Dagblaðið - 29.07.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978.
t ..........
Á ferðalagi með DB og Sunnu umhverfis jörðina:
San Francisco,
töfrandi borg
Þaö hillir undir lok ferðarinnar, sem
einn heppinn áskrifandi Dagblaðsins
hreppir í næsta mánuði og fer i ásamt
gesti sínum og einkafararstjóra þeirra,
sem Sunna og Dagblaðið senda.
Ferðin spannar hnöttinn, enda höfum
við kallað hana Umhverfis jörðina á 30
dögum. Dagamir hafa verið ótrúlega
fljótir að líða og við höfum kynnzt
hinum ólikustu þjóðum I þessari ferð,
menningu þeirra og högum.
Samt er ekki svo að skilja að við sé-
um í námunda við hinn kalda og gráa
Keflavikurflugvöll, þegar við rennum
inn á flugbraut við San Francisco. En
samt heyrum við sama tungumál og
mjög er tiðkað á flugvellinum okkar,
hreina og klára amerísku.
Flestir íslendingar tala reyndar
ensku, og nú minnust við þess að ein-
mitt það tungumál hefur dugað okkur
vel í ferðinni, mun betur en víðast i
Evrópulöndum.
San Francisco er í daglegu tali bara
kallað Frisco og er á vesturströnd
Bandarikjanna. Þangað liggja leiðir fs-
lendinga sjaldnast og þvi er hér enn
eitt stórkostlegt tækifæri til að kynn-
ast frábærri borg, borg sem jafnvel
allir Bandarikjamenn eru sammála
um, að ekki sé talað um erlenda gesti
sem til borgarinnar koma!
Þrátt fyrir þokuna, sem yfir borgina
dynur með jöfnu millibili, dylst okkur
ekki fegurð hennar og þokki. Hita- og
rakastigið eru líka alveg eins og allir
óska sér. Borgin er byggð á hæðum og
svo virðist sem bifreiðarnar séu sífellt
á upp- eða niðurleið á akstri um borg-
ina. Sérstaka athygli þeirra sem koma
til borgarinnar vekur sú flutningaað-
ferð að aka fólki með vögnum, sem
Mannlifíð 1 San Francisco er marg-
breytilegt og trúlega frjálslegra en
víðast hvar annars staðar i Vestur-
heimL
ganga eftir stálvirum milli hæðanna.
Eflaust er það helber sérvizka að halda
áfram að ferðast á þennan gamla
máta. En þeir Frisco-menn kunna vel
að meta þetta og hafa ekkert í hyggju
að hætta að ferðast með loftvögnun-
um sínum.
Á símskeytahæð, Telegraph Hill,
stendur Coit-turninn eins og varð-
maður yfir borginni, enda notaður
áöur fyrr sem útsýnisturn borgarbúa.
I Hótel Mark Hopkins fáum við
okkur trúlega hanastélsblöndu í ljósa-
skiptunum. Við höldum upp i sal á
efstu hæð og útsýnið er hreint ótrú-
legt, 75—80 kílómetra í allar áttir.
Þaðan sjáum við nágrannaborgir,
risabrýr og Gullna hliðið eða Golden
Gate, hliðið út á hið mikla úthaf,
Kyrrahafið.
Hér verður margt að skoða, enda
borgin söguleg í meira lagi, litrík og
ein þeirra borga sem getur með sanni
talizt heimsborg.
Hér var grunnurinn lagður að Sam-
einuðu þjóðunum árið 1945 í Óperu-
húsinu. Hér búa líka menn og konur
frá öllum löndum. Hér finnum við nú-
tímann, og jafnvel fyrri aldir geta opn-
azt okkur þar sem eru markaðir Ital-
anna I Latínuhverfinu.
Og þegar okkur tekur að hungra er
ekkert vandamál að skella sér inn á
einhvern matstaðinn. Mestur vandinn
verður að velja, því allra þjóða mat er
hægt að fá. í Bandaríkjunum þykir
það ekki mikið fyrirtæki að fara út að
borða. Það er ódýrt, — og það er gott
fæði sem boðið er upp á. Lélegur kokk-
ur verður aldrei rikur þar í landi.
Það er haft eftir stórsöngvaranum
Caruso að hann hafi sagt: „Einkenni-
legt með ykkur hér i borg. Hvers
vegna verður enginn feitur hérna?” Og
það er satt, það er stöðug gáta hvers
vegna matgoggar eins og þeir í Frisco
fitna ekki meira en raun ber vitni.
Sporvagnarnir og ótal hæðir eru einkenni San Francisco. Ýmsir hafa orðið til að
líkja borginni við risastóran „rússíbana”. —Ljósmyndir: Jim Smart.
Á listasviðinu er mikið um að vera i
San Francisco og þeir státa af þrem
óperufyrirtækjum og einni sinfóniu.
Áratugum saman hefur borgin dregið
til sin fræga rithöfunda, sem setzt hafa
þarað.
Liklega eru ferðalangarnir orðnir
nokkuð dasaðir, en áreiðanlega i sjö
unda himni, þegar farið er frá San
Fransicso með flugi yfir þver Banda-
ríkin yfir til austurstrandarinnar. Þar
biður okkar síðasta borgin i þessari
einstöku ferð, sem Islendingar al-
mennt fara ekki á sinni lifsleið, New
York. Þar verðum við komin I „beint
samband” við gamla landið okkar.
—JBP—
Nýkomið!
Urva/s
enskir herra/eðurskór
ifc, með leðursólum.
Kirkby
PA Black
Jmt Kr. 11A60íÆ^~
Woking
Kr. 10.950
Teg. 8878
Kr. 10.630
Teg. 3067
Kr. 12.350
Teg. 542 F
Kr. 9.560-
Ound/e
Black
Kr. 11.460
Teg. 641T
Kr. 9.910 -
Teg. 691T
Kr. 11.220
Teg. 3077
Kr. 10.950
'sbrœbur
Laugavegi 24
Sími 15955.
A!■ fej
sk ■ VA