Dagblaðið - 29.07.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978.
15
BORGAR SIG AÐ
FARA Á MNG?
Skrifstofustarf
Launadeild fjármálaráðuneytisins óskar að
ráða starfsmann til léttra skrifstofustarfa
strax.
Nánari upplýsingar veittar á staðnum eða í
síma 25000.
Fjármálaráðuneytið
— bornir saman skattar „gamalla” og nýrra þingmanna Reykjavíkur
Mikið skal til mikils vinna. Margir
leggja hart að sér að komast á þing og
komast þannig i valdaaðstöðu í þjóð-
félaginu. En borgar það sig fjárhagslega?
Ef bornir eru saman skattar þingmanna
Reykjavíkur og þeirra manna er nú tóku
sæti á þingi fyrir kjördæmið sem nýir
þingmenn, er ekki annað að sjá en svo
sé. Hinir gömlu jaxlar, sem hafa setið á
þingi skulu greiða til muna hærri skatta
og eru því væntanlega með hærri tekjur
sem þvi nemur.
í þennan hóp þingmanna Reykjavíkur
er ekki hægt að taka Ólaf Ragnar
Grímsson, þar sem hann á heimili á
Seltjarnarnesi og skattskrá þaðan er ekki
komin úr prentun. Þá er heldur ekki
hægt að segja til um skatta þingmann-
anna Svövu Jakobsdóttur, Ragnhildar
Helgadóttur og Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, þar sem þeirra framtöl eru
sameiginleg með eiginmönnum þeirra.
Hvað varðar skatta Björns Jónssonar
skal þess getið að hann hefur verið
sjúklingur. Hvað varðar samtölur má
geta þess að hér eru ekki sundurgreind
öll gjöld. JH
Nafn Tekjuskattur Eignarskattur Skyldusp. Útsvar barnab. Samtals
Albcrt Guðmundson 3.113.648 498.996 651.000 1.090.000 5.590.295
Benedikt Gröndal 924.937 25.338 107.000 878.300 1.629.202
Eðvarð Sigurðsson 756.227 373.300 1.202.812
Einar Ágústsson 1.525.807 181.355 457.000 878.300 3.232.362
Ellert Schram 1.459.955 165.000 563.400 368.500 1.948.813
Geir Hallgrimsson 1.417,979 383.824 574.000 983.100 3.569.814
Gunnar Thoroddsen 453.510 869.000 1.501.865
Nýir þingmenn
Björn Jónsson 77.100 51.803
Friðrik Sófusson 205.716 346.800 67.000 567.652
Svavar Gestsson 106.302 404.100 268.000 336.896
:Vilmundur Gylfason 680.517 147.000 575.700 67.000 1.467.758
„Það leggst svona sæmilega i mig,”
sagði Eggert Haukdal er DB hafði
samband við hinn nýkjörna þingmann
og spurði, hvernig þingmennskan
legðist í hann. „Auðvitað verða þetta
mikil viðbrigði og talsverð breyting á
högum manns. Ég kem þó til með að
halda áfram búskapnum.”
Aðspurður kvaðst Eggert lengi hafa
haft áhuga á pólitík og starfað að
félagsmálum frá unga aldri í sinni
heimasveit. Eggert sagðist vissulega
líta á sig sem fulltrúa bænda en einnig
héraðsins alls. Því að Ijóst væri, að
landbúnaðarhéruðin væru ekki
bundin við landbúnaðinn einan.
„Landbúnaðurinn tekur aðeins við
litlum hluta af því fólki, sem kemur á
vinnumarkaðinn í þessum héruðum.
Ég kem þvi til með að leggja áherzlu á
atvinnumál og vaxandi iðnað. Mikið
atriði er að fá byggðakjarna í hverri
sveit og efla þá staði sem fyrir eru, því
að hagsmunir þeirra sem í sveitum búa
_ og bæjarbúanna fara saman. Þeir eru í
þessum efnum hver annars limir eins
og segir í helgri bók.”
Einnig kvað Eggert samgöngumálin
vera mikið meginmál. Auka þyrftí
vegagerð verulega. En einkum vild
hann undirstrika landbúnaðinn og
úrbætur í þeim efnum. Það væri mjög
þýðingarmikið þar sem sl. sjö ár hafi
verið tekið of linlega á vandamálum
bænda. Það hafi verið öðru visi í tólf
ára landbúnaðarstjórn Ingólfs Jóns-
sonar. „Draga má úr vandamálum of-
framleiðslunnar með því að skera
niður rikis- og tilraunabúin, og hobbi-
búskapur á ekki að fá sömu fyrir-
greiðslu og þeir sem hafa lífsviðurværi
sitt af landbúnaðinum. Offramleiðslan
er raunar minni en af er látið. Þið
þarna á DB gerið mikið af því að blása
út vandamál undirstöðuatvinnuveg-
anna en hætt er við, að DB seldist ekki
mikið ef þessi undirstaða væri ekki til
staðar.” Með þessu sagðist Eggert þó
ekki vera að draga úr gildi annarra
stétta en framleiðslustéttanna en
menn yrðu að muna eftir hver væri
undirstaðan í lífi þjóðarinnar.
Um bjórinn sagði Eggert: „Ofneyzla
áfengis er ein af höfuðmeinsemdum
okkar þjóðar. Ef það lægi fyrir, að bjór
drægi úr neyzlu sterkari drykkja þá
mundi ég endurskoða afstöðu mina.
En meðan það liggur ekki fyrir þá er
égámótibjórnum.
Um áhugamál sín sagði Eggert, að
ekki væri um að ræða miklar frí-
stundir frá búskapnum. Áður hafi
áhugamál hans einkum tengzt Ung-
mennafélagshreyfingunni en í seinni
tið sveitarstjórnarmálum, pólitík og
félagsmálum almennt.
Er Eggert var spurður hverjar hann
DAGBLAÐIÐ
kynnir nýju
þingmennina:
Of linlega tekið á
vandamálum bænda
— segir Eggert Haukdal nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins
teldi vera helztu ástæðurnar fyrir
tapi Sjálfstæðisflokksins sagði hann,
að þar væri verðbólgunni fyrst og
fremst um að kenna. „Því þótt margt
hafi verið vel gert hjá ríkisstjórninni
þá voru efnahagsmálin tekin of linum
tökum og klaufalega var staðið að
kaupgjaldsmá'unum, að krukka í
gerða samninga. Ef verulega hefðu
verið lækkuð launin hjá þeim sem
mest hafa fríðindin þ.á.m. þeirra sem
lögin settu — þá hefði mátt hækka
lægri launin. Því má þó ekki gleyma,
að þessi stjórn tók við heldur slæmum
arfi þar sem var verðbólga yfir 50%
en þrátt fyrir það vildi fólk sjá árangur
í þeim efnum,” sagði Eggert að lokum.
Eggert Haukdal er fæddur 26.4
1933 í Flatey á Breiðafirði. Hann
fluttist tólf' ára gamall að Bergþórs-
hvoli og hefur verið bóndi þar með
blandaðan búskap. Hann er
búfræðingur að mennt.
GAJ
Húsavík
Blaðbera vantar f Suðurbæ
Uppl. gefur Þórdís Arngrímsdóttir
Baldursbrekku 9. — Sími 96-41294.
mmiAÐin
Kennarar
Kennara vantar að grunnskólanum
Hallormsstað. Uppl. hjá skólastjóra um
símstöðina Hallormsstað.
Reiknistofa
bankanna
óskar að ráða starfsmann til tölvustjórnar.
í starfinu felst m.a. stjórn á einni af stærstu
tölvum landsins ásamt móttöku og frágangi
verkefna.
Við sækjumst eftir áhugasömum starfsmanni
á aldrinum 20—35 ára með stúdentspróf,
verzlunarpróf eða tilsvarandi menntun.
Starf þetta er unnið á vöktum.
Skrifleg umsókn sendist Reiknistofu bank-
anna, Digranesvegi 5, Kópavogi, fyrir 4. ágúst
nk., á umsóknareyðublöðum sem þar fást.
„Peoples Problems
and Progress"
Tveggja stunda samstund
með SYSTUR CHRISTINE
fyrrverandi yfirráðgjafa
Veritas-Villa
HÓTEL ESJU (2. HÆÐ)
Mánudag 31. júli kl. 20-23,
þriðjudag 1. ágúst kl. 20-23.
Þátttökugjald kr. 2.500.- pr. mann
KRISTÍNARVINIR ’77