Dagblaðið - 29.07.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978.
Nokkur orð vegna athugasemda formanns félagsstjórnar, Hjalta Jakobssonar:
Meira um grænmetismálið
og Sölufélag garðyrkjumanna
1 Dagblaðinu 17. júlí ritar Hjalti
Jakobsson garðyrkjumaður og for-
maður stjórnar Sölufélags garðyrkju-
manna mér bréf sem hans vegna hefði
betur verið ógert. Áður hafði hann og
félagi hans í SFG heimsótt ritstjómar-
skrifstofu DB og lýst þau skrif sem
undanfarið hafa átt sér stað um tóm-
atamál ósanngjörn og villandi þar
sem aðeins hefði verið ekið á haugana
tómötum vegna þess að vél hefði bilað
i verksmiðju.
Það þarf meira en litla óskamm-
feilni til að halda sliku fram i fjölmiðli
eftir það sem á undan er gengið og
garðyrkjumenn þekkja til af eigin
raun. Það er ekki borin mikil virðing
fyrir félögunum með slíkri framkómu.
Fyrir þá sem áhuga hafa á málinu
en þekkja ekki til þess nema af skrifum t
þessum, vil ég taka það fram strax, að
ég var ekki sá eini sem var beittur of-
beldi og rekinn úr SFG heldur voru
það einnig nokkrir nágrannar minir.
Að vísu var mismunandi aðferðum
beitt en verknaðurinn sá sami.
í nokkur ár hefur öfund og gremja
búið um sig hjá hópi garðyrkjumanna.
sem ekki hafa aðstöðu til heimasölu.
formanni. Jú, hann býður uppá aðúr-
skurði sé skotið til dómaranna.
í smáatriðum er í raun ekki hægt að
svara svona fúkyrðum, eins og birtast í
grein Hjalta Jakobssonar. Ef það er
gert til að níða niður persónu mína, þá
verði honum aðgóðu.
Þó get ég ekki skilið svo við þetta
mál að taka ekki fyrir gúrkudæmið frá
því í apríl í fyrra. Ég segi í viðtali við
DB 10. júli: „í fyrravor gerðist það að
inn voru fluttar gúrkur frá Kanarieyj-
um gegnum Danmörku, sem gerði þær
margfalt dýrari. Á sama tíma voru ís-
lenzkar gúrkur að koma á markað. En
þær mátti ekki selja, hinar urðu að
klárast fyrst.”
í athugasemd stjórnarformanns
segir: „Þú fullyrðir, að vorið 1977 hafi
félagið flutt inn gúrkur frá Danmörku
og hent þeim íslenzku á meðan.”
Einnig segir, að 2500 kassar hafi bor-
izt til félagsins í marz og að þeir hafi
selzt allir affallalaust. Það vildi svo til
að ég flutti sjálfur afurðir minar i hús
SFG á þessum tíma og vissi ég þvi
náið, hvað varaðske.
4000 kassar höfðu safnazt saman
áður en sala á islenzkum gúrkum fór í
gang. Að sjálfsögðu var það enginn
vandi hjá SFG að bókfæra þessa 2500
kassa selda i marzmánuði. En hvað
skeði svo í staðinn í april? Það sýnir
hjálögð innlagsnóta yfir útkomuna í
april. Hún sannar kannski það mál
forsvarsmanna SFG að afföllin séu
1—2%. Það eftirlæt ég lesendum að
dæma um.
Það má vel vera að eftirleikurinn i
sambandi við þetta mál geti þróazt á
ýmsa vegu, en hvað sem þvi líður þá er
það Dagblaðinu að þakka, að almenn-
ingur hefur fengið að skyggnast litil-
lega undir þann hjúp, sem fyrirtæki
þetta hefur sveipað um sig i skjóli ein-
okunar mörg undanfarin ár. Einu er
að lokum hægt að slá föstu: Sölusam-
tök i þágu eins atvinriuvegar sem
stjórnað er jafn aumlega og Sölufélagi
garðyrkjumanna eru verri en ekkert.
Ólafur Ólafsson,
garðyrkjumaður,
StuðlumÖlfusi
I|
/örur lamkvcsmt m*8fylg|andl n
LUFÉLAG GARDYRKJUMANNA
REYKJAVÍK
ólafur T ólafsson
Innxndar vörvr fró ySur I
apríl
Mlnur vurBloakkanir og afföll ikv. m«8f. ••Slum
258 kQMor gúrkur
Það er alltaf gaman að
þekkja náungann...
Þekkja hann jafnvel
betur en hann þekkir
sjálfan sig — og meira
að segja án þess
að hann hafi hug-
mynd um það
sjálfur...
Þetta er bók sem
þér innsýn
hugarheim
annara, án
þess að þú
þurfir að
spyrja þá...
Myndin sem kom tómataumræðunum af stað.
Þar er átt við sölu beint frá stöðunum
sem liggja vel við umferð, sem hefur
aukizt gífurlega undanfarin ár eins og
allir vita. Fólk notar tækifærið um leið
og það er á ferð til að fá sér ferskt
grænmeti og ódýrara en það á kost á í
verzlunum.
Þessi sala hefur ætíð verið þyrnir í
augum Þorvalds Þorsteinssonar for-
stjóraSFG.
Við upphefðina, sem Hjalti hlaut
við að veröa formaður „þorvaldaðist"
hann snarlega og greiðir nú félögum
sínum þung högg og stór, m.a. telur
hann mig „helzt ekki segja satt orð ó-
tilneyddur”, eins ogsegir í grein hans.
Á einum stað í grein sinni spyr
Hjalti af hverju ég haft ekki kært
„þennan rangláta úrskurð SFG til
félagsfundar”. Manni dettur í hug ný
afstaðin réttarhöld um mannréttinda-
mál sem vakið hafa heimsathygli.
Maður líttu þér nær. Hjalti formaður
sér ekkert athugavert við það að byrja
á þvi að kveða upp dóm og framfylgja
honum. Rannsókn málsins áður er
ekki á dagskrá, engin ákæra birt, al-
menn mannréttindi mega fara lönd og
leið þegar það hentar þessum skelegga
(ATH! Þérervlss-
ara að tryggja þér
elntak i tima, þvi
bókin bókstaf-
lega rikurút...!)
Samtak s
Elnholtl I
simi
26620.
í
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf., Vesturgötu 42, Reykjavík
Vinsamlegast sendið mér í pósti bókina
Sjqfharyndi
Unadur ástalifsins skýrduri máli og myndum
Hjálögð er greiðsla kr. 8.700.00.
(nafn)
(heimilisfang)
(póstnúmer)
Ath. að senda greiösluna í ávísun eöa ábyrgöarbréfi
Raddir
lesenda
Ertu búinn að jafna
þig eftir að hafa séð
skattseðilinn þinn?
Pétur Einarsson verzlunarntaður: Ég er
ekki farinn að sjá hann enn. Ég kviði
ekkert fyrir því að fá hann. þvi ég er
ýmsu vanur.
Kristinn Richardsson bilstjóri: Ég
erekkert ógurlega óhress. Það kemur sér
alhaf vel að eiga dálitið af börnum upp á
skattinn aðgera.
Hreir.n Halldórsson kúluvarparí: Ég
er alltaf jal'n ánægður fyrir og eftir á.
Haraldur Gislason fyrrverandi sveitar-
stjóri: Ég er ekki búinn að sjá hann. Ég
bý suður með sjó og það er ekki búið að
dreifa þeim þar. Ég vonast nú samt til
þess aðsjá hann i dag.
Haraldur Blöndal lögfrxðingur: Það er
ekkert að jafna sig eftir. Ég var búinn að
reikna þetta út. Venjulegir launamenn
ættu að geta reiknað út hvað þeir fá i
skatt.
Garðar Sigurösson barþjónn á Hótel
Borg: O já, ég er búinn að gera það.
Þetta vareins ogégbjóstalltaf við.