Dagblaðið - 16.06.1978, Side 5

Dagblaðið - 16.06.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978. 5 Mikið af spánnýjum skemmtiatriðum á sautjándanum íReykjavík Gamla góða Amarhólsstemmningin vakin upp og fombílar keppa 17. júni hátiðahöldin í Reykjavik eru að þessu sinni blanda af ýmsu spánnýju og öðru gömlu. Hið merk- asta af hinu nýja er fjölskylduskemmt- un á Arnarhóli klukkan hálfniu að kvöldi til. Er þar gerð tilraun til að endurvekja þá gömlu 17. júni stemmningu sem einu sinni ríkti i mið- bænum. Sjónvarpað verður beint frá skemmtuninni fyrir þá sem ekki kom- ast þangað. Popp skipar stóran þátt i skemmtuninni, þannig koma fram Brunaliðið, Lummurnar og Halli og Laddi. Fyrir þá sem ekki hafa gaman af poppi má skemmta sér við einsöngv- arakvartettinn, þjóðdansa, leikþætti og sænska tónlistarmenn. Annað merkt nýmæli er aksturs- þrautarkeppni á Melavelli sem forn- bílaklúbburinn tekur þátt i. Er þar um grin eitt mikið að ræða, eiga bilstjór- arnir að sprengja blöðrur, aka eftir plönkum og gera annað sem er i sam- ræmi viðaldurbilabeirra. Bilstjórarnir verða liklega klæddir i búningum i stíl viðbilana. Dansleikirnir að kvöldi 17. verða með svipuðu sniði og verið hefur. Þó verða þrir dansleikir núna i stað 6 i fyrra. Mikið var rætt um að dansa i miðbænum en hvort tveggja er að hann er orðinn mun þrengri en hann var fyrr á árum jafnframt því sent fólkinu hefur fjölgað og að siðast er dansað var, rnátti halda að sprengju- árás hefði verið gerð.slikur var útgang- urinn. Brunaliðið leikur við Austur- bæjarskóla, Tivoli við Árbæjarskóla og Póker við Fellaskóla. Morgunatriðin í kirkjugarðinum og á Austurvelli verða með sama sniði og þau hafa verið. Nýtt er hins vegar að eftir klukkan tiu syngja norrænir barnakórar við elliheintili og sjúkra- hús. Skrúðgöngur verða klukkan 14.45 frá Hlemmi. Miklatorgi og Sundlaug Vesturbæjar niður Arnarhól þar sem verður barnaskemmtun. Auk þess verða barnaskemmtanir við Ár bæjar- og Fellaskóla eftir skrúðgöngur um Árbæjar- og Breiðholtshverfi. í Laugardalnum verður sundmót og mót í frjálsum iþróttum eins og verið hefur undanfarin ár. Dagskrá hátiðarinnar verður birt i dagbók DB i dag. Bfllinn bæði stofa, svefnherbergi og hópferðabfll — Nýstárlegur bíll á bílaleigu í borginni Bill sem ýmist getur verið snyrtileg stofa, þægilegasta svefnherbergi eða 17 manna hópferðabíll með óvenjujega góðum sætisbekkjum er nú fáanlegur hverjum sem hafa vill til leigu i lengri eða styttri ferðir. í bílnum getur verið rennandi vatn og vaskur og einnig tveggja hólfa gaseldavél. Er öllum hlut- um einkar vel fyrir komið, svo breyta má bilnum úr stofu í svefnherbergi á ör- skammri stund og njóta vel allra kosta hans. Þennan nýstárlega bilaleigubíl hefur eigandi hans Haraldur Eggertsson inn réttað. Rekur Haraldur bilaleiguna Ferðabilar hf., og leigir út fólksbila, stat- ion-bíla, jeppa, sendibila og hópferðabíla auk þessa nýja húsbils sem er nánast ibúðá hjólum. Haraldur sagði er við sáum bil hans að hillinn væri mjög ákjósanlegur hús- bill fyrir fjóra fullorðna og tvö börn. Svefnplássi fyrir slikan hóp mætti koma upp i bilnum á örfáum minútum, þá er hann hefði áður gegnt hlutverki stofu. Mynda þá leðurklædd og mjúk sætin kojur. Sæti bilsins og aðrar innréttingar eru festar i gólf bilsins á brautum, svo mjög auðvelt er að breyta innréttingunni. Má á augabragði taka út vask- og eldunar- plötueininguna, sem búin er borðplötu sem draga má út og koma fyrir sæluni eins og í venjulegum hópferðabíl! Tekur þá þessi nýi bill Haraldar 17 manns. Haraldur leigir þennan Citroen bil út á 8800 krónur á dag auk 88 krónu gjalds fyrir hvern ckinn kílómetra. Auk þess kemur svo bensinkostnaður og sölu- skattur. ASt. borðstofuplatan útdregin. France Clidatá Listahátíð: FRÚ LISZT, - ARF- TAKIHOROWITZ, RICHTER, GILELS — þetta eru nokkur af gælunöfnum hennar France Clidat. France Clidat sem leikur einleik á píanó i kvöld klukkan hálfniu i Háskóla- bíó er ein allra fremsti píanisti franskur sem nú er uppi. Hún hefur hlotið hver verðlaunin á fætur öðruni. mest fyrir frábæra túlkun á verkum Franz Liszt. Hún hefur meðal annars leikið öll píanó- verk eftir hann á hljómplötur. 28 stykki, af slikum krafti og leikni að með fá- dærnum þykir. Þó að við hér á landi höfurn aldrei notið heimsóknar Clidat fyrr hel'ur orð stir hennar borizt hingað upp á skerið. Hún er ntjög dáð um alla Evrópu. Ung- verjar kalla hana Madame Liszt. Tékkar likja henni við Richter. Frakkar kalla hana arftaka Horowit/ og Sovétntenn bera hana saman viðGilels. A tónleikunum hér mun Clidat leika eitt verk eftir uppáhaldiðsitt, annaðcftir Scabine. það þriðja el'tir Debussv og það fjórða eftir Ravel. ds. Sumar- vörur! Póstsendum, sími 50075 Nýkomið mikið úrval afsumarvörum á döm- ur og herra: Vesti Skyrtur Mussur Pi/s Biússur Bo/ir Jakkar Buxur Einnig hinar marg- eftirspurðu Sloopy Canavas buxur. Gott úrval afBaron T- skyrtum o.fl. o.fl. Póstsendum um allt land. bokhú/id Strandgötu — Simi 50075 HafnarfirAi

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.