Dagblaðið - 30.08.1978, Page 24

Dagblaðið - 30.08.1978, Page 24
J V boðar formanna- Gríkklandsferð 3877 seðlar bárust blaðinu 23 ára stúlka frá Eyrarbakka vann Grikklandsferðina i Sumargetraun Dag- blaðsins, en dregið var úr lausnunum t gaerdag. Hún heitir Ragnheiður Markúsdóttir, Skúmsstöðum 4 á Eyrar- bakka. „Ég hef alltaf verið að senda inn alls konar getraunaseðla,” sagði Ragnheiður i gærkvöldi, „en aldrei orðið neitt ágengt fyrr en núna.” Ragnheiður er gift kona og tveggja stráka móðir. Maður hennar er skipverji á Kap frá Vestmannaeyjum, og heitir Helgi Ingvarsson. Ragnheiður er eins og margir aðrir á Bakkanum. atvinnulaus eftir að frystihúsið lokaði. Hún og Helgi ætla að skella sér til Grikklands strax á þriðjudaginn kemur og hyggja gott til glóðarinnar. „Ég gæti trúað að ég yrði sjóveik, en sjórinn er mjög sléttur,” sagði Ragnheiður. „Annars erum við Helgi ákveðin i að skemmta okkur vel. Hann sagði bara haaaa, þegar ég hringdi i hann i dag, eftir að ég frétti þetta með Grikklandsferðina. En hann fær frí úr loðnunni til að fara út. Við fórum siðast. út til Spánar fyrir 6 árum siðan.” Þátttaka i Sumargetraun var með eindæmum góð, betri en í nokkurri getraun fyrr. Alls bárust 3877 seðlar og komu þeir hvaðanæva af landinu. Ekki var dregið fyrr en sýnt var að allur póstur af landsbyggðinni var kominn. •JBP- Umbrot eftir tvær vikur? Landris hefur verið mikið að undan- förnu á Kröflusvæðinu. Að sögn sér- fræðinga nyrðra virðist sem vænta megi tiðinda á svæðinu um miðjan september, ef ekki hefur dregið úr landrisinu fyrir þann tima. Verið er að vinna við aö reisa jarðborinn Dofra við holu 11 á svæðinu og stendur nú til að gera við holuna og fóðra hana uppá nýtt. Fjölskyldugetraun Flugleiöa: Kerfið flyturfrá Reykjavík: Rannsóknar- lögreglan flytur í frjálst, úháð daghlað MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÍJST 1978. BSRB ráðstefnu Sumargetraunin — dregið í gær: Atvinnulaus stúlka fær Veigar Óskarsson, fulltrúi Ferðaskrif- stofunnar Sunnu segir Ragnheiði og sonum hennar, Gunnari og Kjartani, frá Grikklandsferðinni, sem Ragnheiður og Heigi maður hennar eiga i vændum. — DB-mynd Ari Kristinsson. „Það var engin ályktun gerð á fundi stjórnar BSRB i gærkvöldi,” sagði Haraldur Steinþórsson, framkvæmda- stjóri bandalagsins, í samtali við DB í morgun. „Við samþykktum að boða til fundar formannaráðs BSRB klukkan 5 i morgun en í ráðinu eiga sæti, auk stjórn- ar bandalagsins, fulltrúar allra aðildar- félaganna. Þetta er um 60 manna hópur.” Haraldur kvað BSRB reiðubúið til frekari viðræðna við flokkana, sem reyna stjórnarmyndun, og á fundi for- mannaráðsins yrði lögð fram ályktun um launamál i framhaldi af fyrri viðræðum. -GM. Krafla: Kópavog Rannsóknarlögregla rikisins mun um helgina flytjast búferlum frá Borgartúni 7 i Reykjavík að Auðbrekku 61 i Kópavogi. Að sögn Gisla Guðmundssonar aöstoðaryfirlögregluþjóns hjá Rannsóknarlögreglunni, mæta rannsóknarlögreglumenn, nú 35 að tölu, ásamt öðru starfsfólki stofnunarinnar til vinnu að Auðbrekku 61 á 'mánudags- rnorgun. Alls starfa nú hjá stofn- uninni 40—50 manns. í Kópavogi er aðstaða mun betri en verið hefur í Reykjavík. Starf- semin verður á 3 hæðum, gólf- flöturer 14—1500 ferm. Nokkrar deilur stóðu um staðsetningu stofnunarinnar i Kópavogi. Héldu menn fram að hennar væri mest þörf i Reykjavik. Ekki mun heldur muna nema litlu aðhúnséþar. -JÁ | Halldór Sigurðsson rannsóknar- lögreglumaður réttir félaga sinum þungan kassa sem fluttur var suður I Kópavog i gærdag. — DB-mynd Sv. Þorm. Alþýðuf lokkur og Alþýðubandalag klofin: OVISSA ALLRA FL0KKA UM MENN OG MÁLEFNI Klofningur er i þingflokki Alþýðu- flokksins og meirihlutinn hefur enn ekki tekið afstöðu til vinstri stjórnar. Menn vilja fá ítarlegri úrræði til lengri tima en hinir flokkarnir höfðu hugsað sér. Klof-.tingur er einnig i liði Alþyðu- h'andalagsins Meirihlutinn hefúrgefið vinstri stjórn grænt Ijós, en minnihlut- inn telur, að ekki megi slá svo af í kröf- unni um „herinn burt” eins og forystu- menn bandalagsins ætla sér. „Við viljum fara inn í þetta af fullri reisn," sagði Karl Steinar Guðnason alþingismaður (A) í morgun. „Við gerum ýmsar kröfur, sem við viljum fá framgengt.” Vilmundur Gylfason sagðist i morgun ekki taka afstöðu til vinstri stjórnar, fyrr en hann sæi allan „pakkann”. Þannig berst leikurinn fram og aftur innan flokka og milli flokka um mál- efni. Það þykir alveg Ijóst, að ef vinstri stjórnin verður mynduð, verði enginn málefnasamningur gerður fyrr en síðar. Ólafur Jóhannesson tekur mál inn á verkefnalista, sem sýnir þau mál, Eiður Guðnason og Vilmundur Gylfason koma til fundar þingmanna Alþýðuflokksins i Þórshamri I morgun. DB-mynd Bjarnleifur. ■ W& sem flokkarnir vilja helzt ræða alveg á næstunni. Hins vegar verður ekki hjá því komizt að skipa ráðherrastólana þeim mönnum, sem samkomulag næst um. Hvort sem þannig er rætt um menn og/eða málefni er alveg ljóst, að enn getur allt gerzt i stjórnarmyndunar- málum. - HH/BS ✓ Gífurleg þátttaka „Getraunaseðlamir streyma inn. Við erum búnir að fá um 10 þúsund stykki eftir rúma viku og það bara í Reykja- vik,” sagði Sveinn Sæmundsson blaða- fulltrúi Flugleiða. Stofnunin efndi til mikillar fjölskyldugetraunar i tilefni 5 ára afmælis síns. Verðlaunin eru marg- visleg, m.a. þrjár fjölskylduferðir, til Miami, Austurríkis og Parísar. „Ekkert ákvæði er um það hvað fjölskyldan má vera stór. Mest gaman væri auðvitað að fá fólk sem ætti 10 börn,” sagði Sveinn. Auk jtessa eru 20 farseðlar fyrir tvo í vinninga. bæði innanlands og erlendis. Eru það því alls ferðir fyrir 40 manns. Þátttakan hefur lika sýnt að mönnum finnst til nokkuð mikils að vinna. Auk þeirra tíu þúsund seðla sem borizt hafa í Reykjavik má telja víst að margir seðlar séu á skrifstofum Flugleiða úti á landi. Getrauninni lýkur um mánaðamótin en dregið verður í kring um 5. september. •DS. Kaupiö^V ,5 TÖLVUR - I* QG TÖLVUUR BANKASTRÆTI8 1276^

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.