Dagblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAl 1978
7
Tónlistarlíf Italíu
riðar vegna mútu-
og fjársvikaásakana
— tuttugu og sex háttsettir settir í fangelsi
AUt er í óvissu i tónlistarlífi ttalíu í
dag eftir aö tuttugu og sex æðstu
menn á því sviði voru handteknir í gær
vegna umfangsmikillar rannsóknar á
meintum mútum og misnotkun á
opinberu fé. Er þarna um að ræða
listamenn, stjórnendur óperuhúsa og1
leikstjóra.
Handtökurnar komu í kjölfar víð-
tækra húsrannsókna sem fram fóru í
sex itölskum borgum í gær. Fóru þær
fram samtímis og var greinilegt að hér
var um að ræða heildarrannsókn.
Spilavíti til
bjargar fjár-
hagnum
Atlantic City í New Jersey stendur
fremur illa fjárhagslega og þar sem
engin úrræði virtust vænlegri en að lög-
leyfa fjárhættuspil samþykktu íbúarnir
það i almennri atkvæðagreiðslu. Fyrir
nokkrum dögum var haldin nokkurs
konar aðalæfing fyrir alla þá sem starfa
eiga við spilavítið og skemmtisalina sem1
opnaðir verða bráðlega. Sjálft spilavitið
verður ekki nein smásmíði, eins og
hálfur fótboltavöllur að stærð, og mun.
hafa kostað um það bil 40 milljónir doll-
ara. Að sjálfsögðu verður ýmislegt spila-
vítisgestunum til upplyftingar annað en
spilaborðin og á myndinni er smásýnis-
hom af því sem boðið verður upp á.
Tónlistarhallir á Ítalíu hafa lengi átt
við erfiðan fjárhag að glima og hafa
því fengið styrki úr opinberum
sjóðum. Hafa ásakanir um misnotkun
þess fjár verið háværar undanfarin ár
og þá bæði komið fram ásakanir á
hendur forráðamönnum óperuhúsa og
ýmissa lista- og tónleikahátíða.
Meðal þeirra sem handteknir voru í
gær er forstjóri Rómaróperunnar,
háttsettur maður hjá LaScala i Mílanó
og fleiri.
Erlendar
fréttir
I
REUTER
n
Sendibílastöð
Kópavogs
heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 8.
júní kl. 20 á stöðinni, Nýbýlavegi 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sljórnin.
Matreiðslumaður
Óskum að ráða röskan og ábyggilegan mat-
reiðslumann. Góður vinnutími. Uppl. í síma
84939 fyrir hádegi.
Tökum að okkur
klæðningar á
Range Rover
Mikið úrval af
áklæðum.
Húsmunir
á homi Hverfisgötu og Vrta-
stígs.
SPURNINGAR
FÓLKSINS
Svör Alþýðubandalagsins
í sjónvarpsþætti Alþýðubandalagsins í næstu
viku svara Guðmundur J. Guðmundsson,
Gils Guðmundsson, Ólafur Ragnar Grímsson,
Svava Jakobsdóttir og Svavar Gestsson
spurningum um stefnu Alþýðubandalagsins
í komandi þingkosningum.
Einar Karl Haraldsson stjórnar þættinum
Hvað viltu vita um Alþýðu-
bandalagið?
Hver eru meginmál þingkosn-
inganna:
Kjaramálin? — Atvinnu-
málin? — Sjálfstæðismálin?
Hvers vegna er Alþýðubanda-
lagið orðinn ótviræður for-
ystuflokkur launafólks?
Hvernig á að koma rikis-
stjórninni frá?
Eru kosningar kjarabarátta?
Hver er
spuming þín?
í dag, miðvikudag, og á morg-
un, fimmtudag, frá kl. 9.-23.00
geturðu hringt i sima 1 75 00 og
borið fram ALLAR þær spurn-
ingar sem þú vilt beina til Al-
þýðubandalagsins. Þeim
verður siðan svarað i sjón-
varpsþættinum.
Takiö þátt í sjónvarpsþætti
A fþýðubandalagsins
Sendið hvassar og djarfar spurningar
Spyrjið Guðmund, Gils, Ólaf, Svövu og Svavar