Dagblaðið - 31.05.1978, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
Skuttogarinn Runólfur
á hliðina í slipp
— tíð óhöpp hjá Slippfélaginu í
Reykjavík er skip hallast við
uppsetningu
Skuttogarinn Runólfur SH-135 frá
Grundarfirði skemmdist nokkuð er
hann var tekinn í slipp hjá Slippfélag-
inu i Reykjavík á miðvikudaginn.
Samkvæmt upplýsingum Þórarins
Sveinssonar framkvæmdastjóra Slipp-
félagsins hallaðist togarinn í vagn-
inum með þeim afleiðingum að botn
skipsins dældaðist og gat kom á botn-
lank.
Óhöpp sem þessi hafa verið nokkuð
tíð hjá Slippfélaginu á undanförnum
árum og var Þórarinn spurður að þvi
hvort tæki Slippfélagsins væru orðin
úr sér gengin en hann sagði svo ekki
vera. Atvikin yrðu fremur að flokka
undir óhöpp.
Guðmundur Runólfsson útgerðar-
maður í Grundarfirði, eigandi togar-
ans, sagði að skipið hefði verið tekið í
slipp vegna leka með skrúfuhaus.
Guðmundur sagði að þvi miður væri
sú tækni sem notuð væri í þessari
þjónustu við flotann orðin úrelt og
endurbætur litlar. Vegna óhappsins
hefði margt fólk misst atvinnu sina um
stund í Hraðfrystihúsinu. „En við
tökum þessu. Útgerð togarans hefur
gengið mjög vel og búast má við þvi að
alltaf verði einhverjar tafir eða óhöpp.
En það er álit okkar að þessi þáttur í
skipaviðgerðunum sé mjög vanræktur
og þar þarf að gera stórt átak," sagði
Guðmundur.
Þórarinn Sveinsson framkvæmda-
stjóri Slippfélagsins sagði það ekki rétt
Skuttogarinn RunólfurSH-135.
sem fram kom í útvarpsfréttum í gær
að togarinn tefðist um hálfan mánuð
vegna óhappsins. Strax hefði verið
byrjað að vinna við hann og stefnt er
að því að Ijúka viðgerðinni um næstu
helgi, á sama tíma og öxulviðgerð og
málningarvinnu lýkur.
- JH
Hressir tombólukrakkar gefa í leiktækjasjóð Kópavogshælis
Þessir hressu og kátu krakkar héldu lega 13 þúsund krónum sem þau gáfu i
tombólu á dögunum og söfnuðu rúm- leiktækjasjóð Kópavogshælis. Fengu
Ferðamannastraumurinn:
Bandarík jamenn voru flestir en fækkar
Erlendir ferðamenn er komu til
íslands 1977 voru 72.690, sem var 4.7%
aukning frá siðasta ári. Hins vegar varð
fækkun á erlendum ferðamönnum 1976,
cn þá komu 70.180, en höfðu verið
71.616 árið 1975.
Bandaríkjamenn eru langflestir þeirra
er komu til landsins, 22.574. Bandarikja-
mönnum hefur hins vegar farið
fækkandi til íslands. Árið 1975 komu
liðlega 25 þúsund Bandaríkjamenn og
rúmlega 24 þúsund 1976. Bandarikja-
menn voru liðlega 31% af erlendum
ferðamönnum hér á landi i fyrra.
Næstflestir komu frá Þýzkalandi, en
þar hefur verið stöðug aukning ár frá
ári. Þeir voru rúmlega 11 þúsund —
hafði fjölgað um fjögur þúsund frá 1975.
Norðurlandabúar voru tæplega 18
þúsund, hafði fækkað frá 1975 um
þúsund.
-H. Halls.
krakkarnir inni með tombóluna i Kárs-
nesskóla þar sem þau eru næstum þvi öll
við nám.
Krakkarnir eru, talið frá vinstri:
Jóhanna Benný Hannesdóttir, 10 ára,
Stella Stefánsdóttir, 9 ára, Halla Rann-
veig Halldórsdóttir, 9 ára, Haraldur Þór
Pétursson, !2ára,SvalaSnorradóttir, 11
ára. og Vilborg Viðisdóttir.
Ein af stelpunum var á leiðinni í
„sveitina”, ætlar að dvelja á Patreksfirði
í sumar. Hinir ætluðu ýmist að dvelja i
sumarbúðum, fara i reiðskóla, herrann
ætlar i skíðaskólann í Kerlingarfjöllum
og síðan til útlanda og þrjár stelpur
ælluðu að fara í vist og passa krakka í
sumar.
A.Bj./DB-mynd Bjarnleifur.
Uppselt á Oscar og Dublmers:
MIKILSALAÁ
USTAHÁTÍÐARMIÐUM
Þegar þetta kemur fyrir augu lesenda
verður liklega orðið of seint að kaupa
miða á tónleika Oscars Peterson og
félaga og tónleika The Dubliners. Þegar
rætt var við Hrafn Gunnlaugsson í gær
voru aðeins örfáir miðar eftir á þessa
tónleika. Eins er að verða uppselt á tón-
leika þar sem flutt verða hin ýmsu verk
Jóns Þórarinssonar í Norræna húsinu og
tónleika Elisabetar Söderström i Há-
skólabíói.
Verð aðgöngumiða á atriði Lista-
hátíðar er nokkuð mismunandi. Dýrast
er á tónleika Oscars Peterson og Smokie.
Á þá kostar 4500 krónur. 3500 krónur
kostar að sjá og hlýða á The Dubliners,
Rostropovitch, Birgit Nilson og
Perlman. Á tónleika Söderström kostar
2000 kr. og Frakkans Clidat kostar
1500.
Mun ódýrara er á myndlistarsýning-
amar en tónleikana. Þannig kostar um
100—200 kr. á þær flestar, Erró er
heldur dýrari, á sýningu hans kostar 500
krónur.
Verð á þeim dagskrárliðum sem verða
í Norræna húsinu er á milli 800 og 1000
krónur. Á alla íslenzku tónleikana
kostar 1500 krónur. Á maraþontónleik-
ana kostar aðeins 100 krónur og
norrænu barnakórakeppnina kostar
1000 kr.
Mjög jöfn og góð sala hefur verið á
Reykjalundur
bauð eymamerki:
Gátu ekki
annað eftir-
spuminni
1 vetur kynnti Reykjalundur eyma-
merki sem ákveðið var að hefja fram-
leiðslu á. Bændur sýndu málinu strax
mikinn áhuga, ekki sízt vegna þess að
merkin áttu að kosta um helming þess
sem innflutt merki kosta.
Pöntuð voru rúmlega 200 þúsund
eyrnamerki en þá gat Reykjalundur ekki
annað allri þeirri framleiðslu áður en
sauðburði lyki, treysti sér ekki til að
framleiða meira en 50 þúsund merki.
Var farið fram á við bændur að pantanir
þeirra fengju að standa áfram og þeir
fengju merkin tímanlega fyrir sauðburð
á næsta ári.
-A.Bj.
Missti
þrjá
fingurí
flökunarvél
23 ára gamall maður missti þrjá
fingur vinstri handar og skaddaði hina
tvo i slysi í vinnslustöð Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar um kl. 8 í fyrrakvöld.
Maðurinn vann við að þrifa karfa-
flökunarvélar og ætlaði að ná í roðbita i
einni vélinni er slysið varð. Klippti
flökunarvélin þrjá fingur hans alveg af.
Maðurinn hefur unnið lengi hjá BUH og
var því kunnugur öllum aðstæðum.
-ASt.
Dánarorsökin
enn óljós
Nafn mannsins sent fannst látinn i
heita læknum í Nauthólsvík í sl. viku
hefur nú verið birt. Hét hann Ingólfur
Arnar Guðmundsson og var frá Akur-
eyri. Krufningsskýrsla liggur ekki fyrir
svo dánarorsök er ekki Ijós ennþá.
• ASt.
Oscar Peterson.
alla dagskrárliði Listahátíðar. Sérlega
hefur selzt vel á stóru atriðin. Til dæmis
hefur salan á hljómleika Smokie verið
mikil en ennþá er hægt að fá miða.
- DS