Dagblaðið - 04.09.1978, Blaðsíða 25

Dagblaðið - 04.09.1978, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1978. 25 GylfiÆgisson—Blindhæð upp ímóti GYLFI ÆGISSON - Blindhœð upp i móti Útgefandi: Geimsteinn (GS-108) Skipulögn og umsjón: G. Rúnar JúKusson. Útsotningar Vignir Bergmann og G. Rúnar JúKusson. Gylfi Ægisson er hinn sanni naiv- isti í íslenzka poppinu. Lögin eru yfirleitt einföld og textarnir koma auðheyrilega frá hjartanu. Hann skeytir ekki alltaf um Ijóðstafi í text- unum og rimið er stundum svolitið stirt, en hverju skipta smámunir ef meiningin kemst óbrengluð til skila? Smámunimir víkja fyrir meiningunni Utgefandi Blindhæðar upp í móti auglýsir að platan sú sé hin bezta sem kemur út frá Gylfa. Ekki skal það dregið í efa af þeirri einföldu ástæðu að ég hef ekki hlustað á tvær fyrri plöturnar I heild. heldur aðeins í útvarpi. Hins vegar virðist mér Gylfi vera á sömu braut á Blindhæð- inni og áður. Hann syngur um lífið, sér i lagi sjómannslifið og i þeim kveðskap tekst honum bezt upp. Ekki ætla ég að fara að gera upp á milli laganna á Blindhæð upp i móti og gefa einu hærri einkunn en öðru. Það geta kaupendur gert. En sérlega þótti mér gaman að heyra skáldið flytja sjálft Minningu um mann, sem Logamir (blessuð sé minning þeirra) fluttu hér um árið. Það má segja að lagahöfundur sé orðinn fastur i sessi þegar hann getur með stolti farið að taka eitt al'gömlu lögunum sinum og betrumbæta það. ÁT oa^65 Tilboð í tíu daga ÆSgj Hljómplatan FEELINGS með 25% afslætti: ÞAR SITUR RÓMAN- TÍKIN í FYRIRRÚMI Önnur hljómplatan sem lesendum Dagblaðsins býðst með 25% afslætti úr einhverjum af hljómplötuverzlun- um Karnabæjar nefnist Feelings. Hún hefur að geyma tuttugu lög frá ýmsum tímum, sem öll eiga það sam- merkt að hafa notið mikilla vin- sælda. Öll eru lögin róleg og róman tisk. Það er fyrirtækið K-Tel sem gefur Feelings út. Þetta fyrirtæki starfar i mörgurn löndum og er útgáfan á hverjuni stað óháð öðrum. Uppruna K-Tel er hægt að rekja til Kanada. en hljómdeild Karnabæjar fær sinar plötur frá Englandsdeild fyrirtækis- ins. Árlega koma svo sem tiu LP plötur út hjá K-Tel í Englandi. Flestar eru þær með samsafni tuttugu vinsælla laga. ýmist glæ- nýrra eða gamalla. Um siðustu helgi átti fyrirtækið hvorki meira né minna en þrjár plötur í einhvérjum af tiu efstu sætum enska vinsælda- listans. Þetta voru plöturnar Star Party, sem var í fjórða sæti, Classic Rock i níunda sæti og númer tiu var safnplata með vinsælustu lögum bandariska dreifbýlissöngvarans Don Williams. Sem dæmi um stærð K-Tel fyrir- tækisins má nefna að það hefur undanfarin ár verið stærsti auglýs- andinn i brezka sjónvarpinu. BBC. En snúum okkur aftur að plötunni Feelings. sem lesendum stendur til boða með 25% afslætti næstu tiu daga. Hún naut mikilla vinsælda um síðustu áraniót og selst dável ennþá. Ef gefið er sýnishorn af lögum plöt- unnar skal fyrst nefna lagið sem gerði F.lton John frægan. Það er lagið Your Song. Einnig er þar að finna lagið sem olli því að Barry Manilow hætti að semja lög fyrir aðra og tók til að syngja þau sjálfur — lagið Mandy. Barry Manilow syngur annað lag á plötunni. Það nefnist 1 W rite The Songs. Svo að við höldum áfram að tiunda lögin á Feelings, þá á leikar- inn David Soul þar tvö lög. Don’t Give Up On Us og Going With My Eyes Open. Eric Carmen syngur lag ■ sitt All By Myself og Franki Valli, sá sami og syngur vinsælasta lagið i Bandarikjunum þessa dagana. flytur lögin My Eyes Adored You og Fallen Angel. Nokkrar söngkonur eiga einnig lög á Feelings. Fyrst skal þar fræga telja söngkonuna Kiki Dee, sem syngur lagið Amoureuse. Þá flytur Gladys Knight & The Pips lagið Try To Remember/The Way We Were. Þau tíu lög sem hér hafa verið talin upp ættu að gefa nokkra hug- mynd um lagavalið á plötunni. Tilboð f tfu daga Fyrsta hljómplatan sem hljóm- deild Karnabæjar og Dagblaðið buðu upp á hafði að geyma helztu KLIPPIO------------------------- lög bandaríska rokksöngvarans Buddy Holly. Á tiu daga fresti er kynnt ný plata sem lesendum Dag- blaðsins stendur til boða með 25% afslætti. Afslátturinn gildir næstu tíu dagana eða þar til næsta plata verður kynnt. Ekki þurfa þeir, sem hug hafa á að verða sér úti um við- komandi plötu á viðráðanlegu verði að leysa neina stórkostlega þraut til að geta verið með. Nóg er að fylla þöntunarseðilinn hér neðst á síðunni út með nafni sinu og heimilisfangi og senda til einhverrar af Karnabæjar- verzlununum sjö sem selja hljónv plötur. Platan vcrður siðan send við komandi um hæl. Næsta piata i flokknum Tilboð í tiu daga verður kynnt fimmtudaginn fjórtánda september. - ÁT á 'UMöf iii) KARNABÆR TILBOÐ í TÍU DAGA! Dagblaðið og Karnabœr vilja auðvelda þér að auka við plötusafnið. Gegn framvísun þessa miða veita verzlanir Karnabœjar þér 25%, JÁ, FJÓRÐUNGSAFSLÁTT, af verði hljómplötunnar FEELINGS á nœstu 10 dögum. Móttaka erí verzlunum Karnabæjar að Laugavegi 66, Austurstrœti 22 og í Glœsibœ. Einnig hjá Cesar á Akureyri, Fatavali í Keflavík, Eplinu á Akranesi og Eyjabœ í Vestmannaeyjumi Ibúar annars staðar á land- inu geta eignast þessa góðu plötu með því að póstsenda miðann. Allar upplýsingar ísima 91-28155. Nafh y Heimilisfang (Aðeinsfyrirpóstkröfur) STÓR- KOSTLEG HUÓMPLÖTU- MIKIÐ ÚRVAL AF GÓÐUM HLJÓMPLÖTUM í ÞREMUR VERZLUNUM M.a. hinar vinsælu K-Tel plötur, sem halda partýfjörinu uppi. Einnig Chicago, Yes, 10 cc., Sailor, Chic, Man- hattan Transfer, Hot Blood, Stranglers, Rose Royce, Status Quo, Aerosmith, Charlie Mariano, Iggy Pop, Bob Dylan, Donna Summer, Isley Brothers, Elvis Costello, Vibra- tors, Generation, Cluberto Tozzy, Santa Esmeralda, Waynard Ferguson, Herbie Han- cock, Stanley Clarke, Dave Mason, Wild Cherry, Nick Lowe, Graham Parker og fleira og fleira. ATH.! ELVIS PRESLEY 40 LÖG Á AÐEINS KR. 2950/-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.