Dagblaðið - 29.07.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 29.07.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978. 5 DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS I Delma tölvu-úr með vfsum. p m 2 S úr framtíöarinnar, svissnesk gæöi *; 1. QUARTZ ANALOG TÖLVU UR. 2. Framleidd af stærstu úraverk- smidjum S viss (EBA UCHE). 3. Sett saman af Delma Walch Ltd. Sviss. 4. Hefur venjulega skrfu og visa. 5. Gengur fyrir einni rafhlöðu sem endist i 12—15 mán. 6. Vatnsvarið og höggvarið. 7. Nákvæmni ca 3. min. i + — á DfcrlMA 8. Þykkt á úrunum, aðeins 9 til 11 mm. 9. Sett saman úr einingum (viðgerð auðveld). 10. 1 árs ábyrgð. Faglærðir menn. UR OG SKARTGRIPIR JON OG OSKAR LAUGAVEGI70 S. 24910 PÓSTSENDUM g Kaupið úrin hjá úrsmið. | DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS DELMA SWISS Stjórnarmyndunartilraunimar: Hvað segja þingmenn og forystumenn laun- þega- og hagsmuna- samtaka? Dagblaðið hefur að undanförnu leitað eftir skoðunum þingmanna og forystumanna launþega- og hagsmunasam- takanna i iandinu á stjórnarmyndunarviðræðunum. Níi virðist þeim lokið i bili. Ástæða er þó til þess að kanna viðhorfin áfram. BS/ASt. „Ef Alþýðuf lokkuringi kemur ekki fram stefnumálum sínum á að efna til nýrra kosninga” — segir Árni Gunnarsson Gunnar Guðbjartsson formaður Stéttarsambands bænda: „GENGISFELUNG TIL BÓTA FYRIR BÆNDUR — ef vöruverði innanlands er haldið niðri með hliðarráðstöfunum” „I fyrsta lagi er staðreyndin sú, að staðan er ákaflega óljós eins og er. Þótt komizt yrði að niðurstöðu í efnahags- málunum má ekki gleyma því að utan- ríkismálin eru eftir,” sagði Árni Gunnarsson alþingismaður (A) í viðtali við DB. „Fólk er uppgefið á þessari bið. Á meðan leikin er pólitisk refskák hrannast vandamálin upp. Almenningur gerir sér ljósa grein fyrir nauðsyn þess að stjórnarmyndun sé hraðað. Ég er þeirrar „Mér sýnist á öllu, að þessar viðræður ••m vinstri stiórn séu með öllu strandað- Gunnar Guðbjartsson. — illt að vinstri flokkarnir náðu ekki saman. ar. Fundurinn, sem vera átti með full - trúumlaunþegasamtakaogbænda, hefur verið afturkallaður og hlýtur það að boða aigert strand,” sagði Gunnar Guð- bjartsson, formaður Stéttarsambands bænda, í viðtali við DB. „Það er ilit að vinstri flokkarnir skuii ekki geta komið sér saman um stjórnar- myndun og úrræði til lausnar aðsteðj- andi vanda. Stuðningsfólk þessara flokka er það fólk, sem mest á undir því komið að tekizt sé á við vandann og hvernig úr rætist. 1 þeim flokki eru bændur.” Gunnar kvað bændasamtckin ekki hafa tekið afstöðu til einstakra leiða til lausnar vandanum. „Við erum til við- ræðu um gengisfellingu, ef þær hliðar- ráðstafanir fylgja, að verði á innlendri framleiðslu verði haldið niðri og gengis- fellingin verði ekki verðbólguhvetjandi.” Gunnar sagði að gengisfelling myndi bæta aðstöðu bænda hvað snertir út- flutning landbúnaðarvara, en þó því að- eins að vöruverð innanlands hækkuðu ekki. Gunnar sagði að ef fundurinn með viðræðunefndum flokkanna þriggja og fulltrúum launþegasamtakanna og bænda hefði ekki verið afturkallaður, hefði á honum vafalaust verið rætt um einstakar leiðir til úrlausnar. Væri því leitt, að fundurinn hefði verið afturkall- aður i gær. —ASL Árni Gunnarsson. — Minnihlutastjórn er mér jafn hugleik- in og áöur. skoðunar, að ekki séu nægileg heilindi i þessum viðræðum af allra hálfu,” sagði Árni. Hann kvað Alþýðuflokkinn hafa gengið heils hugar til þessara viðræðna og að formaður flokksins, Benedikt Gröndal, hefði ýtt á þær eins og hægt hefði verið. Hann hefði meðal annars lagt áherzlu á að láta reyna á, hvort aðrir væru sama sinnis um nauðsyn þess að hraða stjórnarmyndun í einlægni. „Ég hefi haldið því fram, að við ættum ekki að hanga of lengi yfir þessu. Ráðherrastóla á ekki að meta svo mikils að þeir trufii rétt mat á kringumstæöum og eytt sé of löngum tíma í tilgangslitlar viðræður,” sagði Árni Gunnarsson. „Minnihlutastjórn er mér jafn hug- leikin og áður. Ég tel að Alþýðuflokkur- inn eigi áður en langt líður að leggja fram tillögur sínar, ef honum gefst kostur á minnihlutastjórn. Láta síðan reyna á hvernig til tekst. Ef hann kemur ekki stefnumálum sínum fram ber að efna til nýrra kosninga,” sagði Árni. Hann sagði að lokum: „Ef þessi stjórnarmyndun tekst ekki, lít ég á Alþýðubandalagið sem krónískan stjórnarandstöðuflokk, sem er reiðu- búinn að taka þátt í stjórn landsins, þegar allt leikur i lyndi, en hafnar þátt- töku, þegar allir sjóðir eru tómir.” BS. Magnús L. Sveinsson: „Þetta eru hrein svik við fólkið” — Fólkið kaus vinstri flokkana sem sögðust hafa ráð við vandanum en standa nú uppi ráðalausir BÍLAHÖLUN stM,76222 Skemmuvegi4 - Kópavogi Vantar ný/ega bí/a á skrá. 1000 fermetra sýningarsa/ur til kl. 10 öll kvöld OPIÐ sunnudaga kl. 1—7 „Ég lít svo á að þjóðin hafi óskað eftir þvi með atkvæði sinu, að vinstri stjórn yrði mynduð. Það varð stórkostleg fylg- isaukning hjá þeim sem predikuðu vinstri stjórn, og því óraunhæft að draga aðrar ályktanir en að fólkið vildi vinstri ctirSrn ” sanði Magnús L. Sveinsson Magnús L. Sveinsson. — eölilegt að vinstri stjórn leysi vand- ræðin sem siðasta vinstri stjórn skapaði. skrifstofustjóri V.R. er við inntum hann álits á stjórnarmyndunarviðræðunum. „Alþýðuflokksmenn og kommúnistar sögðust hafa ráð við þeim vanda sem blasti við. Alþýðufiokkurinnkynnti þau ráð í 10 boðorðum og kommúnistar með útgáfu bókar, sem heitið var að dreifa á öll heimili landsins. Kjósendur bundu því miklar vonir við þau ráð sem þessir menn sögðust hafa. Það kemur því mér sem öðrum á óvart að þessir sömu menn og kjörnir voru og fengu mikið fylgi skuli nú standa uppi ráðalausir og ekki ná saman til að fram- fylgja boðaðri stefnu sem fólkið valdi. Þetta eru hrein svik við kjósendur,” sagði Magnús. Magnús kvaðst ekki vilja leggja dóm á þau tillögubrot sem borizt hefðu út frá viðræðufundunum. Kvaðst hann vita að vandinn væri mikill og kvaðst telja að hann yrði ekki leystur nema með sam- stilltu átaki þjóðarinnar allrar. „Það þarf að gera heildarúttekt á þeim erfiðleikum sem við er að etja. Fólkið er orðið þreytt á þeim bráðabirgðaúrræðum sem gerð eru frá degi til dags og minna helzt á þegar verið er að binda gamalt bilhræ saman svo komizt verði á þvi svolítið lengra. Ég vil líka leggja á það áherzlu, að erf- iðleikarnir sem við er að etja eru arfur frá vinstri stjórninni og þvi er eðlilegt að vinstri stjórn takist á við þann vanda, sem hún skapaði og hljóp frá.” —ASt

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.