Dagblaðið - 07.10.1978, Síða 5
Ekki alls fyrir löngu þekktust naumast karlmenn og kvenmenn í sundur sökum
hártízkunnar sem þá var viö lýði. En tímarnir breytast og mennirnir með, og þá
einnig hárið. Hártízkan hjá karlmönnum í vetur er öfug við það sem áður var,
þegar karlmenn vildu hafa hárið sem lengst. Nú á hárið að vera sem stytzt og þá
gjarnan liðað. Þess vegna er það svo að karlmenn sem fylgja vilja tízkunni flykkj-
ast á hárgreiðslu- og rakarastofur til að fá sér permanent.
Á Rakarastofunni á Klapparstíg
fengum við þær upplýsingar að
stundum væru 10 karlmenn i perma-
nenti í einu á stofunni. Hárgreiðslan
hjá karlmönnunum er æði mismun-
andi en mest áberandi nú er sú greiðsla
þar sem toppurinn er síður og greiddur
til hliðar en hárið stutt að aftan. Sumir
karlmenn kjósa að hafa hárið niður á
mitt eyra en aðrir vilja hafa það upp
fyrir eyrað.
Einnig er vinsæl hárgreiðsla hjá
karlmönnum stutt að framan en sitt
að aftan. I flestöllum tilfellum er hárið
haft sítt í hnakkanum. Ekki virðast
karlmennirnir feimnir við að fá sér
permanent. Er DB-menn voru á ferð á
Rakarastofunni á Klapparstíg voru
þar fjórir karlmenn i þeim erinda-
gjörðum að fá sér permanent, svo
feimnin virðist úr sögunni.
Það eru aö sjálfsögðu karlmenn á
öllum aldri sem fá sér permanent, þó
svo að enn sem komiö er séu það
frekar þeir ungu. Eftir að permanentið
er komið í hárið, er það klippt og síðan
blásið. Maðurinn gengur síðan út sem
nýr og betri maður.
Hjá kvenþjóðinni er það einnig
permanentið sem er hvað mest áber-
andi, en vinsælast núna er að hafa
hárið sem frjálslegast og liðað. Tjásur
eru einnig vinsælar, þó ekki tjásur eins
og þær voru hér fyrir nokkrum árum
heldur er hárið nú jafnsíðara.
Slétt hár niður á herðar og stuttur
toppur er mikið í tízku líka og eru þá
settar litlar fléttur i hárið til að punta
það. Eins eru spennur og kambar
mikið notaðir í sama tilgangi. Starfs-
fólk Rakarastofunnar, Klapparstíg,
tjáði okkur að hvað vinsælast hjá
kvenfólkinu í dag væri að hafa hárið
sem allra frjálslegast.
Vikuna 7.—14. október stendur yfir
Eftir að pinnarnir eru teknir úr, er háriö klippt og blásið, en blásturinn setur lyft-
ingu i hárið.
Þegar permanentpinnarnir hafa verið i hárinu smástund er athugað livort liðirnir séu farnir að myndast. Á myndinni sést ein
starfsstúlka Rakarastofunnar á Klapparstig, en hún er greidd samkvæmt nýju tjásuklippingunni.
PERMANENT FYRIR
KARLA EKKISÍDUR
EN KONUR
—nú á hárið að vera sem allra f rjálslegast
í London „Vika hársins”, en það eru
öll stærstu dagblöð Lundúna sem
standa að þeirri viku. Átta manns frá
hárgreiðslu- og rakarastofunni á
Klapparstíg fara til Lundúna til að
vera viðstödd sýninguna sem þar
verður, og munu þau kynna sér nýj-
ungar sem þar verða sýndar.
Starfsfólkið á Klapparstíg fylgist
með sýningunni i þrjá daga en fer
Herrarnir skulu hafá hárið sitt að ofan
en stutt að aftan, toppurinn skal vera
siður og greiddur til hliðanna.
síðan á námskeið til að kynna sér nýj-
ungar, s.s. Henne permanent og nýja
tegund af hárlitun. Þessi nýja tegund
af hárlitun felur í sér að þvi oftar sem
hárið er litað þvi meiri vítamín fær
það. Efnið í lit þessum er eingöngu úr
jurtaríkinu. Á námskeiðinu verður
einnig kennd notkun nýs hárúða sem
er að koma á markaðinn.
Eftir að starfsfólkið kemur heim
verða nýjungar þessar teknar upp á
Hárið stutt með permanenti og síðan
blásið.
stofunni, ásamt nýjustu hártizkunni
sem sýnd verður á „Viku hársins” í
London. Um 20 manns eru starfandi á
Rakarastofunni á Klapparstíg og
reynir starfsfólkið þar að fylgja eftir
öllum nýjungum sem kynntar eru er-
lendis jafnóðum og þær berast.
- ELA
Slétt hár niður á herðar og stuttur
toppur skal það vera og gjarnan Iftil
flétta I hliðinni til að punta upp á,
einnig eru spennur og kambar mikið
notaðir.
Karlmenn flykkjast á hárgreiðslu- og rakarastofur til að fá sér permanent, en það er sett I áður en
hárið er klippt og blásið.
Nú eru konur hættar að fá sér lagningu sem tiðkaðist hér áður eða túberingu, nú er hánð hara
blásið.