Dagblaðið - 04.09.1978, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1978.
d
Iþróttir
Iþróttir
17
Iþróttir
Iþróttir
I
Þorsteinn Bjarnason, markvörður lslands, greip oft vel inn i leikinn
snilldarlega einu sinni i fyrri hálfleik eins og DB-mynd Sv.Þ. sýnir.
og varði,
SERSTAKT
TÆKIFÆRI
Island misnotaði upplögð mark-
tækifæri gegn Bandaríkjamönnum
—markalaust jafntefli íslendinga og Bandaríkjamanna í Laugardal
Guðmundur Þorbjörnsson i opnu færí við mark USA en Arnold Mausser, hinn snjalii markvörður varði sem oftar f leiknum.
DB-mynd Bjarnleifur.
„Ég er ánægður með leikinn, en ekki
úrslitin," sagði Youri llitschev, þjálfari
islenzka landsliðsins eftir markalaust
jafntefli Islands og Bandaríkjanna í
l.augardal i gærkvöld. Markalaus
leikur, en tækifærin voru íslands — leik-
menn íslenzka liðsins fóru illa með
upplögð tækifæri. Þrátt fyrir upplögð
tækifæri voru áhorfendur ekki ánægðir
— og í heild var lcikurinn slakur, litlaus,
þó Youri llitschev hafi vafalitið séð ýmis-
legt er gat glatt hann. „Það vantaði
hraða og ég er bjartsýnn fyrir leikinn
gegn Pólverjum — en það verða
breytingar þá,” sagði Youri llitshev.
íslandi tókst ekki að knýja fram sinn
annan sigur á Bancjaríkjamönnum i
Laugardal. Um það geta islenzku leik-
mennirnir engum um kennt öðrum en
sjálfum sér — þeir fóru illa með upplögð
tækifæri. íslenzka liðið byrjaði liflega,
og þegar á fyrstu mínútum skall hurð
nærri hælum við bandaríska markið.
Bezta tækifærið fékk Atli Eðvaldsson
þegar á 7. minútu — fékk knöttinn frá
Guðmundi Þorbjörnssyni. aleinn i vita-
teignum. En bæði var að Atli var seinn
að átta sig og loks er hann skaut, úr
ágætu færi, þá geigaði skot hans, fór
framhjá af stuttu færi. Á 19. min. fékk
Pétur Pétursson góða sendingu frá Árna
Sveinssyni fram. átti i höggi við einn
varnarmann en skot Péturs fór framhjá,
eftir að hafa leikið inn á vítateiginn. Á
28. mínútur fengu íslendingar bezta
tækifærið — Róbert Agnarsson átti
góða sendingu á Pétur Pétursson í eyðu,
Pétur brunaði upp að endamörkum, gaf
vel fyrir, beint á kollinn á Guðmundi
Þorbjörnsyni, en bezti maður banda-
riska liðsins. markvörðurinn Arnold
Mausser — hæstlaunaði'markmaðurinn
i USA, varði mjög vel sk’alla Guðmund-
ar af stuttu færi. Það dofnaði yfir
islenzka liðinu er á hálfleikinn leið —
eins og leikmenn stífnuðu í suð-austan
kaldanum i Laugardal. Þrátt fyrir það
fékk Karl Þórarson ágætt færi á 43.
ntinútu. af miklu harðfylgi vann hann
knöttinn af varnarmanni. lék inni i vita-
teiginn, en enn var Mausser starfi sínu
vaxinn — varði vel skot Karls af stuttu
færi.
islenzka liðið fékk þvi ágætt færi i
fyrri hálfleik. marktækifæri er hefðu átt
að gefa mörk — en Bandaríkjamenn á
hinn bóginn voru litt sókndjarfir. Héldu
knettinum að visu vel úti á vellinum en
sáralítill broddur var í sókn þeirra.
Þegar á 4. minútu voru islenzku leik-
mennirnir enn í stórsókn. Hörður
Hilmasson átti snjalla sendingu á
Guðmund Þorbjörnsson. sem gaf fyrir á
Janus Guðlaugsson — en skot hans
frá vitateig. Hitti knöttinn illa.
raunar eins og í fyrri hálfleik er Janus i
opnu færi hitti knöttinn ekki. Á 13.
mínútu brauzt Atli Eðvaldsson í gegn,
en Mausser varði skot hans af stuttu
færi.
Rétt eins og i fyrri hálfleik þá
dofnuðu islenzku leikmennirnir er á leið
og það stefndi í markalaust jafntefli. Þó
áttu Bandarikjamenn skot i þverslá,
Greg Villa átti skot af 25 metra færi en
þversláin bjargaði þar.
Þvi markalaust jafntefli — í leik er
ísland hefði átt að vinna. Þrátt fyrir
fjölmörg tækifæri þá olli leikur íslenzka
liðsins vonbrigðum. Ekki var nógu
mikill nraði í leik liðsins, sendingar voru
ónákvæmar. Þó hlýtur það að teljast
batamerki að rétt eins og gegn Dönum á
dögunum var íslenzka liðið i hættulegri
tækifærum — enn láta þó mörkin á sér
standa.
Youri llitschev. tefldi fram fjórum
nýliðum i leiknum við Bandarikjamenn
— og allir komu þeir vel frá leik sinum.
Þeir Róbert Agnarsson og Dýri
Guömundsson voru traustir í vörninni.
létu ekkert franthjá séra fara. í markinu
var Þorsteinn Bjarnason öruggur þó
litið reyndi á hann. Fjórði nýliðinn.
Sigurður Björgvinsson kom inn á i siðari
hálfleik ásamt Inga Birni Albertssyni.
Vissulega áræði hjá Youri — og allir
leikmenn verðskulduðu tækifæri sin
með landsliðinu. Guðmundur Þor-
björnsson átti góða spretti en Pétur
Pétursson fékk lítinn stuðning frá
kollegum sinum. Það var þó sláandi að
Skagamennirnir. Pétur Pétursson. Karl
Þórðarson og Árni Sveinsson voru allir
skugginn af þvi er þeir léku gegn Val á
dögunum i úrslitaleiknum gegn Val i
Bikarnum. Þar munaði miklu. Það sem
ef til vill mestum vonbrigðum olli varað
Janus Guðlaugsson náði aldrei að sýna
þá takta i stöðu lengiliðar er hann leikur
með FH. Mótstaða vissulcga meiri en
hvorki hann né Hörður Hilmarsson
náðu að sýna góðan leik, stjórna spilinu
ogþarmunaðimiklu.
Bandariska liðið á enn margt ólært.
bæði i leikskipulagi og getu einstakra
leikmanna til að verða liðum frá Evrópu
skeinuhætt. Enn hefur knattspyrna i
USA ekki náð því stigi, en þó áttu
Bandaríkjamenn bezta mann vallarins,
markvörðinn Arnold Mausser, hann
bjargaði iðulega mjög vel.
Dómari var norskur, Rolf Haugen —
ágætur dómari, linuverðirnir Eysteinn
Guðmundsson og Róbert Jónsson voru
góðir.
H. Halls.
Litlu munaði
Gífurleg keppni var í 110 m grínda-
hlaupinu í Prag í gær. Dómarar þurftu
lengi að rannsaka myndir áður en úrslit
voru gerð kunn. Aðeins 2/100 úr
sekúndu munur á 1. og 3. manni. Úrslit.
1. Thomas Munkelt, A ÞVzkalandi, 13.54
2. Jan. Pusty, Póllandi, 13.55
3. Arto Brvggare, Finnlandi, 13.56
4. Guiseppe Buttari, Ítalíu, 13.78
5. F.duard Pereverzev, Sovét, 13.83
6. Vyacheslav Kulebyakin, Sovét, 13.90
7. Romuald Giegiel, Póllandi, 13.91
8. Dieter Gebhard, V-ÞVzkaland, 13.94
UTSALAN
HOFSTIDAG
MIÐBÆJARMARKAÐI
AÐALSTRÆTI9
SIMI27340
mömmu-
SáL
Ungbarnagallar frá kr. 1000.-
Úlpur frá kr. 3500.-
Náttföt, skyrtur,
nærfót
ogmargtfleira
Peysurfrákr.500.-
Buxurtrákr. 1200.-