Dagblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 17
ÐAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978. 17 Geysirgaus 40-50 m gosi á laugardaginn — Með lagfæringu á skál hversins má hef ja hann til vegs á nýjan leik Á laugardaginn var með mannahjálp framkallað gos í Geysi í Haukadal og var það fyrsta gosið sem úr hvernum kemur síðan í ágúst í fyrra. Það var Hallgrímur Björnsson efnafræðingur sem nánast stjórnaði athöfninni með dyggilegri aðstoð Þóris, sonar Sigurðar Greipssonar „Geysisvarðar”. Hallgrímur sagði að gosið nú hefði verið fallegt, 40—50 metra vatnssúla, þá loksins það kom í fjórðu lotunni frá hvernum. Tæmdi hverinn sig alveg, sem þýðir að hann sendir úr sér um 170 tonn af vatni. Að sögn Hallgríms fylgdi talsvert grjótkast gosinu nú og kvað Hallgrímur það stafa af steinkasti ferða- manna i hverninn og þar sem u.þ.b. ár leið frá síðasta gosi voru steinarnir margir sem hverinn endursendi upp á yfirborðið. Hallgrímur kvað ekkert þýða að huga að gosi í Geysi nema i góðu veðri. „Við mælum botnhita hversins og hann þarf að vera 123—125 gráður á Celcius. Skálina þarf síðan að tæma sem bezt, þvl þar kælist vatn Geysis mikið og færi kæling þar niður fyrir 70—80 gráður þýðir ekkert um gos að hugsa. Því er veðurstilla nauðsynleg forsenda Geysis- goss. Við gostilraun dregur hverinn niður i göngin vatn úr skálinni og sé það of kalt verður ekki um gos að ræða,” Hallgrímur setti í hverinn á laugar- daginn um 80 kg af sérstaklega lagaðri sápu. Var sápan látin í hverinn klukkan eitt. Kl. 2.07 byrjaði Geysir Geysir að „skvetta af sér” sem þýðir að hverinn tæmir sjálfur úr skálinni. Siðan hófust Flugleiðir fá stærri bita af pflagrímaflutningunum: NÚ ER ÞAÐ DJAKARTA ALLA LEIÐ TIL JEDDA gosin. 1 tveimur fyrstu náði Geysir sér ekki upp, enda kom vestan garri og rigning með kulda en loks í þriðju tilraun eða fjórðu lotu kom gosið, fallegt og hreint eins og áður segir. Hallgrímur segir að brýna nauðsyn beri til að gera aftur lagfæringar á renn- unni sem gerð var í skál hversins af þeim Trausta Einarssyni og Jóni úr Mörk á fjórða áratug aldarinnar. Fram að því hafði hverinn ekki gosið í um 30 ár. Þeir 2—3 sekundulítrar vatns sem úr hvernum renna stöðugt hafa borið kísillög í rennuna og hækkað skál hans Dýpka þarf rennuna sem fyrst að dómi Hallgríms, þvi ef hún stíflast alveg og vatnið flýtur yfir skálarbrúnir, hækkar skálina af kísilinnihaldi vatnsins og hverinn hættir áð gjósa alveg eins og forðum. Sagði Hallgrímur dæmi um hver sem alveg hefur stiflazt á þennan hátt skammt frá Geysi. Við tilfæringar sínar til að ná gosi, þegar aðstæður eru góðar, nota Hallgrímur og Þórir Sigurðsson gúmmi- slöngur til tæmingar skálarinnar áður en sápanersett bverinn. „Það er alltaf tilkomumikið að sjá Geysi gjósa,” sagði Hallgrímur. „Gosið varir i 20—30 mínútur frá byrjun til loka. Hann gýs allt öðru visi en Strokkur, sem var lífgaður upp frá dauðum með borun og gýs öðru vísi en áður, eða með einfaldri „sprengingu” og oftar en fyrr.” ASt. Flugleiðir hafa undanfarið kannað möguleika á flutningi pilagríma á trúar- hátíð Múhameðstrúarmanna í Mekka. í gær barst skeyti frá Þórarni Jónssyni, sem hefur samið um þessi mál af hálfu Flugleiða. 1 skeyti þessu kemur fram, að samningar hafa tekizt við Indónesiumenn um flutning á píla- grímum frá Djakarta til Jedda í Saudi Arabíu. Gert er ráð fyrir 50 flugum þ.e. 25 flugum hvora leið og að farþegar geti verið um 12500. Flutningar þessir hefjast 8. október og standa til 7. nóvember og hefjast svo aftur 17. nóvember og standa til 16. desember. Hér er um að ræða 21 klst. flug fram og til baka, sem er mun lengra flug heldur en Flugleiðir hafa áður haft með höndum. Ein þota DC-8 verður notuð til þessara flutninga. Indónesíumenn munu hafa látið í Ijós óskir um frekari flutning, og gera Flugleiðamenn sér vonir um, að þessi viðskipti aukist verulega í framtíðinni. GAJ Gosið tigulega, sem Hallgrfmur og Þórir fengu úr Geysi sl. laugardag. Vatnssúlan náði 40—50 metra hæð. DB-mynd Dagbjartur M. Jónsson. Thorex- pakkaraðhúsgögn Nýjasta nýtt! og aðeins í J.L. húsinu. Ekki afvonzku okkarhelduraf SPÆNSKRI VERÐBÖLGU Lúðvíg Hjálmtýsson ferðamálastjóri vildi koma á framfæri áréttingu við frétt i DB í gær. Þar er haft eftir honum að ódýrar Spánarferðir verði brátt úr sögunni. Vildi Lúðvig bæta því við að þetta væri ekki af neinni vonzku hérlendra manna heldur af því að verðbólgan á Spáni væri orðin mjög mikil. Hótel þar eru til sölu í stórum stíl vegna þess að þarlendir menn sjá fram á að þurfa að greiða starfsfólki aukið kaup á næstunni. Hvað sig varðaði vildi Lúðvig að það kæmi fram að hann óskaði þess af öllu hjarta að íslendingum yrði gert kleift að ferðast í auknum mæli til útlanda, ekki sízt með því að auka við þá gjaldeyris- skammtinn. ds Ódýrt- einfalt- fyrir unglinga á öilum aldri. Húsgagnadeild Jón Loftsson hf. LiTl l.....j Fl Ljj ___________________i 11 Hringbraut 121 Sími 1 Thorex - pakkaraðhúsgögn. Húsgögn, sem hver maöur getur raöað að eigin vild og flutt og breytt eftir þörfum. Thorex-pakkaraðhúsgögn, hönnuð af Sigurði Karlssyni. Sófi, stólar, hillur, borö, bekkir, skrifborð, skápar, hjónarúm. Fást lökkuð eða ólituð, þér getið ráðið litnum sjálf.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.