Dagblaðið - 16.06.1978, Qupperneq 11

Dagblaðið - 16.06.1978, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978. 11 Þannig smíðar þú kjamorkubombu Erlendar fréttir Júgóslavía: Sovézkirsend'h menn reknir heim Júgóslavnesk sljórnvöld hafa krafizt þess að þrir sendimenn Sovétríkjanna i sendiráðinu í Belgrad hverfi á brott. Eru sovét- mennirnir sakaðir um að hafa haft of náin samskipti við júgóslavneska fylgismenn Moskvu. Kraftan um brottför sendimannanna, var lögð fram eftir yfirheyrslur og framburð vitna vegna réttarhalda yfir einum foringja Moskvusinna sem fram fóru í apríl síðastliðnum. Suður-Afríka: Tuttugu og tveggja ára gamall hag- fræðinemi við Harvard háskóla, Dmitri Rotow að nafni, hefur heldur betur komizt i sviðsljósið eftir að i Ijós kom að hann hefur samið fjögur hundruð blaðsiðna skýrslu um hvernig smíða má ýmiss konar kjarn- orkusprengjur á tiltölulega auðveldan hátt. Rotow byggir skýrslur sina eingöngu á upplýsingum, sem hann fann í skjalasafni öldungadeildar þingsins í Washington, sem er öllum opið. Rotow hefur aldrei stundað neitt nám i eðlisfræði né kjarneðlisfræði en tók að kynna sér gögn um kjarn- orkusprengjur til að hvíla sig frá hag- fræðináminu. Hefur honum nú verið tilkynnt að hann eigi á hættu að vera ákærður ef hann ræði innihald skýrslu sinnar við aðra en þá sem bandarísk yfirvöld samþykki. Hefur þess einnig verið krafizt að Rotow afhendi skýrsluna til öruggrar geymslu eða tryggi að hún verði geymd á öruggan hátt. — Ég notfærði mér aðeins þær upp- lýsingar sem öllum eru opnar og lagði síðan saman tvo og tvo ef aðferðirnar eru ekki sagðar beinum orðum — sagði Rotow. —Það eru fleiri en ég er geta gert þetta — sagði hann enn- fremur og staðfesti jafnframt að ýmsir erlendir aðilar hefðu haft samband við sig varðandi skýrsiuna. Sjónvarpsstöðin ABC hefur rætt við Rotow og meðal annars fóru frétta- nienn með honum til mikillar rann- sóknarstöðvar orkumálastjómarinnr bandarisku sem er i Los Alamos í Nýju Mexico. Gekk Rotow þar um skjala- og bókasafn stofnunarinnar og fann þar ýmsar athyglisverðar upplýsingar. Til dæmis tengibúnað fyrir kjarnorkusprengjur sent var i notkun á siðasta áratug. — Þetta endar auðvitað með þvi að ég afhendi skýrsluna til opinberra aðila — sagði Rotow, sent sagðist nú ekki eiga neina ósk heitari en að losna úr öllu þrasinu og hefjast aftur Itanda við hagfræðinántið. Tvö ár frá Sow eto mordum — mikill viðbunaður lögreglu Lögreglan i Suður-Afríku handtók i morgun hundruð ibúa í Soweto, útborg Jóhannesarborgar, en þar búa eingöngu svertingjar. Settar voru upp hindranir á götum og varðstöðvar lögreglu. Allt er þetta gert til að lögreglan geti verið viðbúin hugsanlegum óeirðum vegna þess að um þessar mundir eru tvö ár liðin siðan miklar óeirðir urðu i Soweto þar sem nokkur hundruð manns féllu fyrir skotum lögreglunnar. Upptök þeirra óeirða voru meðai annars þau að svertingjar vildu mót- mæla að kennsla i skólum þeirra átti framvegis að fara fram á afríkani, máli Búa, hvitra manna í landinu, en ekki á þjóðtungu svartra., Fregnir hafa borizt um að lögregla hafi verið mjög áberandi á götum Soweto þar sem um það bil ein milljón manna býr. Hafi fólk verið stöðvað á götum, spurt ýmissa spurninga, leitað á því og sumir jafnvel handteknir. Indira Gandhi, sinni til að endurheimta völdin í landi sínu. Aftur á móti berast þær fregnir að núverandi stjórnvöld hyggist ákæra Indiru fyrir misnotkun á völdum sínum I fyrri tið. Er talið að réttarhöldin hefjist I lok þessa mánaðar eða I byrjun þess næsta. . Norðmenn ætla ad halda upp á sjötlu og fímm ára afmæli konungs síns með þriggja daga hátíðahóldum. Hefjast þau laugar daginn 1. júlí næstkomandi með samkomu sjö hundruð og fímmtíu manns i Þjóðleikhúsinu í Oslo. Joan Baez, Santana og Beach Boys syngja í Leningrad Talið er að hátt á annað hundruð þúsund manns muni koma til að hlýða á nokkra bandariska þjóðlaga- söngvara. sem koma fram i Leningrad í byrjun júli. Verða tónleikarnir haldnir á torgi fyrir framan vetrarhöll Katrínar miklu keisaraynju og munu sovézkir þjóðlagasöngvarar einnig koma fram. Að sögn þess aðila, sem annazt hefur um undirbúning hinna banda- risku söngvara verður það söngkonan Joan Baez og söngflokkarnir Santana og Beach Boys, sem koma fram i Leningrad. Ýmsir aðrir söngvarar neituðu að syngja eystra með þeim skilyrðum sem boðin voru. En aðeins er greiddur kostnaður vegna söng- ferðarinnar. Ekki hefur verið gefið upp hverjir höfnuðu boðinu. Levi Strauss fyrirtækiö, einn þekkt- asti gallabuxnaframleiðandi i heiminum. hefur tekið að sér að greiða stóran hluta kostnaðarins til tónleikanna. Kvikmynd verður gerð og mun þar verða reynt að sýna fram á andstæður vígbúnaðarkapphlaupsins og tónlistar- innar sern tengt getur fólk af ólikunt þjóðernum santan. VÖRN GEGN VINSTRI STJÓRN X~

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.