Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 16

Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 16
\ t 16 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16.JÚNÍ 1978. ÉG AUGLÝSIEFTIR FLOKKI Á næsta kjörtimabili auglýsi égeftir stjórnmálaflokki, sem — hefur kjark og þor til ’aö segja þéttbýlisfólki tæpitungulaust að land- búnaður sé einn af hornsteinum islenzks þjóðfélags, sem ekki megi raska frekar en orðið er, — þorir að leggja fram áætlun um viðhald byggðar í landinu og kostnað við það, — leggur til að skólakerfið verði lagað að íslenzkum aðstæðum, börn og unglingar fái tækifæri til að hjálpa til um háannatimann, haust og vor, — heitir sveitafólki möguleikum til orlofs og veikindadaga með stofnun afleysingakerfis á vegum hins opinbera, — gerir raunhæfar tillögur um hvernig bændum verði tryggt launa- jafnrétti við viðmiðunarstéttimar, — gerir tillögur um lausn á núverandi vanda sem ekki sé eingöngu á kostnað bænda sjálfra heldur þjóðfélagsins alls. Bændur hafa ekki annað til saka unnið en að framfylgja stefnu stjórn- valda og forystumanna sinna. Því er þetta sameiginlegur vandi þjóðarinnar. Sá sem þorir að taka slíka afstöðu á vísan stuðning bænda. Sá sem ekki þorir mun í reynd styðja eyðibýla- stefnuna þrátt fyrir allan fagurgala á atkvæðaveiðum. Vonandi ber þjóðin gæfu til að sjá framan í slik kjark- menni á næsta kjörtímabili. Hver þarf óvini eins og Jónas og Gylfa sem á Halldór E. að vini? Framsókn hefur lengi talið sig eiga islenzka bændastétt með húð og hári og hafa á henni ráðstöfunarrétt eins og rússneskir lénshöfðingjar keisara- timans á átthagabundnu „sálunum”, sem fylgdu búgörðum þeirra eins og hvert annað erfðagóss. Það sem meira er, svo algera og almenna viður- kenningu hefur hún hlotið á þessum eignarrétti sínum, að þegar Framsókn á aðild að samsteypustjórn hefur aldrei svo vitað sé komið til tals, að samstarfsflokkur hlyti embætti land- búnaðarráðherra. Þegar frá eru taldar skammæjar rikisstjórnir, sem Framsókn hefur ekki átt aðild að, hefur hún þannig ráðið stefnunni í hálfa öld með einni undantekningu: Gárungarnir segja reyndar að Ingólfur Jónsson sé eini landbúnaðarráðherr- ann, sem fengið hefur stefnu Fram- sóknar í landbúnaðarmálum til að skila tilætluðum árangri, líkt og sagt er um Lúðvík Jósefsson, að hann sé eini sjávarútvegsráðherrann, sem tekizt hefur að hrinda í framkvæmd þeirri stefnu Sjálfstæðisflokksins að fá einka- framtakið til að blómgast og dafna við sjávarsiðuna. Dóttur- og dóttur- dótturfyrirtæki Framsókn er eitt af dótturfyrir- tækjum SÍS likt og Olíufélagið og Reginn h/f og það eina sem ekki er í hlutafélagaformi. Framsókn á svo aftur Búnaðarfélagið og Stéttarsam- bandið og allt kerfið sem byggt hefur verið upp ofan á og allt um kring bændastéttina. Sú var tíð, að íhaldið barðist hatramlega gegn þessu valdi. Sú tíð er löngu liðin og það lætur sér nú nægja að spila aðra fiðlu j konsert Framsóknar gegn vissri hlutdeild í skriffinnsku- og valdabákni land- búnaðarins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur engan stefnuágreining gert við Framsókn i málefnum landbúnaðarins í áratugi, en treyst því, að þeir sem ekki geta i auðmýkt beygt kné sin fyrir SÍS-valdinu hafi í engin húsað venda. En hvað skal gera þegar þessir tveir koma fram eins og siams-tvíburar? Hvernig á að efla annan gegn hinum? Eyðibýlastefna Framsóknar Yfirlýst markmið stefnu Fram- sóknarflokksins i landbúnaðarmálum var ekki aðeins að stemma stigu við fólksflóttanum úr sveitunum, heldur snúa straumnum við, fjölga býlum og bændum. Sett voru á stofn i þessu skyni alls konar nefndir og ráð með ábúðarmiklum nöfnum eins og „Nýbýlaráð”, Landnám ríkisins” o.s.frv. Ef við dæmum af verkunum í stað fagurra fyrirheitastefnuskránna blasir við sú mynd, að vist hefur fram- leiðslan eflzt. Sífellt fleiri bændur framleiða æ meiri afurðir með gegnd- arlausum þrældómi myrkra á milli virka daga sem helga, allan ársins hring, án réttar til orlofs eða veikinda einir stétta i landinu, lamdir áfram af þrælapísk sívaxandi skulda við þau fyrirtæki og það afurðasölukerfi, sem upphaflega voru sett á stofn til að þjónaþeim. Hvar sem farið er um sveitir landsins blasa eyðibýlin við i stað nýbýlanna fyrirhuguðu. Í reynd hefur stefna Framsóknar verið eyðibýla- stcfna. í ráðherratíð Halldórs E. hafa flosnað upp 12 — tólf — bændur á mánuði hverjum eða um 150 á ári, 1000 — eitt þúsund — bændur á tveimur kjörtimabilum. Er Gylfi kom með þá speki um að bændur væru „dragbítur á hagvöxt” og leysa yrði vandann með samdrætti i framleiðslu dilkakjöts en eflinguullar- og gæruiðnaðar og Jónasistar komu með kenningu sina um að láta bændur hætta að offramleiða landbúnaðar- vörur en skipuleggja þá til offram- LT. CALLEY Á LISTAHÁTÍÐ Hlutur innlendra bókmennta og leiklistar á listahátið er fljóttalinn: það var nýja leikrit Jökuls Jakobssonar sem Þjóðleikhúsið sýndi tveimur „for- sýningum” i vikunni. Og leiklist og bókmenntir skipuðu mun óveglegri sess á hátíðinni en oftast áður, engir erlendir gestaleikir, nema þýski stultu- flokkurinn sem að sönnu var góðra gjalda verður, engar dagskrár með bókmenntalegu efni, erlendar eða innlendar, framsögn, söng og tónlist einsogjafnan áöur. 1 ár er listahátiðin miklu eindregn- ari tónlistarhátíð en hingað til hefur verið og fyrst og fremst stefnt að fjölmennis-aðsókn, eins og þegar sést af þvi að flestir atburðir á hátiðinni gerast nú I Laugardalshöll. Vera ntá að þessi hátlur á þjóðhátiðinni sé hag- kvæmari fjárhagslega en sú mikla fjöl- breytni, rikulega framboð alls konar efnis sem hingað til hefur sett svip á listahátíðimar. En að öllu öðru leyti finnst mér hátiðin setja ofan með þessari breytingu og hlutur hennar og hlutverk minnka i menningarlifinu. Leikritun og bókaútgáfa 1 þessum kringumstæðum og eftir hið snögglega fráfall höfundarins í vor var ekki nema vonlegt að frumsýning- ar á Syni skóarans og dóttur bakarans væri beðið með eftir- væntingu. Þegar Jökull Jakobsson lést i blóma aldurs sins var hann óumdeilt okkar langhelsti leikritahöfundur. Og því má bæta við að hann er eini samtimahöfundur sem máli skiptir sem tekið hefur út þroska sinn, farið heilan höfundarferil innan leikhússins, leikritaskáld fyrst og fremst. Hitt er umhugsunarvert einmitt eftir fráfall Jökuls, við frumsýningu á nýju verki hans, að af leikritum hans eru ekki nema fá tiltækileg á prenti, engin þeirra síðustu, og engar spurnir af að nýja leikritið sé væntanlegt á bók. Vera má að nú renni upp ljós I einhverju forlaginu og leikrit Jökuls Jakobssonar verði brátt gefin út, svo seiu i minningarskyni um höfundinn, Það er bara ekki nóg! Öllum ber saman um, og vetrarstarf leikhúsanna ber því ljóst vitni, að um þessar mund- ir sé blómaskeið í íslenskri leikritagerð. En nýju leikritin sem hvert af öðru koma fram á sviðinu eru sjaldan eða aldrei gefin út I bókum jafnharðan, svo sjálfsagt mál sem það þó ætti að vera. Og meðan svoer, verður okkar nýja leikritun olnþogabarn i bók- menntum. Hér á áræðinn útgefandi verk að vinna: það er vitanlega óþolandi að þær nýju bókmenntir sem fram koma í leikhúsunum séu til frambúðar óað- gengilegar á prenti, eða að verk ein- hvers helsta samtimahöfundar, eins og Jökuls Jakobssonar, týnist út úr bók- menntunum af þvi að ekki sé hirt um að gefa þau út. Sonur skóarans og dóttir bakarans eða Söngurinn frá My Lai, eins og nýja leikrit Jökuls Jakobssonar nefnist fullu nafni, var aðeins sýnt „for- sýningum" á listahátið, en formleg frumsýning verður fyrst í haust, og hefur leikhúsið óskað þess að reglulegir leikdómar um sýninguna verði látnir biða þess tíma. Sjálfsagt er að verða við því — þótt heimilt hljóti að vera að lýsa til bráðabirgða skoðun á leiknum eftir fyrstusýningu hans, án þess að hafa ennþá fengið að kynnast textanum. Væntanlega biða fleiri les- endur og áhorfendur Jökuls Jakobs- sonar en undirritaður þess með óþreyju að kynnast hans siðasta verki og vilja gjarnan frétta af því. Týndi sonurinn og þorpið Eins og áður hefur komið fram í fréttum og frásögnum af æfingum leikritsins er Sonur skóarans og dóttir bakarans að ýmsu leyti nýstárlegt verk, frábrugðið fyrri leikjum Jökuls. Mér virðist það eiga sammerkt með Kertalogum, síðasta leikriti Jökuls, sem sýnt var í Iðnó, að leggja meir upp úr reglulegum söguþræði en t.a.m. leikir eins og Dominó, Klukkustrengir. Og eins og líka hefur komið fram í umtali um leikinn er auðvelt að greina i söguþræðinum, atþurðarás og mannlýsingum hans, efnisatriði, kveikjur og minni sem kunnugleg eru úr fyrri leikritunum. Einhver gekk svo langt fyrir sýninguna, minnir mig, að segja að nýja leikritið birti í sínu nýstárlega frásagnarformi einhvers konar niðurstöðu af ýmsum helstu yrkisefnum Jökuls í fyrri leikjum hans, enda hefði höfundurinn haft þetta leikrit lengi í smiðum, ein tíu ár eða meir. Þetta kann að mega til sanns vegar færa, minnsta kosti að nokkru leyti, og gefst væntanlega ráðrúm til að víkja nánar að þeim efnum i haust. En nýstárlegt við leikinn er á meðal annars hversu óstaðbundinn hann er: þorpið þar sem leikurinn gerist er vissulega norðlenskt sjávarpláss, en það getur þar fyrir átt sér stað hvar sem er i heiminum, hvar sem fólk býr við kreppu, fátækt og einangrun. Heim í þetta afskekkta pláss kemur nú týndi sonurinn og hefur hreppt fé og frama úti I heimi. Það er I öðru lagi nýstárlegt við Son skóarans og dóttur bakarans á við fyrri leikrit Jökuls, að hin einfalda atburðarás hefur augljósa táknræna merkingu. Ungi maðurinn sem að heiman fór alinn upp i hetjulegum frelsisanda snýr ekki samur og jafn heim til sin aftur. Framinn vannst í synd og skömm: hann hefur í útlegðinni gerst einhvers konar Calley lautinant í Víetnam að þvi er virðist og auðurinn sem hann veitir heim í þorpið stafar af þjónustu við dauðann. Viðreisn þorpsins sem leikurinn lýsir er öll I þágu tortímingar Arnar Jónsson og Kristtn Bjarnadóttir i hlutverkum. — DB-mynd Bj.Bj. LISTAHATIÐ 1978 mannlegs lífs og verðmæta, friðar og frelsis. Þá sök verður að afplána. Og leiknum lýkur þrátt fyrir allt með uppreisn gegn valdi auðs og dauða, von um viðreisn mannlifs, einfaldra verðmæta tilfinningalífs og lifshátta. Ósagt orð Ekki veit ég hvort þetta lauslega ágrip efnisins gefur nægilega til kynna hvernig nýtt og gamalt tvinnast saman í Syni skóarans og dóttur bakarans, yrkisefnum og aðferð leiksins, sem að visu er auðnumið af sýningu hans. En það var að ýmsu leyti blendin reynsla að horfa á leikinn á listahátið. í fljótu bragði fæ ég ekki betur séð en leikritinu hafi enn verið ólokið þegar höfundurinn féll svosviplega frá-Heild arstefna atburða í leiknum, uppistaða efnisins hefur að visu verið ljós, en endanleg niðurskipan og frágangur einstakra leikatriða og umfram allt lokafágun orðræðunnar var enn eftir. Það er vitað að oft var háttur Jökuls Jakobssonar að leggja siðustu hönd á verk sin á æfingum þeirra og sú vinna fól oft i sér umtalsverða breytingu á textanum, hugmyndir leiksins voru ekki fullmótaðar fyrr en i leikhúsinu sjálfu. Ég er ekki I efa um að Sonur skóarans og dóttir bakarans hefði orðið að verulegu leyti frábrugðið þeim leik sem nú gat að lita ef höf- undinum hefði enst aldur til að fylgja þvi á leiðarenda. Um leið verður nýja leikritið lika skýr áminning þess hversu sár er missir bókmenntanna og okkar lesenda, að höfundinum skyldi svipt I burt úr miðju starfi sinu. En á því leikur enginn vafi heldur,’ finnst mér, að það var rétt ráðið af leikhúsinu að taka leikinn til sýningar við svo búið, þótt augljóslega hafi leikstjóra og áhöfn verið mikill vandi á höndum við meðferð hans í þessum kringumstæðum. Ekki veit ég hvernig þeirri vinnu hefur verið háttað, en hitt held ég sé einsýnt að hið Ijóðræna og táknræna efni leiksins á afdrif sin undir því komið hversu tekst að koma lífi og liti, orði og æði að raunsæislegri umgerð efnisins. Þá aðferð og þann vanda á Sonur skóarans og dóttir bakarans allténd sameiginleg með öðrum leikritum Jökuls Jakobssonar. En nánari umræður um leikinn og sýninguna ber sem sé að geyma til reglulegrar frumsýningar í haust. Sjálfur er hann farinn en verk hans eigum við. Sonur skóarans og dóttir bakarans var á listahátið til marks um að Jökull Jakobsson hefur enn ekki sagt sitt síðasta orð. Það lét hann leikhúsunum, leiksviðinu, leikurunum eftir.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.