Dagblaðið - 31.05.1978, Page 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. M AÍl 978
I
I
>ttðr
Iþróttir
Iþröttir
Iþróttir
Iþróttir
og heimsmeistari 1970.
»r spáð
áHM!
eimsmeistarakeppninni
Antonio Dias Santo (gælunafn Toninlío,
sem hann er alltaf kallaður), 29 ára v’arnar-
maður Flamengo. Hefur leikið fjóra lands-
leiki.
Manoel Mattos, (Nelinho), 27 ára
bakvörður hjá Cruzeiro. Hefur leikið 17 lands-
leiki og tekur stöðu hins leikreynda Ze Maria,
sem er meiddur. Frægur fyrir nákvæmar lang-
spyrnur sínar.
Jose Oscar Bernardi, 23ja ára miðvörður
hjá Ponte Preta. Hefur leikið þrjá landsleiki.
Mjög sterkur — en hefur litla leikni á
brasilíska vísu.
Abel Carlos da Silva Braga, 25 ára varnar-
maður hjá Vasco da Gama. Hefur leikið 10
landsleiki. Harður og sterkur miðvörður.
Joao Justino Amaral, 23ja ára varnarmaður
hjá Corintians. Hefur leikið 28 landsleiki.
Talinn af Claudio Coutinho, þjálfara Brasilíu,
einn bezti varnarmaður heims.
Jose Fernando Polozi, 22ja ára varnar-
maður hjá Ponte Preta. Hefur enn ekki leikið
landsleik.
Edino Nazareth Filho (Edinho), 22ja ára
varnarmaður hjá Fluminese, sem leikið hefur
16 landsleiki. Sterkur leikmaður en ákaflega
taugaóstyrkur i stærri leikjum.
Jose Rodrigues Cerezo, 23ja ára fram-
vörður hjá Atletico. Hefur leikið 20 landsleiki
og einn bezti leikmaður Brasiliu.
Joao Bastista da Silva, Internacional.
Framvörður, sem leikið hefur þrjá landsleiki.
Francisco Jesuino Avanzi (Chicao), 29 ára
framvörður hjá Sao Paulo. Hefur ekki leikið
landsleiki.
Roberto Rivelino, 32ja ára framvörður hjá
Fluminense, sem að sögn Brasilíumanna hefur
leikið 109 landsleiki. Heimsmeistari 1970 í
Mexikó og sá eini í liðinu sem eftir er af HM-
meisturum Brasilíu þá. Nákvæmar sendingar
aðall hans en skapið hefur oft hlaupið með
hann í gönur.
Dirceu Jose Guimares, 25 ára framvörður
hjá Vasco da Gama. Hefur leikið 19 lands-
leiki. Mjögfljótur.
Gilberto Alves, (Gil), 25 ára framherji hjá
Botafogo. Hefur leikið níu landsleiki. Frábær
á stundum og hefur mikla leikni. Á við meiðsli
aðstríða.
Jose Reinaldo Lima, 21 árs framherji hjá
Atleto. Hefur leikið 12 landsleiki og var mark-
hæsti leikmaður í brasilísku deildinni á siðasta
ári. Var í vetur skorinn upp á báðum hnjárh.
Arthur Atunes Coimbra (Zico), 25 ára fram-
herji hjá Flamengo. Hefur leikið 16 landsleiki.
Leikmaður Suður-Ameríku 1977 og oft
kallaður „hinn hvíti Pele”. Frábærlega
leikinn.
Jorge Pinto Mendoca, 23ja ára framherji
hjá Palmeiras, sem enn hefur ekki leikið Iands-
(leik.
Carlos Robcrto Oliveira, 24ra ára framherji
hjá Vasco da Gama. Hefur leikið 26 lands-
lciki. Kallaður „Roberto dínamit” og var
næstmestamarkaskorari í Brasilíu í fyrra.
Jose Sergio Presti, 21 árs framherji hjá Sao
Paulo, sem leikið hefur einn landsleik. Frændi
Rivelino og stælir hann mjög.
Jose Rodrigues Neto, varnarmaður, sem
' Ieikur með Botafago. Hefur leikið 11 lands-
leiki og mjög hættulegur, þegar hann geysist í
sók.nina.
24 þjóðir í
Á þingi Alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins (FIFA) í Buenos Aires i gær
var samþykkt að taka fyrir tillögu um að
allt að 24 þjóðir tækju þátt í úrslita-
keppninni i HM á Spáni 1982. 94 sam-
þvkktu gegn 4 að þessi tillaga yrði tekin
til nákvæmrar athugunar — en margir
munu vera á því að úrslitaþjóðirnar verði
tuttugu.
Joao Havalange, Brasilíu, var endur-
kjörinn formaður FIFA í gær án mót-
framboðs. Hann hefur verið forseti frá
1974, þegar hann felldi Sir Stanley Rous
Englandi.
Miklar umræður urðu í gær um til-
lögu frá nokkrum þróunarlöndunum um
að Evrópa fengi aðeins sex þjóðir í úr-
slitakeppni HM. Fulltrúar Evrópu urðu
æfir og bentu á að 85% af tekjum FIFA
kæmu frá Vestur-Evrópu.
Fréttamenn hafa varla átt nógu sterk
lýsingarorð í sambandi við framkvæmd
Argentínumanna 'á HM. Allt virðist i
toppstandi og undravert hve miklu hefur
verið komið í framkvæmd á einu ári.
Vandræði sköpuðust þó í gær þegar
dreifing aðgöngumiða til frétta- og
blaðamanna fór í handaskolum. Þá varð
upp fótur og fit i aðal-blaðamanna-
miðstöðinni i Buenos Aires. Það var
tölva, sem fór úr sambandi — og
hundruð fréttamanna voru æfir að fá
ekkimiða sína.
Brasilíski knattspyrnusnillingurinn
Pele spáði því í Buenos Aires í gær að
HM1982?
Argentína, Brasilía, V-Þýzkaland og
Ítalía kæmust i undanúrslit á HM — og
sagði að liðin nú væru betri en 1974.
Pele er sjónvarpsmaður fyrir sjónvarps-
stöð í Venezuela. Hann bætti því við, að
Frakkland og Svíþjóð gætu komið á
óvart. — öruggt er nú að Gordon
McQueen, Skotlandi, getur ekki leikið í
•riðlakeppninni. Leikjum á HM verður
sjónvarpað beint til 96 landa.
j Rudy Krol, fyrirliði Hollands, og Jo-
j han Neeskens eiga við meiðsli að stríða
jen þó er reiknað með að þeir geti leikið í
'fyrsta leik Hollands.
Þotukeppni Keilis
Þotukeppni Golfklúbbsins Keilis
veröur um helgina, 3.—4. júní. Leiknar
verða 36 holur með og án forgjafar og
gefur keppnin stig til landsliðs.
Tvenn aukaverðlaun verða í keppninni
— fyrir þá sem komast næst holu á 17.
flöt báða keppnisdagana. Völlur Keilis
er prýðilegur nú — betri en oftast áður
og reiknað er með skemmtilegri keppni.
Ræst verður út kl. átta og 130 báða dapa.
Þátttökutilkynningar þurfa að berasl i
skála Keilis fyrir föstudag.
„Fólk er
mjögnæmt
egirdr. Alda Möller
matvælafræðingur
Talað við textílhönnudi
Spinderokken
í Kaupmannahöfn
Ný framhaldssaga