Dagblaðið - 29.07.1978, Qupperneq 24
4
f
Sólarhringsvinna verður að 10 daga vinnu vegna verkbanns verkaiýðsfélaganna:
3 afkastamestu loðnu-
verksmiðjurnar neita
að taka við meiri loðnu
— aðeins 13 af 39 bátum geta þvíhafið veiðar 1. ágúst
Það mun taka hátt í hálfan mánuð
að vinna þau rösklega þúsund loðnu-
tonn, sem nú liggja fyrir vinnslu i Síld-
arverksmiðjunni á Siglufirði, eftir að
yfirvinnu- og vaktavinnubann i verk-
smiðjunni tók gildi í fyrrakvöld. Þessi
verksmiðja var komin upp í að vinna
þúsund tonn á sólarhring, með vakta-
fyrirkomulagi og þrátt fyrir átumagnið
i loðnunni. Hefur hún mjög verið
endurbætt undanfarið til að geta tekið
viðsumarloðnunni.
Þetta hefur blaðið eftir ábyrgum
aðilum í röðum fiskmjölsframleið-
enda, enda tekur mjög langan tíma að
setja af stað og stöðva slika vinnslu
svo ekki yrði um vinnslu að ræða
nema nokkra tíma á dag.
Forsvarsmenn bræðslunnar á Siglu-
firði og bræðslanna tveggja í Eyjum,
sem eins er komið fyrir, sjá sér þvi ekki
fært að taka við neinni loðnu, en þess-
ar þrjár bræðslur eru þær afkasta-
mestu á landinu. Afkastageta þeirra er
3 til 4 þús. tonn á sólarhring.
Þetta ástand hefur orðið til þess að
loðnunefnd hefur ákveðið að leyfa 13
bátum af þeim 39 sem hófu veiðar, að
halda áfram veiðum, frá og með að-
faranótt 1. ágúst. Við venjulegar að-
stæður hefðu allir fengið að veiða.
—GS.
í UÖSASKIPTUM SÍÐSUMARSINS Hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá er dagurinn þegar farinn að styttast, enda hallar nú sumri. Þessi failega mynd var tekin af Sólarlagsbrautínní — sem stundum er lika kölluð Ástarbraut — fyrir nokkru. Það er Gróttuviti sem er I baksýn. DB-mynd: RagnarTh.
„Alþýðuflokkurinn brást
launafólkinu í landinu”
— segir Ólafur Ragnar Grímsson
„Kjaminn i þjóðmálabaráttu Alþýðuflokkurinn reiðubúinn að
síð'ustu mánuði eru átök verkalýðs- halda því samstarfi áfram. Þegar þær
hreyfingarinnar við kaupránsaðgerðir
þeirrar ríkisstjórnar, sem féll í kosning-
unum." sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son alþingismaður (G) í viðtali við DB.
Hann bætti við:
„Þeir flokkar, sem fóru með sigur af
hólmi í kosningunum, höfðu flutt mál
sitt á þann veg, að glima ætti við lausn
efnahagsvandans á annan hátt en
ríkisstjórnin hafði gert, þ.e. án þess að
skerða kjör fólksins í landinu og
samningsrétt verkalýðshreyfingar-
innar.
Þau miklu tímamót, sem urðu í ’
alþingiskosningunum stöfuðu m.a. af
eindregnum mótmælum launafólks
gegn verðbólgu-, gengisfellingar- og
kaupránsstefnu rikisstjórnarflokk-
anna. í könnunarviðræðum Alþýðu-
bandalagsins og Alþýðuflokks lagði
Alþýðubandalagið áherzlu á það að
flokkarnir héldu áfram þeirri sam-
stöðu, sem fulltrúar þeirra náðu í verð-
bólgunefndinni sl. vetur ásamt fulltrú-
um ASÍ og BSRB i þeirri nefnd. Hún
fólst í því að farin yrði niðurfærslu- og
ærsluleið til þess að stöðva verð-
i- . una. Þeim gengisfellingartillögum,
s r;i isstjórnarflokkarnir lögðu til,
,;..-að.
’unarviðræðum virtist
fóru fram var Alþýðuflokkurinn sam-
mála Alþýðubandalaginu um að hafna
gengisfellingarleiðinni. Þegar stjórnar-
myndunarviðræður hófust fór það
hins vegar smátt og smátt að koma í
ljós, að Alþýðuflokkurinn var horfinn
frá fyrri samstöðu um niðurfærslu- og
millifærsluleiðir.
í gær kom það svo loksins skýrt
fram, að Alþýðuflokkurinn var nú, 4
vikum eftir kosningar, með allt aðrar
tillögur. Því miður voru það í stórum
dráttum sömu tillögur og ríkis-
stjórnarflokkamir voru með í vetur
svo ótrúlegt, sem það kann að virðast,
og vissulega olli það vonbrigðum og
undrun meðal alþýðubandalagsmanna
og forystumanna verkalýðshreyfingar-
innar. Nú lagði Alþýðuflokkurinn til
15% gengisfellingu, sem launafólk átti
að taka á sig án nokkurra bóta og þar
að auki frestun þess, að mikilvæg
ákvæði kjarasamninganna tækju gildi.
Þessar tillögur Alþýðuflokksins fela
i sér helmingi meiri kjaraskerðingu en
fólst í bráðabirgðalögum ríkisstjórnar-
innar í maí.
Það er þvi engin furða þótt fulltrúar
Framsóknarflokksins i viðræðunum
hafi orðið kampakátir yfir því, að
Alþýðuflokkurinn var nú með sömu
tillögur og ríkisstjórnin. Enda kallar
Steingrímur Hermannsson það í
viðtali við Dagblaðið, að „Alþýðu-
flokkurinn sé kominn niður á jörðina.”
Alþýðubandalagið neitaði hins
vegar algerlega að yfirgefa þá stefnu,
sem það og verkalýðshreyfingin hafa
barizt fyrir á undanfömum mánuðum
og hafnaði því að taka þátt í þeim
hringsnúningi, sem fólst i kúvendingu
Alþýðuflokksins.
Við vonuðumst hins vegar til þess
að þegar Alþýðuflokkurinn sæi and-
stöðu verkalýðshreyfingarinnar, þá
myndi hann í anda trúboðsins um
kjarasáttmála snúa við á þessari svika-
braut og ekki láta þaðsannast, að hinn
margræddi kjarasáttmáli væri bara
dulmál fyrir meira kauprán,” sagði
Ólafur Ragnar.
„í stað þess að hefja viðræður við
verkalýðshreyfinguna um samstarf
hennar og verkalýðsflokkanna að
setja kjarasamningana i gildi, hefur
Benedikt Gröndal sýnilega kosið að
slita stjórnarmyndunarviðræðum.
Við í Alþýðubandalaginu hörmum
þá niðurstöðu og vonum að Alþýðu-
flokkurinn snúi aftur innan tíðar til
fyrri stefnumála,” sagði Ólafur
Ragnar Grimsson að lokum.
BS.
Ólafúr Ragnar Grimsson i hópi
samherja f Alþýðubandalaginu.
Fremstur er Ragnar Arnalds, fyrir
ofan Eðvarð Sigurðsson (t.v.) og
Lúðvik Jósepsson.
DB-mynd: Hörður.
J
frfálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978.
Sú fyrsta
á steypu-
bíl
Sigrún Sigurðardóttir heitir stúlkan á
myndinni og ökumaður steypubílsins.
Eftir því sem næst verður komizt er hún
fyrsta konan hérlendis sem gegnir því
veigamikla hlutverki að aka steypubíl.
Sigrún, nú á 24. ári, er ráðin hjá
Steypustöðinni hf. við Sævarhöfða
Reykjavík. Hún tók meirapróf í desem-
ber sl. og hefur því ekki ýkja langa
reynslu af akstri bifreiða í svokölluðum
D-flokki. Störf hóf hún hjá Steypustöð-
inni i gærmorgun og var að leggja upp í
þriðju ferð sína á steypubílnum sinum,
nýþvegnum og gljáfægðum, þá er Ijós-
myndari DB smellti af henni mynd.
Er hún var innt eftir hvemig það væri
að aka steypubifreið i fyrsta sinn, lét hún
sér fátt um finnast, en sagði aðeins: „Jú,
þetta er ný reynsla.”
—JÁ—.
balvaskur kvenmaður, hún Sigrún!
XðÞaöN
? Kaupið^
TÖLVUR >,
QG TÖLVUUR
BANKASTRÆTI8