Dagblaðið - 04.09.1978, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1978.
/ ‘
14 húsasmiðir, aðallega af Suðurnesjum halda til Grænlands:
\i
„Fmnst það
dálftið blóðugt
— en freistast
til þess samt”
Nokkur hluti trésmiðahópsins islenzka, sem mun á morgun halda til Grænlands að vinna fvrir Dani i Godtháb. Á upp-
mælingataxta hafa þeir 2112 krónur á ferm uppslegins einfalds byrðis I mótum. DB-mynd Hörður
Jú, mér finnst það dálítið blóðug
sú staðreynd að Grænlendingarnir fá
mun lægri laun en við fyrir sömu
vinnu, en ég freistast nú samt til þess
að fara. Laun þau er við munum fá
eru nefnilega töluvert betri en maður
fær hér,” tjáði Reynir Sigurðsson
smiður úr Keflavik Dagblaðsmönnum
m.a. í gær.
Reynir heldur i bitið á morgun til
Grænlands, nánar tiltekið til
Godtháb. ásamt 13 félögum sínum,
öllum húsasmiðum. Þangað halda þeir
á vegum dansks byggingarfyrirtækis.
er Aklan heitir. Hafa þeir gert samn-
inga við fyrirtæki þetta um uppsláttar-
vinnu við 64 einbýlishús í þessum
9000 manna bæ.
í Godtháb kvað Reynir þá ætla að
dveljast unt fjögurra mánaða skeið.
Laun verða þeim greidd samkvæmt
samningum þcini sem gilda á Græn-
landi fyrir Dani. Sem kunnugt er hafa
Danir mun hærri laun en innfæddir.
Fá Islendingarnir greitt samkvæmt
uppmælingataxta 44 krónur danskar
fyrir hvern ferm einfalds byrðis upp-
slegins.
Smiðirnir. sem margir hverjir eru
fjölskyldumenn, fara án fjölskyldn
anna. Búa þeir i frumstæðum ibúðar
skáluni meðan á-byggingu einbýlishús-
anna stendur. Sumir þeirra leita at-
vinnu i Grænlandi vegna atvinnu
leysis heima fyrir svo sem Suðurncsja
mennirnir í hópnuni.
Danir kunna
ekki til verka
Ráðning 14-menninganna erþannig
til komin að byggingarfyrirtækið
Akton auglýsti i islenzkum fjölmiðlum
eftir húsasmiðum héðan. Er ráðning
íslendinganna. í hrjáðu landi atvinnu-
leysisins, Danmörku, skýrð með þvi að
Danir kunni ekki til verka hvað varðar
uppslátt borðantóta.
Nokkuð mun hafa verið um það að
íslendingar sæktu vinnu til Godtháb
og hafa þeir yfirleitt verið ánægðir.
Standa Danir t.d. við alla gerða sanín-
inga. íslendingar niunu að þessu sinni
eingöngu sjá um mótauppslátt, utan-
afrif og ef til vill steypuvinnu. Yfir-
menn eru aðsjálfsögðu Danir.
Godtháb er á líkri breiddargráðu og
Reykjavik, en þar nýtur þó einskis
Golfstraums. Kuldi er þvi allmikill,
allt að -30°C. En menn munu þó ekki
kenna hans svo mjög þar sem yfirleitt
rikja staðviðri og stillur.
„Manni gefst alla vega tækifæri til
þess að kynnast ástandinu þarna á
Grænlandi, en maður hefur svo sem
heyrt ýmislegt um slænia framkomu
Dana gagnvart Grænlendingum,”
sagði Reynirað lokum.
«
Jú mér finnst það dálitið blóðugt, að Grænlendingar.fá
mun lægri laun en við fyrir sömu vinnu, en ég freistast
nú samt til þess að fara,” segir Reynir Sigurðsson hús-
gagnasmiður frá Keflavík en með talsvcrða reynslu í
mótauppslætti. DB-mynd Hörður
Fimm þúsund búnir að sjá
„íslenzk föt”
annsvorubunú
slenzk »t um
.jálmurE^son
sýmngannna
rsrsrÆ
naWnar ^
lenvtrkada&aeru
hafavenð^unöan
r bár-
Thorsteinsson
föstuóagm"' ' i
Sýnmgm^ov.rv,adagaog^
klukkan ^ angscvt't Q {yþt
uto ^ (uUorðna og 300 .
krónur tyru Ds
börn.
Grétu Garbó stlllinn er kominn aftur.
Pilsaþytur í
Laugardalshöll
„Og faldarnir lyftust” segir I kvæðinu.
Rétt sýnist kveðið á tizkusýningum á
„Íslenzk föt”. Glæsimenni af báðum
kynjum svifu um svið I íslenzkum fatnaði
yzt sem innst.
DB-myndir Bjarnleifur.
Batikföt eru mikið I tizku núna.