Dagblaðið - 29.07.1978, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978.
/————
„EHI-tnternational” í New York:
SÆVAR
KOM
MESTÁ
ÓVART
t Bandaríkjunum eru árlega haldin
ógrynni af svokölluðum „opnum
mótum”, þar sem öllum er heimil
þátttaka, jafnt byrjendum sem lengra
komnum. í síðasta þætti sagði frá
„World Open” mótinu í Philadelphiu,
en þar tefldu 14 íslendingar. 7 þeirra
létu ekki þar við sitja, heldur héldu
ótrauðir áfram taflmennsku. Næsta
viðfangsefni var „GHI-International”
skákmótið, sem fram fór i New York.
Það hófst aðeins þremur dögum eftir
að hinu lauk og lá því einkar vel við
höggi fyrir hina skákþyrstu íslendinga.
Tefldar voru 11 umferðir eftir nýju
kerfi, sem miðaði að þvi að gefa sem
flestum möguleika á að krækja sér í
áfanga að alþjóðlegum titlum. Því
svipar mjög til Monrad-kerfisins, en
þó hefur skákstjórinn nokkuð frjálsari
hendur. Það virtist bera ríkulegan
ávöxt, þvi 9 skákmenn náðu alþjóð-
legum árangri og 1 stórmeistara-
árangri.
Vinningafjöldi íslendinganna varð
þessi:
Jón L. Árnason 7 v. Sævar Bjarna-
son 6,5 v. Margeir Pétursson 5,5 v.
Guðni Sigurbjarnarson og Jóhannes
Gislason 5 v. Bragi Halldórsson og
Ásgeir Þ. 4rnason 4,5 v.
Sævar kom einna mest á óvart af
tslendingunum. Hann hefur verið í
lægð nú síðustu árin, en virðist nú
hafa rifið sig upp og náð sínum fyrri
styrkleika. Hann var í toppbaráttunni
lengi vel, en tap í einni af síðustu
umferðunum gerði vonir hans að
engu.
Slakur árangur Margeirs er einnig
eftirtektarverður. Eftir 7 umferðir
hafði hann einungis hlotið 2 vinninga
og mátti svo sannarlega muna betri
tíð- Með góðum endaspretti tókst
honum þó að bjarga andlitinu —
a.m.k. aðeinhverju leyti — og má eftir
atvikum vel við una.
Alls tóku 4 stórmeistarar þátt í
mótinu, Rúmeninn Gheorghiu,
Balinas frá Filippseyjum og Banda-
rikjamennirnir Benko og Bisguier.
Gheorghiu var sá eini þeirra, sem
sýndi snilli stórmeistarans. Hann
sigraði örugglega á mótinu, hlaut 8,5
vinninga og tapaði ekki skák. Annað
sætið kom I hlut Kanadamannsins
Biyiasas, sem fékk 8 vinninga og stór-
meistaraárangur að auki. Var það í 3.
sinn sem hann náði þeim árangri og
verður hann því væntanlega út-
nefndur stórmeistari á FIDE-þinginu í
nóvember.
t 3.—8. sæti voru: Valvo,
Fedorowitz, Popovich, E. Meyer,
Hebert og Rind, allir með 7,5
vinninga.
Þá er komið að skákum dagsins.
Fyrst er hér sýnishorn af taflmennsku
Sævars á mótinu:
Orðarugl
T3
C
ttj
X!
C
«J
Orðarugl 28
Ruglað hefur verið stöfum i fimm orðum, en gefinn er upp fyrsti
stafurinn í orðunum áður en þeim var ruglað. Finnið út hvernig orðin
voru upphaflega og takið siðan stafina sem koma í hringina og færið þá
niður I svarreitina. Þá kemur fram brennandi spurning dagsins. Merkið
umslagið Dagblaðið, pósthólf 5380, Orðarugl 28. Skilafrestur er til næstu
helgar.
Lausn á Orðarugli 26 var ERFIÐ FÆÐING, og hlaut verðlaunin,
2000 krónur, Jóhann Eiríksson, Hátúni 4A, 105, Reykjavík. Verðlaunin
verða send.