Dagblaðið - 16.06.1978, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16.JÚNÍ 1978.
Gróðinn ekki
tekinn frá neinum
Halldór Blöndal (D—3) sagði að
það væri ekki rétt sem kommar og
kratar segðu að gróðinn sem athafna-
menn bæru úr býtum væru frá verka-
fólkinu tekinn. Hann myndaðist
vegna dugnaðar þessara manna og
áræði og ættum við fleiri slíka væri
okkur borgið. Kaupmáttur hefði
aukizt um 8—10% á meðan rikis-
stjórnin sat við völd, hver væri þá
kaupránsflokkur og hverekki?
IMotaðtilað
byggja upp
Stefán Valgeirsson sagði að það
mætti ekki gleymast, þegar ríkis-
stjómin væri sökuð um erlendar stór-
skuldir, að peningarnir hefðu verið
notaðir til að byggja upp atvinnulif
þjóðarinnar og án þeirrar uppbygging-
ar vildi víst enginn vera. Hefðu lika
ekki myndazt skuldir í þeim ríkis-
stjórnum sem Alþýðuflokkur og
Alþýðubandalag hafa setið i?
Ekki óvinir bænda
Árni Gunnarsson (A—2) vildi
leiðrétta það sem komið hafði fram
um að Alþýðuflokkur vildi leggja
bændur niður. Þvert á móti, en flokk-
urinn vildi beita sér fyrir meiri
skynsemi i málefnum bænda. Einnig
ætti að koma i veg fyrir að bændur
græddu of fjár á því ef auðlindir
fyndust i jörðum þeirra.
Þorsteinn Jónatansson og Jón Lúthersson hlýða á málflutning andstæðinganna
og kima við. Ráða þeir úrslitum?
Verzlunareigendur
fá að skammta
álagningu en
verkalýðurinn
fær ekki að
semja um kaup
Stefán Jónsson (G—1) sagði að sér
þætti það helviti hart að ríkisstjórnin
leyfði verzlunareigendum að ákveða
sjálfir álagningu á vöru sína á meðan
verkafólk fengi ekki að semja við at-
vinnurekendur í friði um sín laun.
Sagði hann að Alþýðubandalagið
stefndi að lækkun vöruverðs með því
að lækka álagningu og söluskatt og fá
tekjur til ríkisins annars staðar á móti.
Úrslit úr 4 síðustu kosningum
Alþýðuflokkur
Framsóknarfl.
Sjálfstæðisfl.
Alþýðubandalag
SFV
1963 1967 1971 1974
1012(10.1%) 1357(13.0%) 1147(10.1%) 1089( 9.1%)
4530(45.2%) 4525(43.3%) 4677(41.1%) 4811(39.7%)
2856(28.5%) 2999(28.7%) 2939(25.9%) 3661(30.2%)
1621(16.2%) 1571(15.0%) 1215(10.7%) 1731(14.3%)
1389(12.2%) /22( 6.4%)
Lýðræðisflokkur í Norður-
landskjördæmi eystra
42( 0.3%)
Stefán Valgeirsson „Andstæðingar
okkar eru ábyrgðarlausir”
Verðbólga alltaf
meiri án
Sjálfstæðisflokks
Lárus Jónsson (D—2) sagði auðvelt
að sannað verðbólga hefði alltaf verið
meiri er Sjálfstæðisflokkurinn væri
utan ríkisstjórnar en innan. Hann
spurði menn hvort þeir vildu nýja
vinstri stjórn með öllum þeim
Lárus Jónsson „Andsiæðingar okkai
fara með rangfærslur”
óskapnaði sem henni fylgdi, ef ekki
væri Sjálfstæðisflokkurinn eini flokk-
urinn sem hamlað gæti gegn þvi.
Einstök
óhappastjórn
Þorsteinn Jónatansson (F—l) sagði
rikisstjórnina hafa verið einstaka
óhappastjórn. Sveitarstjórnarkosning-
arnar sönnuðu það álit fólksins sem
misst hefði rneð öllu trú á Sjálfstæðis-
flokknum.
Alþýðubandalag
vill hækka hæstu
launin mest
— Ingi Tryggvason (B—3) sagði að
auðséð væri á kröfum Alþýðubanda-
lagsins um samningana i fullt gildi að
það gerði kröfur um að hæstu launin
.hækkuðu mest. Þetta gengi þvert á
stefnu Framsóknarflokks sem vildi að
lægstu launin hækkuðu meira en þau
hærri.
Miða við ástandið
fyrir f ebrúarlögin
Jón Hermannsson (F—2) sagði að
þó rikisstjórnin gæti sannað að kjörin
hefðu batnað með bráðabirgðalögun-
um i maí ætti ekki að miða við þau
kjör sem þá voru heldur þau kjör sem í
gildi voru fyrir febrúarlögin, þau kjör
sem menn höfðu vegna samninga
og búið væri að stela frá þeim.
Eftir að framsöguræðum fundar-
manna var lokið (þær tóku fjóra tima
á hvorum stað) var töluvert karp uni
þær þeirra á milli en þó allt i mestu
friðsemd. Fundi var siðan slitið og
hver fór til síns heinia.
•DS.
SPIRA
r Sófi og svefnbekkur
í senn. íslenzkt hugverk
oghönnun.
Sófaborð 'mw
OKKAR m*
VERÐ KR: 79.100
OKKAR
, VERÐ
OKKAI
69Æ00-
Húsgagnaverksmiðja
Skemmuveg 4, Kópavogi — Sími 73100
FORSTOFUHUSGOGN
A.GUDMUNDSS0N
Húsgagnavoricsmiflja
Skemmuvegi 4. Simi 73100.
SKRIFSTOFU-
SKRIFBORÐ
Vönduð sterk skrifstofu
skrifborð íþrem
stærðum.
Verðfrákr. .
108.000 /
Greiðslu-
skilmálar
Stað- *
greiðslu-
afsláttur
Sendumum
alltland
/ Vegg.
húsgögn
væntanleg
Í2gerðum
STEKKJARa*
KR: 119.500 OKKAR VERÐ KR: 94.500