Dagblaðið - 31.05.1978, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAl 1978
15
„HL FJANDANS MED FRAMA,
Fmi OG GAGNRYM"
— segir Liz Taylor, feit en
sæl stjórnmálamannsfrú
ræðustól með manni sínum.
„Ég hef gengið i gegnum 19 meiri
háttar skurðaðgerðir og i sumra augum
eins mörg hjónabönd. Allt þetta af ein-
hverri óskiljanlegri þrákelkni eftir
lifinu.” Þetta segir Elizabeth Taylor.
Hún heldur því einnig fram að þrákelkn-
in til að halda lifi valdi því að hún les
aldrei gagnrýni á eigin verk, ekki heldur
þau slæmu sem myndin Little Night
Music hefur fengið. Þó hún sé orðin 46
ára og hafi ekki leikið I einni einustu vin-
sælli mynd I mörg ár er hún ennþá goð-
sögn. „Nei, fjandinn hafi það,” segir
hún. „Til að vera goðsögn verður maður
að vera dauður. Og ég neita því að ég sé
dauð.” Hún vill heldur ekki lengur láta
kalla sig hina einu sönnu Elizabeth
Taylor. „Ég er bara ég. Og ég er i dag frú
Elizabeth Taylor Warner. Frú John
Warner ef þú vildir gjöra svo vel.”
Ekki eins og
goðsögn
Og þegar frú Warner situr I sófanum
á búgarði sínum líkist hún sannarlega
hvorki goðsögn né stjörnu. Hún er ný-
komin út úr flugvél sem flutti hana um
sveitir þar sem hún barðist fyrir mann
sinn semkeppir að þvi að komast i öld-
ungadeild þingsins. Andlitsfarðinn og
hárgreiðslan hefur látið á sjá við
ferðina en það virðist litil áhrif hafa á
frúna. En menn muna ekki eftir að hafa
séðhanaánægðari.
Hún hlær að öllu því fólki sem leggur
á sig ómælt erfiði til þess að koma að sjá
hana. Og hún segist ekki valda því von-
brigðum á neinn hátt. Fólk kemur heim
til sin frá henni og segir hana ekkert sér-
staka lengur og Liz hlær og tekur undir
að þaðsé rétt.
„Ég kunni aldrei við mig fyrir framan
kvikmyndavélina. Ég meira að segja þoli
ekki að láta taka myndir af mér. Ég
hafði aldrei neinn áhuga á þessari Eliza-
beth Taylor sem alltaf var verið að segja
frá í blöðum. Sem betur fer þekkti ég
hana ekki.”
Ekki undir
neinna stjórn
„Marilyn Monroe datt I þá gildru að
láta kvikmyndaveldið stjórna sér. Og
það gerðu fleiri. En ég gerði slikt aldrei.
Ég neitaði að hlýða nokkrum nema
sjálfri mér. Og ég geri það ennþá. Ég hef
aldrei getað lagað mig að öðrum og
byrja ekki á því núna. Það er aldrei hægt
að segja til um hvað ég geri næst. Fólk
ýmist lofar þetta eða þolir það ekki. Ég
hef lika ýmist verið á toppnum hvað
varðar álit fólks eða alveg á botni. Núna
erégháttuppi.”
Það að vera uppi felst i þvi að vera
manni sínum góð eiginkona. Hún tekur
á móti öllum þeim mannskara sem
kemur að heimsækja John vegna
kosninganna. Menn segja þau hjónin
Jane Fonda og Tom Hayden hægra
megin i stjómmálunum. (Eins og menn
munu vita þá eru Jane og Tom hins
vegar vinstra meginl. John hefur tekizt
það sem öllum hinum eiginmönnum Liz
tókst ekki, að fá hana til þess að fara úr
einum skemmtanaiðnaðinum og yfir i
annan. Þar vestra bera nefnilega stjórn-
málin mun skemmtilegra yfirbragð en
hér. „Stjórnmál og leiklist eru í.rauninni
skyld,” segir Liz. „í báðum greinunum
ertu að leika fyrir fólk. Eini munurinn er
sá að í öðrum leiknum er allt gervi en i
hinum ekta. Einhver skrifaði alltaf hlut
verkin fyrir mig. En John leikur sitt
hlutverk af fingrum fram.”
Menn hefðu liklega að óreyndu álitið
að dulur maður eins og John Warner
væri litið fyrír Liz Taylor sem aldrei
hefur kunnað að hemja tilfinningar
sinar. En þeir sem vit hafa á málum
segja að þetta sé það sem hún hefur
alltaf verið að leita að. John sé akkeri
hennar i lifinu og hún reiði sig á hann.
Ólíkt skassinu Liz.
Býlið vann
hjarta hennar
Wamers-hjónin skipta tima sinum
nokkuð jafnt á milli staða. Þau búa
ýmist í Georgsbæ eða á býlinu í M iddels-
burg. John sagði fjölmiðlum það að
býlið hefði ráðið úrslitum um tilfinn-
ingar Liz. „Þegar hún sá býlið var hún
sigruð.”
Þau hjónin hittust I boði sem haldið
var til heiðurs Elisabetu Englands-
drottningu og Gerald Ford. John var þá
að áliti blaðanna einn álitlegasti pipar-
sveinn vestanhafs. orðaður við konur
eins og Barböru Walters fréttamann.
Núna fer litið orð af honum i sam-
kvæmislifinu og þau njóta bæði róleg-
heitanna á býlinu. Liz hefur meira að
segja látið sig hafa það að vinna á
dráttarvélum ef ekki vill annað betra. Og
hún segir að sér þyki það hreint dásam-
legt. eins ogallt annað á býlinu.
Getur ekki kosið
eiginmanninn
Svo kaldranalega vill til að Liz getur
ekki kosið eiginmann sinn hversu gjarn\
an sem hún vill hann á þing. Hún er
nefnilega ennþá brezkur rikisborgari.
Liz viðurkennir að þrátt fyrir allan
stuðninginn sem hún veitir manni sinum
séu vissir erfiðleikar í hjónabandi þeirra.
„Valdahlutföllin eru ekki 50 á móti 50
heldur 51 á nióti 51. John er ekki síður
viljasterkur en ég og lætur ekki bifast frá
þvi sem hann ákveður.”
Fyrir börn sin heldur Liz alltaf opnu
húsi en hún segist aldrei neyða þau
hvorki til að koma né fara. Hún segir að
mesta gleðin i sambandi við börnin sé að
þaú langi til að koma og þess vegna geri
þau það, ekki af þvi að þau séu neydd til.
Enginn órói
í blóðinu
Liz er spurð að þvi hvort hana langi
ekki til að leika aftur. „Ég get ekki sagt
að það sé neinn órói i blóðinu í mér. Það
er margt sem ég þrái meira en sviðið."
Og það getur vist enginn ásakað hana
eftir þá dóma sem hún fékk fyrir Little
Night Music. Margir gagnrýnendur ósk-
uðu þess meira að segja að myndin yrði
hennar síðasta. Mest gera þeir þó grin að
hennarfeita likama.
Undarlegt nokk virðist Liz vera sú
eina sem ekki hefur áhyggjur af spikinu.
Hún segist hreinlega hal'a svo margt
annað að gera að hún hafi ekki tima til
þess. „Líf mitt hefur tekið aðra stefnu og
mér finnst erfitt að hugsa um að leika
aftur. Allt snýst um að vinna fyrir John.
Ekki það að hann hafi beðið mig um
það. Þvert á móti. Það er ég sjálf sem \ il
ekki yfirgefa hann til þess að leika.”
Hún segir að lokum. „Ég hef lifað
erfiðu lifi en það er ekkert sem ég vildi
breyta eða gera öðruvisi en ég gerði. Ég
tók þvi sem að höndum bar og ég hef
lærtafþvi.”
John hefur sagt aö býliö hafi ráöiö úr-
slitum um tilfinningar Liz. Enda er það
engin smásmíði.
m- - >
Hver heföi trúaö þvi að sjá Elizabeth
Taylorá dráttarvél?
IWarnér fjölskyldan kom öll saman
til að sjá Little Nigh Music.
Michael sonur Liz er lengst til
vinstri og þá Mary döttir hennar.
W* f