Dagblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
12
L
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþrc
Schön valdi Hansa Miiller
— HM hefst á morgun með leik heimsmeistara V-Þýzkalands og Póllands
— Helmut Schön hefur valið lið sitt
„Það verður mjög erfitt að sigra íj
heimsmeistarakeppninni í Suður-
Ameriku vegna þess að Argentína og
Brasilía eru með mjög sterkt lið,” sagði
landsliðseinvaldur VesturÞýzkalands,
Helmut Schön, í Buenos Aires í gær og
bætti við: „Það væri mikið afrek hjá
okkur að sigra í Suður-Ameríku. Hingað
til er Brasilía eina þjóðin sem sigrað
hefur á HM utan sinnar eigin heims-
álfu.”
Vestur Þjóðverjar hefja vörn heims-
meistaratitilsins á morgun. Fyrsti leikur
þeirra verður við Pólverja í Buenos1
Aires í 2. riðli. Þjóðverjar eru ekki bjart-
sýnir — nú eru þeir án leikmanna eins
og Beckenbauer, Overath og Gerd
Muller, sem áttu svo mikinn þátt í sigri
Vestur-Þýzkalands 1974. Schön valdi i
gær liðið sem leikur við Pólverja á
morgun og þar kom mjög á óvart að
hann valdi ekki Hoelzenbein i fram-
varðarstöðu heldur Hansa Miiller.
Liðið verður þannig skipað, innan
sviga eru tölurnar sem leikmenn hafa í
leiknum:
Sepp Maier (1), Manfred Kaltz (5),
Berti Vogts (2), Rolf Russmann (4), Her-
bert Zimmermann (8), Rainer Bonhof
(6) , Erich Beer (15), Heinz Flohe (10),
Hansi Mtiller (20), Ridiger Abramczik
(7) og Klaus Fischer (9).
Reiknað hafði verið með að Schön
veldi „varnarlið” vegna þess hve pólsku
framherjarnir eru hættulegir. Sú varð
þó ekki raunin. Þó uppstilling þýzka
liðsins verði 4-4-2 er hinn tvítugi sóknar-
frámvörður Hansi Múller valinn og eins
varnarmaðurinn Herbert Zimmermann
sem geysist I sóknina hvenær sem tæki-
færi gefst. Hansi Múller hefur aðeins
leikið tvo landsleiki — gegn Brasilíu og
Svíþjóð í vor. Þjóðverjar töpuðu báðum
leikjunum.
Leikur Vestur-Þýzkalands og Pól-
lands hefst kl. sex á GMT-tíma, sem er
hinn sami og hér á landi, og þar leika
saman liðin sem urðu í fyrsta og þriðja
sæti á HM 1974. Helmut Schön hættir
sem landsliðseinvaldur V-Þýzkalands
eftir HM.
í undanúrslitum 1974 sigraði Þýzka-
land Pólland 1-0 á blautum velli en
pólski landsliðsþjálfarinn var í gær ekki í
vafa um að Pólverjar mundu nú ná fram
hefndum. „Pólland er tilbúið til að sigra
V-Þýzkaland,” sagði þjálfarinn Jacek
Gmoch við blaðamenn í gær í Buenos
Aires. Sama vandamál er hjá báðum
liðunum — leikmenn þeirra eru farnir
að eldast og margir léku I úrslitunum
1974. En reynsluna hafa þeir.
Schön hefur náð frábærum árangri
með þýzka liðið. Það varð I öðru sæti á
HM 1966 — í þriðja sæti 1970 og sigraði
1974. Einnig hefur liðið orðið Evrópu-
meistari. Á þeim 14 árum sem hann
hefur stjórnað liðinu hefur það sigrað í
88 leikjum af 133 og aðeins tapað 21 leik
á þessu tímabili.
Pólverjar munu ekki velja lið sitt fyrr
en síðar í dag en ef að líkum lætur
verður það skipað þessum leikmönnum:
Jan Tomaszewski (1), Antoni Szy-
manowski (4), Wladyslav Zmunda (9),
Jerzy Gorgon (6), Henryk Maculawicz
(3) eða Wojaciech Rudy (10), Henryk
Kasperczak (8), Kazimierz Deyna (12),
Zbigniew Boniek (18) eða Adam
Nawalka (5), Grzegorz Lato (16), Wlod-
zimierz Lubanski (19) og Andrzej Szar-
mach (17). Nær allir þessir leikmenn
léku á HM 1974 en fimm þeirra eru
komnir yfir þrítugt.
Tap í Noregi
ísland fékk göð tækifæri til að skora I
landsleiknum gegn Norðmönnum —
leikmenn 21 árs og yngri — i Fredrik-
stad í gær. En ekkert heppnaðist við
markið og Norðmenn sigruðu með eina
markinu, sem skorað var i leiknum.
Kortgaard skoraði af stuttu færi á 43.
min. Það var klaufalegt mark. Tveir
varnarmenn höfðu áður tækifæri til að
hreinsa frá.
Þetta var fyrsti landsleikur íslands í
þessum aldursflokki og íslenzka liðið
óheppið að ná ekki að minnsta kosti jafn-
tefli. Rétt fyrir lok leiksins var bjargað
frá Atla Eðvaldssyni á marklinu.
Viö flytjum og opnum nyja
búð i dag að Laugavegi 51
sfmi 17440
Erum líka á • **
LAUGAVEGI33
Sími29290
shirtandjeansby JEAN MACHINE
rliíwwiwl?; hy Ca
rtíjp?r.„ jof hy Orssníi
- Wf jtf M £Aá ýtpF i fmwwrn
4§ § ^ N I
Rivelino — leikreyndasti leikmaður Brasilíu
Þeim
sigri
— Leikmenn Brasilíu í h
Brasilíumenn eru af flestum taldir sigur-
stranglegastir i heimsmeistarakeppninni i
Argentinu og sá góði sigur, sem þeir unnu á
heimsmeisturunum í Vestur-Þýzkalandi á
dögunum, styrktu menn í þeirri trú. Að vísu er
enginn Pele lengur I brasilíska liðinu en þar
eru leikmenn eins og Zico, *>cm oft er kallaður
Johan Crijuff Suður-Ameriku, og Rivelino —
eini leikmaður liðsins sem er eftir af heims-
meisturunum 1970. Hann hefur leikið yfir 100
landsleiki — Brasilíumenn segja 109, sem þá
væri landsleikjamet leikmanns, en sá fjöldi er
ekki viðurkenndur af öðrum þjóðum.
Brasilia hefur náð beztum árangri allra
þjóða á HM. Leikið tiu sinnum í loka-
keppninni — samtals 45 leiki. Unnið 29, gert
sjö jafntefli og tapað níu. Markatalan 109—
53 og stig samtals 65. Næstir á listanum eru
Vestur-Þjóðverjar. Hafa hlotið 13 stigum
minna en Brasilíumenn. ítalir eru í þriðja sæti
og til gamans má geta þess, að Sviar eru í
sjötta sæti.
Brasilía er í riðli með Austurriki, Spáni og
Sviþjóð — þriðja riðli. Einstakir leikir þar.
3. júní
Svíþjóð-Brasilía Mar del Plata
Spánn-Austurríki Buenos Aires (Velez)
7. júní
Spánn-Brasilía Mar del Plata
Austuriki-Svíþjóð Buenos Aires
11. júní
Brasilía-Austurríki Mardel Plata
Svíþjóð-Spánn Buenos Aires
í HM-liði Brasilíu eru þessir leikmenn.
Emerson Leao, 28 ára, aðalmarkvörður
liðsins. Hefur leikið 62 landsleiki og lék á HM
1974. Leikur með Palmeiras í Brasilíu.
Carlos Robertson Galo, 22 ára, markvörður
Ponte Preta. Maður framtiðarinnar en hefur
enn ekki leikið landsleik. .
Waldir Perez, 26 ára markvörður Sao
Paulo. Þriðji markvörður liðsins og enn ekki
leikið landsleik.
Hummel íþróttatöskur
fyrir alla, unga sem
aldna, stórar sem smáar.
Fást i öllum helztu sport-
vörubúðum landsins.