Dagblaðið - 04.09.1978, Síða 9

Dagblaðið - 04.09.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1978. 9 Erlendar fréttir A.m.k. 1500 fórustíflóði Óttazt er að um 1500 manns hafi farizt er áin Kangsabati flæddi yfir Midnapore svæðið i Vestur-Bengal, að því er fréttir frá Indlandi herma. Yfirvöld á svæðinu sögðu einnig að um eitt þúsund manns hefðu slasazt þegar hundruð húsa hrundu i gær vegna flóðanna. Talið er að um þrjú hundruð þúsund manna hafi orðið fyrir barðinu á flóðunum. Flóðin hafa þegar eyðilagt uppskeru og nemur tjónið milljörðum króna. Ródesía: Týndrarflug- vélar leitað í f rumskógi Fjöldi flugvéla, bæði hcrflugvéla og annarra. leita nú ródesískrar flugvélar með 56 farþega innanborðs. sem hvarf skammt frá norðurlandamærum Ródesiu. Talið er aö vélin hafi farizt i illfærum frumskógi. þar sem eru auk Ijóna. tigris- dýra og annarra villtra dýra. svartir skæruliðar. sem yfirvöld í Ródesíu óttast enn meira en villidyrin. Ekki er vitað til þess að neitt samband hafi verið á milli skæruliðanna og hvarfs vélarinnar. Managua: Leiðtogarverk- f allsmanna hand- teknirígær Stjórnin i Nicaragua hefur látið hand- taka leiðtoga almenns verkfalls I landinu. sem ætlað var til þess að koma Anastasio Somoza forseta landsins l'rá völdum. Auk þess hafa urn 200 manns verið hnepptir i varðhalJ. Leiðtogar verkfalls- ntanna, sem eru viðkenndir viðskipta- rnenn, lögfræðingar og stjórnmálamenn. voru handteknir i áhlaupi lögreglu i fjöldantörgum borgum landsins i gær. Þýzkaland: 19slösuðustf jarðskjálfta Nítján manns slösuðust I harðasta jarðskjálfta sem orðið hefur i suð-vestur Þýzkalandi í 35 ár, U.þ.b. sextíu jarðskjálftakippir hafa fundizt, allt til Svissog Frakklands. Salyut6: Geimfararnir lentir Geimfararnir Sigmund Jaen frá A- Þýzkalandi og Valery Bykovsky frá Sovétríkjunum eru lentir heilu og höldnu eftir vikudvöl I sovézku geimstöðinni Salyut 6. Já góðan daginn það er kötturinn Það þurfti dómara til þess að skera úr um það hvort gerlegt væri fyrir kött að hringja til Parísar. Eigandi kattarins hafði verið á ferðalagi og fengið nágranna sinn til þess að gæta kattarinsá meðan. Þegar eigandinn kom til þaka. beið hans reikningur. sem hljóðaði upp á 10 þúsund krónur. Reikningurinn var fyrir 20 mínútna langt samtal frá Vin til Parísar. Nágranninn sagði að kötturinn hefði hringt. Eigandi kattarins sagði að það væri ómögulegt og neitaði að borga. Nágrannarnir tveir höfðu verið góðir vinir, en sú vinátta fauk nú út I veður og vind. Urskurður dómarans í þessu máli varð raunar sá að mögulegt hefði verið fyrir köttinn að hringja til Parísar. Nágranninn hafði ullardúsk til skrauts á símtóli sinu. Dúskurinn hafði freistað kattarins og hann fór þvi að leika sér að simanum. Dómarinn kvað uppúr með það að mennirnir skyldu greiða símareikninginn til helminga hvor. Nánari tildrög þessarar einstöku sögu eru þau, að Heinz-Pieter Ziegler sneri heim úr ferðalagi og bankaði upp á hjá nágranna sinum, Hannesi Pollak, sem hafði passað kött Zieglers í hálfan mánuð. Ziegler færði vini sínum Pollak göfugt vín fyrir Pollak þakkaði fyrir vinið en bætti því við að Zigler skuldaði sér 10 'þúsund krónur. „Það er fyrir 20 mínútna langt simtal. sem kötturinn þinn átti við París,” sagði hann. Ziegler hélt að vinurinn væri að spauga. En hann komst að því að Pollak meinti þetta i fullri alvöru. Hann vildi þó ekki trúa og sagði við vininn: „Það hlýtur að hafa verið þú eða einhver í fjölskyldu þinni, sem hefur hringt til Parísar og svo á ég að borga fyrir það". Þolinmóður útskýrði Pollak, að þegar hann hefði komið heim eitt kvöldið. þá hefði hann fundið sinttólið liggjandi við hliðsímans. Hann heyrði að fyrirtæki nokkurt i Paris var á hinum endanum. Eftir að hafa sett simtólið á hringdi hann i símstöðina og bað um reikning fyrir símtalinu. Það voru samtals 10 þúsund krónur. Þegar Pollak hafði sett tólið á, sá hann að kötturinn fór strax að leika sér að dúsknum, sem var fastur við símtólið. Meðan á leiknum stóð, skoppaði kötturinn ofan á talna- Ykifunni og hringdi þannig ósjálfrátt. Tilviljun hafði siðan leitt til þess að kisi fékk sambandið við fyrirtækið i París. UTSALA BANKASTRÆTI 14, SIMI 25580 iTj WfV [■ i H »JrJ I TfTjTTT REUTER

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.