Dagblaðið - 07.10.1978, Side 1
!
Á
/
3
4. ÁRG. — LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978 — 222. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. - AÐALSÍMl 27022.
Ráðuneyti ógildir
hreppsnefndar-
kosnmgu:_______
Fyrir-
mælum um
nýjar kosn-
ingar ekki
hlýtt
Félagsmálaráðuneytið hefur úr-
skurðað ógildar seinustu hrepps-
nefndarkosningar í Geithellnahreppi í
Suður-Múlasýsiu. Hefur verið lagt
fyrir kjörstjórn að efna til nýrra kosn-
inga hið fyrsta.
Sýslumaður Suður-Múlasýslu hefur
einnig úrskurðað ógildar kosningar til
sýslunefndar, sem fóru fram samtimis
hreppsnefndarkosningunum. Verður
að kjósa aftur til sýslunefndar og þá
sennilega á sama kjördegi og ákveðinn
verður fyrir kosningar í hreppsnefnd.
í Geithellnahreppi voru 104 íbúarog
þar af 67 á kjörskrá hinn 1. desember
1977. Hreppsnefndar- og sýslu-
nefndarkosningar fóru þar fram hinn
25. júní sl. samtimis alþingiskosning-
um.
Fram komu tveir listar og var kosið
hlutbundnum kosningum. Var þannig
gengið frá kjörseðlum, að ekki var
haegt að kjósa til sýslunefndar sérstak-
lega. Sú kosning er alveg sjálfstæð
enda þótt hún fari yfirleitt fram sam-
tímis hreppsnefndarkosningum.
Sextiu og þrír menn neyttu at-
kvæðisréttar. Féllu atkvæði þannig,
að annar listinn hlaut 30 atkvæði en
hinn 33 atkvæði. Eitt utankjörstaðar-
atkvæði barst.
Kjörnefndarmenn, sem eru þrír,
eiga að vera viðstaddir skoðun at-
kvæðaseðla og annast talningu. Þessu
skilyrði var ekki fullnægt. Leiddi það
m.a. til þess, að þrír menn kærðu
kosninguna.
Fékk kæran þá meðferð, sem ráð er
gert fyrir. Úrskurður Félagsmála-
ráðuneytisins gekk hinn 5.
september sl. Var lagt fyrir aðila að
láta fara fram aðra kosningu innan
mánaðar frá dagsetningu úrskurðar.
Þessu hefur ekki verið hlýtt og
engin kosning boðuð enn. Vaknar nú
spurning um það, með hverjum hætti
verður knúið á um að nýjar kosningar
fari fram. Lögin um sveitarstjórnar-
kosningar og alþingiskosningar, að
svo miklu leyti seni þau eiga við, gera
ekki ótvirætt ráð fyrir því að Félags-
málaráðuneytið hafi vald til þess að
framkvæma þær. Ef hreppsnefnd
og/eða kjörnefnd eða eftir atvikum
sýslunefnd láta ógert að halda nýjar
kosningar, vandast málið. t þeirri sjálf-
hclduermálið nú.
Lögmaður kærenda sagði í viðtali
við DB, að með kæruna hefði verið
farið að lögum og væri úrskurður
ráðuneytisins réttur. Hins vegar kvað
hann ákvæðum laga um sveitar-
stjórnarmál i þessu efni mjög ábóta-
vant. Væri svo í fleiri greinum, ef að
væri gáð. Nauðsyn hlyti nú að vera
augljós á því að endurskoða gildandi
lög.
- BS
íslenzkur skipstjóri á stærsta olfuskipi USA:
Skipið er stærra en
allur
islenzki skipaf lotinn
Sjá bls. 4
„HEIMSKULEGT BANN
- MUN REYKJA í
MÍNUM BÍL’ - segir leigubflstjóri
Sjá lesendasíður bls. 2-3
Reiðhjól geta bilað eins og annað sem snýst. Þór þurfti einmitt f gær að biðja þá i reiðhjólaverkstæðinu Baldri að lita á
ýmsilegt smávegis. DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Formaður Umferðarnefndar Reykjavíkur um umferðarmálin:
„Mín hjartans mál
því ég er flakkari”
„Umferðarmál eru mín hjartans
mál, því ég er flakkari að eðlisfari,”
sagði Þór Vigfússon, formaður
Umferðarnefndar Reykjavikur, í
viðtali við DB í gær, er hann var
spurður hverju það sætti að vel
kunnur göngugarpur og þaðan af
kunnari hjólreiðamaður gæti haft
áhuga á bílaumferð.
Þór, sonur landskunns bílstjóra
austanfjalls, tekur bílaumferðinni sem
gefnum hlut, þrátt fyrir að bílar hafi
þrivegis ekið hann niður á hjóli sinu.
Inntak umfjöllunar hans um
umferðarmál er I stuttu máli að koma
á fullri sátt, eða gagnkvæmum
skilningi, milli bílstjóra, göngumanna
og hjólreiðamanna og gera fólki með
barnavagna og i hjólastólum
auðveldara að komast leiðar sinnar.
Það er í því fólgið m.a. að gera gang-
stéttarbrúnir við gangbrautir aflið-
andi. „Spurningin er ekki bara um að
koma bílunum áfram” eins og Þór
orðar það.
Um siðustu helgi vakti Þór tals-
verða athygli fyrir erindi er hann hélt I
hádegisútvarpinu á sunnudaginn, í
kjölfar þeirra hörmulegu atburða er
orðið höfðu I umferðinni vikuna áður.
„Það var óhugur og ólga i bænum
og ég fann mig knúinn til að segja
nokkur vel valin orð, svo ég gerði
nokkurs konar innrás i ríkisútvarpið
með því að tala við Baldur Pa.mason,
dagskrárstjóra, á laugardagsk’ Mið og
nánast krefjast þess að fá ,á mig
um málið,” sagði Þór.
Kennsla er það skemmti! ■ ■■em
Þór gerir og þar til hann ■ ‘ org
arstjórn var hann konrckn :-pnta-
skólans við Sund. Því afsai attn
sér að nýju embætti fengn tnir
þar aðeins hluta af fullri I
„Ég kenni af þvi að ég gamai.
því og skil ekki til fulls þegar kennarar
eru sífellt að gera launakröfur, þvi
sjálfum finnst mér undursamlegt s' fá
fjárfúlgur um hver mánaðamót fyrir
það sem mér finnst gaman að.”
-G.S.