Dagblaðið - 30.08.1978, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. AGUST 1978.
(i
13
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
I
Faina Melnik var bezt 1 kringlukasti kvenna á sl. ári og ver EM-titil sinn 1974 i Pr.ig
Guðmundur Þórarinsson EvrópumeistaramótiðíPrag
NÝIMETHAFINN STÖDVAR EKKIACKERMAN
FINNINN BÆTTISIG
UM 28 SEK. OG VANN
— Óvænt úrslit í 10000 m hlaupinu á Evrópumeistaramótinu
„Eg hef verið bjartsýnn i allt sumar og
strax eftir fyrsta hring var ég viss um að
ég mundi sigra. Ég bjóst við að timi um
27.40 mundi nægja, þó annað kæmi á
daginn,” sagði hinn hávaxni Finni,
Martti Vainio, 27 ára verkfræðingur,
eftir aö hann hafði sigrað svo óvænt i
10000 m hlaupinu á EM i Prag í gær.
Hann hljóp á 27:31.0 mín. Þriðji bezti
tími, sem náðst hefur á vegalengdinni og
Finninn bætti sinn bezta árangur um 28
sekúndur!! Það er gaman að slíkum
mönnum.
Hins vegar var hlaupið ekki eins
skemmtilegt fyrir Brendan Foster. Bret-
landi. Hann hefur sennilega talið sig
öruggan með sigur — og reyndi ekki að
hrista hina af sér fyrr en undir lokin. Þá
gerði hann tvær tilraunir — en það var
of seint. Hinn langi Finni, 1,91 m.Ortis,
ítaliu, og Antipov, Sovét. fylgdu hon-
um. Foster átti svo enga möguleika i þá
á lokasprettinum. Eins og svo oft áður
varð hraðinn honum að falli.
Ekki bar mikið á Vainio í hlaupinu
þar til þrír hringir voru eftir. Hann hafði
haldið sig um miðjan hóp 24 hlaupara.
Þá tók hann á sprett og hljóp að
Brendan Foster. Fylgdi honum siðan
fast eftir — gaf ekki þumlung eftir,
þegar Foster reyndi að komast frá hin-
um. Á lokasprettinum lengdi hann svo
enn sín löngu skref og hinir áttu ekki
möguleika til sigurs. Foster hvarf í
keppninni miklu og Italinn sigraði þann
sovézka á marklínunni. Báðir fengu
sama tíma og stórbættu árangur sinn í
hlaupinu. En Vainio var maður dagsins
og minnti mjög á landa sinn Juha
Vaatainen, sem sigraði í 10 km í
Helsinki á EM 1971 á likan hátt. Og eins
og Vaatainen þá gæti Vainio einnig
sigrað nú i 5000 m hlaupinu.
Úrslit:
1. Martti Vainio, Finnlandi, 27:31.00
2. VenanzioOrtiz, Ítalíu, 27:31.50
3. Alexander Antipov, Sovét, 27:31.50
4. Brendan Foster, Bretlandi. 27:32.70
5. David Black. Bretlandi, 27:36.30
6. Gerard Tebroke, Hollandi, 27:36.60
7. Ilie Floriu, Rúmeniu, 27:40.10
8. Knut Kvalheim, Noregi. 27:41.30
9. EnnSellik.Sovét, 27:53.60
10. Jerzy Kowol, Póllandi, 28:17.00
11. JohnTreacy, írlandi. 28:19.60
12. Leon Schots, Belgiu, 28:29.40
13. Catalin Andreica, Rúmeniu, 28:38.00
j^Michael McLeod, Bretiandi, 28:43.20
■Dvind Dahl, Noregi, 28:43.50
T6. Frank Grillaert, Belgiu. 28:44.20
17. Ryszard Kopijasz, Póllandi, 28:44.60
. 18. Karel Lismont, Belgiu, 28:49.20
19. Waldemar Cierpinski, A-Þýzkalandi, 29:28.90
20. Karel Gaba, Tékkóslóvakiu, 29:56.30
Fjórir luku ekki keppni. Paul Copu,
Rúmeníu, Pierre Levisse, Frakklandi,
Detlef Uhlemann, V-Þýzkalandi, og
hlauparinn þekkti Jos Hermens, Hol-
landi.
- hsím.
Hamburger SV sigraði Real Madrid
4—2 í knattspvrnuleik í Madrid í gær.
Staðan í hálfleik var 2—0 fyrir þýzka
liðið. Hrubesch skoraði á 3. og 21.
mínútu. Á 55. min. skoraði Daninn
Henning Jensen fyrir Real Madrid og
Santilla jafnaði á 65. mín. Það dugði
skammt. Hidien og Buljan skoruöu fyrir
Hamborg á 70. og 75. mín. Áhorfendur
voru 70 þúsund.
Bandaríska meistaramótið í tennis
hófst í New York í gær. Svíinn Björn
Borg sigraði Bob Hewitt, Suður-Afríku,
6—0, og 6—2. Yfirburðir hans eru því
hinir sömu og áður. Þetta var þrítugasti
sigur Borg í röð.
Matthlas Hallgrímsson.
200 metra hlaup
EM sigurvegari: Marlies Göhr-Oelsner,
DDR.
EM—’74: 1) Szewinska 22,51. 2) Stccher
22,68.3) Pursiainen Finnlandi 23,17 sek.
OL—’76: 1) Eckert DDR 22,37. 2)
Richter 22,39.3) Stecher 22.47.
Bezt 1977: Szewinska sem sigraði í
Evrópu- og heimsbikarkeppninni á 22,72
og 22,71 auk þess sem hún átti beztan
árangur ársins, 22,37, á undan Koch með
22,38.
Öll þessi spá ntín byggist á þvi hvaða
grein Marita Koch velur sem aðalgrein
sina. Ég hefi áður sagt að ég búist við að
hún velji eða verði látin velja 400 metrana
sem aðalgrein. Þrátt fyrir það liggur við að
búast megi við þremur austur-þýzkum á
verðlaunapallinum. eða við hverju má
búast af Oelsner 22.61. Hamann 22.78,
Bodendorff 22,81 og Lockhoff 22.89. Hér
er eitt annað spurningamerki. Það er
hvaða vegalengd velur Szewinska að
hlaupa á mótinu? Ég spái að hún hlaupi
400 m en ef ekki þá mun hún berjast um
sigurinn á 200 með 22.91 að bakhjarli.
Það verður gaman að sjá hvað brezku
stúlkurnar Morehead, 22,60 og Hartley.
22,81 eða hin franska. Rega, 22,79, auk
1 indu Haglund 22,90.
400 metra hlaup
l'M sigurvegari: Marita Koch, DDR.
EM—’74: 1) Salin Finnlandi 50,14. 2)
Strcidt DDR 50,69. 3) Wilden, Vestur-
Þýzkalandi 50,88.
OL—’76: 1) Szewinska 49,29 2) Brchmer
DDR 50,51.3) Streidt 50,55.
Bezt 1977: Szewinska sem átti bezta
heimstimann, 49.52, sem hún vann heims-
bikarkeppnina á. Þar varð Koch 2. á
49,76. en hún vann Evrópubikarinn á
49,53 sek.
Með nýsett heimsmet, 49,19, er það
varla vogað að spá Koch sigri. Ég geri ráð
fyrir að Szewinska velji 400 metrana sern
aðalgrein en ég held að hún ráði ekki við
Koch. Þá hef ég meiri trú á Brehmer,
50,15, og Kultschenowu, Rússl., 50,87.
sem mögulega ásteitingarsteina fyrir
Koch.
800 metra hlaup
EM-sigurvegari: Anita Weiss DDR.
EM—’74: 1) Tomova Bulgariu 1:58.1. 2)
lloffmcister DDR 1:58,8. 3) Suman
Rúmeniu 1:59,8.
OL—’76: 1) Kazankina Rússl. 1:54,94. 2)
Ghtereva Búlgaríu 1:56,42. 3) Zinn DDR
1:55,60.
Bezt 1977: Petrova Búlgaríu sem sigraði
i heimsbikarnum á 1:59,2 á undan
Liebetrau DDR. 1:59.5. I Evrópubikarn-
um varð röð þeirra í mark öfug, timarnir
2.00.17 og 2.00,18. Auk þess átti Petrova
2. bezta tímann í heiminum 1:57,4. Silai
Rúmeníu bezt 1:57.2.
Weiss sem varð 4. í Montreal er komin
aftur i feiknaform. Varla heyrzt frá henni
frá i fyrra og eftir 1.56,2 í ár spái ég henni
sigri nú.
En það kemur venjulega alltaf eitthvað
fyrir á þessari vegalengd á stórmótum og
nú er bara að biða og sjá. Það er óvenju
jafngóður árangur í ár, 1:58,6,
Prowidochina Rússl., 1:58,7 Bruns DDR,
1:59.2 Buse DDR 1:59,2 Rigel Rússl..
1:59.2 Styrkina Rússl., og 1:59,3 Lovin
Rúmeniu, auk þess sem Silasi (1:59.8) og
Petrova (2.00,3) munu verða með.
1500 metra hlaup
EM sigurvegari: Ulrike Bruns DDR.
EM—’74: l) Hoffmeister DDR 4:02,3. 2)
Tomova 4:05,0.3) Waitz Noregi 4:05,2.
OI.—’76: l) Kazankina 4:05,48 2)
Hoffmeister 4:06,02. 3) Klapezynski DDR
4:06,09.
Bezt 1977: Kazankina sern sigraði í
Evrópu- og heimsbikarnum á 4:12,7 og
4:04,35 en þá var Bruns 2. á 4:04,52.
Þetta er ekki örugg spá því Bruns á ekki
nema 4:02,0 í ár meðan Kraus Vestur
Þýzkalandi á 4:01.5. Ég held að Bruns sé
,ekki lakari en i fyrra og spái henni þvi
sigri. Landar Bruns, Lehman 4:03,1 og
Weiss 4:07,1. þær Siiai. 4:03,5 og
Marasescu 4:04,5, frá Rúmeníu munu
verða erfiðar og sjálfsagt koma þær
búlgörsku gallharðar til leiks, þrátt fyrir að
ekki sé hægt að sjá það i statistik ennþá að
þær hafi gert neina gloríu.
Norska stúlkan Waitz á 4:04,3 en ég
reikna með að hún láti 3000 m hlaupið
nægja aðþessusinni.
100 metra
grindahlaup
EM sigurvegari: Grazvna Rabsztvn
Póllandi.
EM—’74: 1) Erhardt DDR 12,65. 2)
Fiedler Vestur-Þýzkal. 12,89. 3) Novak
Póllandi 12,91.
OL—’76: 1) Schaller DDR 12,77. Anis
simova Rússl. 12,78. 3) Lebedeva Rússl.
12,80.
Bezt 1977: Rabsztyn og vegur þar
þyngst heimsbikarsigur hennar og bezti
tími ársins 12,70. Klier-Schaller vann
Evrópubikarinn á 12,83 varð 2. í heims-
bikarnum á 12,86. Átti annan bezta
árangurinn, 12,81.
Það verður mjög áhugavert að sjá
einvigi þeirra Rabsztyn. sem sett hefur
heimsmet í ár, 12,48, og Klier-Schaller.
12,76. 1 Montreal varð sú pólska aðeins i
5. sæti en nú trúi ég þvi að hún muni
sigra.
Anissimova Rússl., 12,87, ætti að vera
nokkuð örugg í 3ja sæti.
400 metra grindahlaup
EM sigurvegarí: Rossley DDR.
Ný keppnisgrein á EM og hefur ekki
verið keppnisgrein á OL ennþá.
Bezt 1977: Rossley DDR en hún sigraði
i Evrópubikarnum á heimsmeti, 55.63 sek.
Þetta er I fyrsta sinn sem keppt er í
greininni i stærri meistaramótum og því er
erfitt að velja sigurvegara þar sem búast
má við nýjum nöfnum í nýrri grein.
Rossley sem hefu'r ekki náð nema 56.68 i
ár álit ég þó að vinni. Einkanlega byggi ég
þá trú mina á þeirri vissu að Austur-Þjóð-
verjar ætla sér stóra hluti á þessu móti og
þvi er vist að allt þeirra toppfólk hefur
verið visindalega undirbúið svo að það nái
sinunt bezta árangri á réttum tima.
Þetta er kannski vogað þar sem Holl-
man Vestur-Þýzkalandi hefur náð 55,84
og Kasperczyk- Póllandi 55.96, auk Weiss
DDR með 56,93.
Þá getur ýmislegt skeð ef Szewinska
myndi nú snúa sér að grindinni. Hún hljóp
hana aðeins einu sinni sl. ár og þá á 56,62.
Hástökk
EM sigurvegari: Rosemarie Ackermann
DDR.
EM — ’74 1) Ackerman 1,95 2) Karba-
nova Tékkóslóvakíu 1,91. 3) Simeoni
Ítalíu 1,89.
OL — ’76: 1) Ackerman 1,93. 2)
Simeoni 1,91.3) Blagoeva Búlgaríu 1,91.
Bezt 1977: Ackerman auðvitað. Þá varð
hún fyrst kvenna að stökkva yfir 2,00 og
sigraði í báðum bikarkeppnunum, með
1,98 og 1,97. Var í algjörum sérflokki.
Ackerman var skorin upp í hné i fyrra-
haust. Þegar hún hefur keppnina að nýju
með því að fara yfir í 1,94 og bætir sig
þegar i næstu keppni í 1,95 er ég ekki í
neinum vafa með að spá henni sigri þrátt
fyrir að Simeoni hefur tekið heimsmetið af
henni með því að stökkva 2,01. Það mætti
segja mér þó að þær stöllur stökkvi sömu
hæð, 1,99 —2,02 m.
Á eftir þeim munu gera upp unt röðina
Kirst DDR, 1,92, og þær vinkonur vestur-
þýzku Holzapfel og Mayfarth, sem báðar
hafa stokkið 1,92 i ár. Áhugaverður kepp-
andi er Pira frá Belgíu, 1,88, í ár.
Langstökk
EM sigurvegari: Bardauskene Rúss-
land.
EM — ’74: 1) Bruzsenyak Ungverjal.
6,65. 2) Suranova Tékkóslóvakíu 6,60. 3)
Helenius Finnlandi 6,59.
OL - ’76: 1) Voigt DDR 6,72. 2)
Alfeeva Rússl. 6,60.4) Siegl DDR 6,59.
Bezt 1977: Það er mjög erfitt að segja
um. Þó kannski Kiinzel DDR sem varð
fyrst í Evrópubikarnum með 6,76, sem var
annar bezti árangur ársins. En hún varð
aðeins 4. á heimsbikarnum og þá með
6,40. Beztan árangur átti Bardauskene,
6,82.
Það er varla hægt að hugsa sér aðra en
Bardauskene sem sigurvegara eftir heims-
met hennar, 7,07 sett nýlega. Næstar
henni verða trúlega Panait Rúmeniu 6,71.
Wycisk DDR 6,65, Reeve Bretlandi 6,64
og Kúnzel DDR 6,61. Hér getur auðvitað
allt gerzt þvi þetta er mikil grein tauga-
spennu.
Kúluvarp
EM sigurvegari: Helena Fibingerova
Tékkóslóvakíu.
EM — ’74: 1) Tchizhova Rússland
20,78. 2) Adams DDR 20,43. 3) Fibing-
erova 20,33.
OL — ’76: 1) Christova Búlgaríu 21,16
2) Chijova Rússlandi 20,96.3) Fibingerova
20,67.
Bezt 1977: Fibingerova sem setti heims-
met á árinu, 22,32 m. í heimsbikarnum
varð hún þó aðeins önnur með 20,63 á
eftir Slupianek DDR sem síðar var dæmd
frá keppni fyrir lyfjanotkun en er nú laus
úr því banni.
Mér finnst nú vera komið að Filbing-
erovu að sigra eftir langan keppnisferil og
mikil vonbrigði. Hún er á heimavelli og
það held ég að verði nóg. Hún á nú 21,87.
Næstar henni koma nú að ég bezt veit
þrjár austur-þýzkar, Droese, 21,58, Knor-
scheidt, 20,99, og Adams, 20,28. Petrova
á enn aðeins 19,76 en hver veit hvað hún
gerir.
Kringlukast
EM sigurvegari: Faina Veleva-Melnik
Rússland.
EM — ’74: 1) Melnik 69,00. 2) Menis
Rúmeniu 64,62.3) Hinzmann DDR 62,50.
OL — ’76: 1) Schlaak DDR 69,00. 2)
Vergova Búlgaríu 67,30. 3) Hinzmann
66.84 m.
Bezt 1977: Melnik sem sigraði bæði i
heims- sem Evrópubikarkeppnunum með
68,10 og 68,08. Einnig átti hún annað
bezta kast ársins, 68,60, 32 cm styttra en
lengsta kast Engel DDR.
Melnik hefur þegar í ár kastað 70,34 m
og ætti ekki að vera i vandræðum með að
verja EM-titil sinn að þessu sinni, ef taug-
arnar fara ekki eins og í Montreal. Hættu-
legastar verða án efa landar hennar Petr-
ova, 66,00, og Gorbatscheva, 65,00, og
þær austur-þýzku Droese, 67,70, Jahl,
65,82, og Engel, 65,68, auk hinnar búlg-
örsku Boshkova sem sifellt er að bæta sig
(66,94).
Spjótkast
EM sigurvegari: Rut Fuchs DDR.
EM — ’74: I) Fuchs 67,22. 2) Todten
DDR 62,10. 3) Urbancic Júgóslavíu 61,66
m.
OL — ’76: Fuchs 65,94. 2) Becker
Vestur-Þýzkalandi 64,70. 3) Hein DDR
63.84 m.
Bezt 1977: Fuchs — hver önnur? Hún
vann báðar bikarkeppnimar, með 62,36
og 68,92 m.
Fuchs hefur verið afgerandi bezti spjót-
kastarinn þennan áratug og hefur i ár
þegar kastað 66,26. En þær eru þegar
nokkuð margar. sem kastað hafa yfir 60
metra i ár og ég trúi að hin blakka Sander-
son frá Bretlandi verði skeinuhætt, 64,00,
og sl. ár var hún næstbezt. Aðrar eru
Heimschmidt Vestur-Þýzkalandi. 64.04,
Richter, 63,62, og Hommola. 63,60,
DDR.
Fimmtarþraut
EM sigurvegari: Nadesjda Tkatsjenko
Rússlandi.
EM — ’76: Tkatsjenko 4776 2) Pollak
DDR 4676. 3) Spasovkhovaskaia Rúss-
landi 4550 st.
OL — ’76:1) Siegl DDR 4745. 2) Laser
DDR 4745.3) Pollak 4740.
Bezt 1977: Tkatsjenko. Hún vann
Evrópubikarkeppnina á bezta árangri
ársins, 4839 stig.
Tkatsjenko sem varð aðeins nr. 5 í
Montreal hefur byrjað i ár næstum jafn
vel og i fyrra. Er með 4668 stig.
Það verður enginn leikur að sigra hana
nú. En þær koma til með að reyna hvað
þær geta Wilms Vestur-Þýzkalandi, Papp
Ungverjalandi, 4675 stig, og þær austur-
þýzku Pollak, 4598 st„ Neubert, 45 25 st„
og Nitzscker, 45 41 st„ auk landa hennar,
Smirnova, 4449 st.
4 x 100 m boðhlaup
EM sigurvegari DDR.
EM — ’74: l) DDR 42,51. 2) Vestur-
Þýzkaland 42,75.3) Pólland 43,48 sek.
OL - ’76: I) DDR 42,55 2) Vestur-
Þýzkaland 42,59.3) Rússland 43,09 sek.
Bezt 1977: DDR sem sigraði í Evrópu-
bikarnum á 42,62 og varð í 2. sæti í heims-
bikarnum á 42,65 á eftir úrvali Evrópu.
Ég held að DDR sigri örugglega og
ekkert að gera við því, en hin liðin, Vestur-
Þýzkaland, Rússland, Bretland. Pólland
og Frakkland, eru mjög jöfn og baráttan
um næstu sætin á eftir DDR verður feikna
grimm.
4 x 400 metra boðhlaup
EM sigurvegari DDR.
EM - ’74: 1) DDR 3:25,2 2) Finnland
3:25,7.3) Rússland 3:26,1.
OL — ’76: DDDR 3:19,23. 2) Rússland
3:24,24.3) Vestur-Þýzkaland 3:25,71 mín.
Bezt 1977: DDR sem sigraði i báðum
bikarkeppnunum, á 3:24,0 og 3:23,70.
Það er santa að segja um þetta boð-
hlaupið og það styttra að það þarf slys í
hlaupinu til að koma i veg fyrir að DDR
sigri. Það verða söntu lönd sem bitast um
sætináeftirogihinu.
★
Þar með hefi ég spáð um allar greinar
nema göngu sem keppt verður i á þessum
EM-leikum i Prag. Sjálfsagt fer keppnin
ekki eins og ég hef spáð en það var gaman
að þessu og ég vona að lesendur blaðsins
hafi haft gaman af og sumir hverjir getað
áttað sig á þvi hvers vegna úrslitin verða í
mörgum greinum jafnundarleg og þau
sýnast. Það er eitt af því skemmtilegasta
með þessi mót að enginn er orðinn sigur-
vegari fyrr en keppninni er lokið.
Að vísu er gott að hafa náð góðum ár-
angri þvi keppinautamir taka eftir þvi og
það hefur sín áhrif á þá. Þó er slikt ekki
gott fyrir alla þar sem samlandar þeirra
krefjast þá að þeir endurtaki hinn góða
árangur og helzt bæti. Þetla finna svo
íþróttamennirnir áður en þeir fara til
keppninnar og þessi þrúgun heiman frá
hefur sett margan góðan manninn i kerfi
þegar á hólminn kemur. Þetta siðast-
nefnda á einkum við um alla þátttakendur
frá Norðurlöndunum og ekki sízt héðan.
Ég vil svo að lokum senda hinum ís-
lenzku keppendum beztu óskir um góðan
árangur.
-GÞ.
LANDSUÐSHÓPUR VALINN GEGN USA
ísland og Bandaríkin leika landsleik í
knattspyrnu á Laugardalsvellinum á
sunnudag. Það verður annar leikur
þjóðanna. Árið 1955 vann ísland með
3—2 á Melavelli i heldur slökum leik en
síðan hefur báðum þjóðum farið mjög
fram. Knattspyrnan á nú miklum
vinsældum að fagna i USA.
Landsliðsnefnd, Árni Þorgrímsson og
Youri Ilytschev tilkynnti i gær val 16
manna landsliðshóps í leikinn við USA.
Engir þeir íslenzkir leikmenn, sem leika
erlendis, taka þátt í þessum leik — en
reikna má með að einhverjir þeirra leiki
gegn Pólverjum i Evrópuleik landsliða á
Laugardalsvelli á miðvikudag. 6. sept.
í islenzka landsliðinu eru þessir
leikmenn. Markverðir. Þorsteinn
MEIDSU MATTHÍASAR SLÆM
„Læknirinn sagði að ég mundi eiga i
þrjár vikur í þessu — en ég er að vona að
það taki skemmri tíma, svo ég geti leikið
Evrópuleikinn í Köln 13. september'’
sagði Matthias Hallgrimsson, leik-
maðurinn sterki í Akranes-liðinu. Hann
slasaðist illa á ökkla í úrslitaleik ÍA og
Vals í bikarkeppninni á sunnudag.
„Það flísaðist úr á fjórum stöðum á
ökklabeininu og ég hef talsverð evmsli i
þessu.
Þetta lítur ekki vel út. Takkaför
móthcrjans frá hæl og upp á rist. Eg er
alveg rúmfastur núna og verð það meðan
bólgan er aö fara úr. Þegar hún er farin
vona ég að þetta taki ekki eins langan
tíma og læknarnir telja. Það er þó
nokkuð víst að ég missi leikinn við Val i
1. deild 10. september. Við höldum til
Þýzkalands síðar þann dag —
sunnudaginn tíunda — og leikum við
þýzku meistarana Köln á miðvikudag.
13. sept. Ég er mjög spenntur að komast
í þann leik. Er mikið vafinn núna en
vona að ég sleppi við gipsið,” sagði
Matthías ennfremur.
Bjarnason, ÍBK, og Diðrik Ólafsson.
Víking. Aðrir leikmenn Árni Sveinsson,
ÍA. Dýri Guðmundsson, Val, Róbert
Agnarsson. Viking, Gísli Torfason, ÍBK,
Janus Ciuðlaugsson, FH, Sigurður
Björgvinsson, ÍBK, Atli Eðvaldsson,
Val. Hörður Hilmarsson. Val. Karl
Þórðarson, ÍA, Pétur Pétursson, ÍA,
Guðmundur Þorbjörnsson, Val. Ingi
Björn Albertsson, Val, Ólafur Júliusson,
ÍBK, ogÓlafur Danivalsson. FH.
Fjórir þessara leikmanna hafa ekki
leikið landsleiki — Þorsteinn
markvörður. Róbert, Dýri, og Sigurður
Björgvinsson. en þeir eru þó i hópi
albeztu leikmanna okkar nú. Hins vegar
kemur það talsvert á óvart að enginn
bakvörður er valinn þó svo þeir Árni,
Gísli og Janus geti leikið sem bakverðir
með góðum árangri.
35. tbl. 40. 31. ágúst 197«