein glæsilegasta sérhæð á markaðnum i dag. Einnig 2ja herb. góð ibúð í kjallara sem selst sér eða saman. Verð tilboð. Bleikargróf einbýli samþykkt teikning fyrir stækkun. Teikningar á skrifstofunni. Hag- stætt verð ef samið er strax. Höfum fjársterka kaupendur að góðum sérhæðum með bílskúr. Höfum fjársterkan kaupanda að 2-3ja herb. góðri ibúð i eldri bænum. ■ EIGNANAUST Laugavegi 96 (við Stjörnubíó) Sími 2 95 55 SÖLUM.: Hjtírtur Gunnarsson, Lárus Hel^ason. Sigrún Kröver LÖGM.:Svanu1* Þór Vjlhiálm$$on hdl Saab 99 combi coupé árg. '75, blár, til sölu, ekinn 50 þús. km. Uppl. ísíma 20383. Samfylking 1. maí kröfugöngu, útifundi, kvöldskemmtun á 1. maí. Safnast verður saman á Hlemmi kl. 13.00, gengið niður Laugaveg. Útifundur á bílaplaninu á mótum Tjarnargötu og Vonarstrætis: Brynja Óskarsdóttir verkakona flytur ræðu, fulltrúi þjóðfrelsishreyfinganna í Eritreu flytur ávarp, Sigurður Skúlason leikari les ljóð. Innifundur í Tjarnarbúð á eftir: Ræður flytja Einar Gunnarsson, form. Fél. járniðnaðarnema og Helga Gunnarsdóttir félagsráðgjafi; stuttir leikþættir undir stjórn Arnars Jónssonar, sönghópur og fjöldasöngur. Skemmtun kl. 20.30 í Félagsheimili Fóstbræðra, Langholtsvegi 109: dans, ýmis skemmtiatriði m.a. Kór alþýðumenningar. SAMFYLXING 1.MAI Eining á grundvelli stéttabarðttu! gengst fyrir

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.