Dagblaðið - 07.10.1978, Side 10

Dagblaðið - 07.10.1978, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978. MMBIAÐW frýálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjótfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Fróttastjórí: Jón Birgir Pótursson. RhstjómarfuHtrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rhstjómar Jó- hannes Reykdal. íþróttir: Haliur Simonarson. Aðstoðarfráttastjórar Adi Steinarsson og ómar Valdi- marsson. Menningarmól: Aðalstoinn Ingótfsson. Handrit: Ásgrímur Pólsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefónsdóttir, EHn Alberts- dóttir, Gissur Sigurösson, Gunnlaugur A. Jónsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, ólafur Jónsson. Hönnun: Guðjón H. Pólsson. Ljósmyndir Arí Kristinsson, Ámi Póll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamlerfsson, Hörður Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurðsson, Sveinn Þormóðsson. Skrrfstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þróinn ÞoríeHsson. Sökistjórí: Ingvar Sveinsson. Dre'rfing arstjórí: Mór E.M. Halidórsson. Rhstjóm Síðumúla 12. Afgreiðsla, óskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverhohi 11. Aöalsimi blaðsins er 27022 (10 linur). Áskríft 2400 kr. ó mónuði innanlands. í lausasölu 120 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf. Siðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 10. Allireruþeireins í þessum dálkum hefur stundum verið kvartað um, að stjórnarskipti hafi engin áhrif. Hægri og vinstri stjórnir séu nokk- urn veginn eins, þegar til kastanna kemur. Vinstri stjórnir beita svokölluð- um „íhaldsúrræðum” og hægri stjórnir auka þátt ríkisins í þjóðarbúskapnum. ísland er ekki éina ríkið i heiminum, sem býr við þetta sérkenni. Svíþjóð er annað dæmi um, að sveifla í litrófi stjórnmálanna hefur ekki hin minnstu áhrif á gerðir stjórnvalda. Það sést á þeim tveimur árum, sem hægri stjórn hefur verið þar við völd. í síðustu kosningabaráttunni lögðu flokkar þeirrar stjórnar, sem nú hefur sagt af sér, mikla áherzlu á and- stöðu sina gegn óhóflegum sköttum og óhóflega stóru og þunglamalegu skriffinnskukerfi ríkisins. Þessi stefna þeirra átti vafalaust töluverðan þátt í kosningasigrinum. Ofnir taumar Um myndvef naðarsýningu Sigríðar Candi í Gallerí FÍM, Laugarnesvegi Gallerí FÍM við Laugarnesveg hefur hingað til ekki verið nýtt sem skyldi en e.t.v. breytist þetta þegar fólk venst þessum nýja stað lengst út við Sundin. Myndlistarmenn þurfa einnig að læra að nota húsnæði af þessari stærð, því hingað til hafa þeir talið sig þurfa að sýna minnst hundrað verk hverju sinni sem þykir aldeilis óheyri- leg tala erlendis. Nú er að finna i Gallerí FÍM sýningu sem fellur ágæt- lega að aðstæðum og er það vefnaðar- sýning Sigriðar Candi. Listakonan er mér óþekkt stærð enda kemur í Ijós að flestar sýningar hennar hafa verið í Kanada, þar sem hún hefur búið og kennt, en nám sitt mun hún hafa stundað í Myndlistarskólanum, Genf ogsvoKanada. Samspil þrívíðs og tvívíðs Sigríður sýnir 17 verk sem virðast nokkuð ólík innbyrðis en þó er að finna nokkur einkenni sem eru mörg- um verkunum sameiginleg, t.d. sam- spil sterkra lita, leik með hringlaga myndkjarna og leik með andstæður flatar og þrívíðra forma eða tauma. I sumuni tilfellum notar Sigriður þri- viðu formin á nokkuð bókstaflegan hátt, þ.e. i stað þess að vefa tréform inn í veftir sínar leggur hún þau utan á og er þessi aðferð ekki ávallt vel heppnuð, a.m.k. fyrir mína parta, því þríviðu formin sýnast gjarnan eins og aukaatriði móts við hina stóru fleti. Áhrifameiri finnst mér þau verk lista- konunnar þar sem hún nýtir afstrakt eiginleika þrívíðra forma takmarka- laust — þótt aldrei séu þessi form í rauninni langt frá náttúrunni. Tilþrif I slikum myndverkum er Sigríður oft hugmyndarík og sýnir talsverð til- þrif í samstillingu hinna margvíslegu parta, flatra sem þriviðra, og verður vefnaður hennar sterkari eftir því sem hann verður stærri um sig. Nálgast hann þá jafnframt lágmyndina eða skúlptúr,-en sú tilhneiging virðist mjög áberandi meðal vefara i dag ef skoðaðar eru alþjóðlegar vefnaðarsýn- ingar. Sigríður heldur sig að mestu við hið ferhyrnda myndform en þó bregður hún út af þvi, t.d. í verki eins og Fúga (nr. 4) með allsæmilegum ár- angri og aðrar tilraunir gerir hún, t.a.m. með eins konar tvíhengi i Gullna hliðið (nr. 6) og alls kyns að- skotaefni — börk, trjágreinar, ullar- lagða o.fl. Hæfileikakona Hér virðist sem sagt vera á ferðinni hæfileikakona sem kann margt fyrir sér í list sinni en á kannski eftir að samræma fyllilega helstu áhugamál sin innan hennar. Myndiist AÐALSTEINN INGÓLFSSON Reynslan er svo sú, að hægri flokkarnir hafa aukið skattbyrðina og eflt skriffinnskukerfið. Er nú svo komið, að opinberir starfsmenn þar i landi eru orðnir 1,4 milljónir á móti 2,4 milljónum í öðrum atvinnugreinum samanlögðum! „Töfrasjá Mozarts” Sænskir atvinnuvegir eru að kikna undir hinni þungu yfirbyggingu. Skipasmíðar hafa nánast hrunið og aðrar frægar útflutningsgreinar á borð við járniðnað, timbur- vinnslu og pappírsgerð hafa glatað verulegum hluta hinna erlendu markaða sinna. Framleiðslukostnaður í Svíþjóð er orðinn of mikill. Hægri stjórnin stakk höfðinu í sandinn á nákvæmlega sama hátt og vinstri stjórnin gerði áður. Hún hækkaði bara skattana og jók jafnframt hallann á ríkisbúskapn- um. Sá halli verður í ár hvorki meiri né minni en 300.000 íslenzkar krónur á hvert mannsbarn í Svíþjóð! Ekki gengur betur í ýmsum hliðarmálum. Stærsti stjórnarflokkurinn hafði fyrir kosningar efst á stefnu- skránni að loka hinum fimm kjarnorkurafstöðvum Sví- þjóðar og koma í veg fyrir byggingu fleiri slíkra. Nú eru þessar stöðvar orðnar sex og starfa af fullum krafti. Viðurkenna verður, að hægri stjórnin í Svíþjóð tók við ákaflega erfiðu búi. Vinstri stjórnin hafði fjármagnað gífurlega birgðasöfnun hjá sænskum útflutningsfyrir- tækjum í þeirri von, að alþjóðlega kreppan mundi skjótt líða hjá. En þá var heimurinn ekki lengur reiðubúinn að kaupa of dýrar sænskar vörur. Hið athyglisverða er, að í vandræðum sínum beitti hægri stjórnin nákvæmlega sömu tilraunum til úrræða og vinstri stjórnin hefði gert. Það er eins og kerfið silist áfram sinn vanalega gang, algerlega án tillits til upphróp- ana og slagorða í kosningabaráttu. Dæmi hliðstæð hinu sænska má vafalaust rekja í fleiri ríkjum Vesturlanda. Þetta er nákvæmlega sama sagan og íslendingar hafa að segja af sveiflum sínum á undan- förnum árum, fyrst til vinstri, síðan til hægri og loks til vinstri aftur. Stjórnir koma og fara á fjögurra ára fresti, en Jón Sigurðsson í Þjóðhagsstofnun heldur áfram að ríkja. Flokkarnir beita einkaslagorðum sínum út í loftið. Undir niðri eru þeir þó allir komnir inn að miðju, allir orðnir að lýðræðissinnuðum jafnaðarmannaflokkum. Þessu þýðir ekki að mótmæla, því að kjósendur hafa séð, að ekki er hinn minnsti munur á vinstri og hægri stjórn- um. Musík og sjónvarp Oft hefur það valdið mér gremju hve algeng sú skoðun virðist, ef marka má dagblaðaskrif, að tónlist eigi ekkert erindi í sjönvarp. Því er haldið fram að hún „njóti sin ekki”. En hér mun þó yfirleitt einungis vera átt við það sem nefnt er „klassísk” músík. Öðru máli gegnir um poppið. Engum finnst neitt athugavert við það þó fluttir séu klukkustunda langir þættir með popp músik með alls konar hoppi og híi og tilheyrandi ljósa- og þrumugangi. Mér finnst heldur ekkert athugavert við þetta. En mörgum finnst það sár móðgun við þeirra háttsettu persónu ef einhver tekur upp sína fiðlu eða sezt við sinn flygil og upphefur eitt klass- ískt spilirí. Þá eru sömu manneskjurn- ar sem æstastar meðtóku poppið óða- mála um að tónlist eigi ekkert erindi i sjónvarp. En ég tel að þetta sé fremur trúaratriði eða fordómur en eitthvað sem er hugsað til enda. Alla vega er kenningunni mest hampað af þeim sem hafa ekkert gaman af músik nema hún sé flutt með margra tonna hjálp- armaskínum. En frá minu sjónarmiði horfir þetta svona við: Tónlist á ná- kvæmlega jafnmikið — eða lítið — er- indi i sjónvarpsem útvarp, konsertsali, leikhús, á grammófónplötur, eða hvem annan þann miðil sem við eigum kost á til að njóta hennar. Að minni hyggju þarf aðeins þremur skilyrðum að vera fullnægt hvað snertir flutning tónlistar í sjónvarpi. Það er að hljómburður sé viðunandi.músíkin áhlustandi og flutn- ingurinn þolanlegur. Þeim sem gaman hafa af.tónlist stendur á sama hvernig hún kemur til þeirra ef þessum frum- atriðum er fullnægt. En auk þess hefur sjónvarpið þann kost að fólk getur séð hvernig listamennirnir bera sig að við spilamennskuna. Og það er sjón sem oft getur orðið kostulegt gaman. En það endurspeglar bara hið nána sam- band holdsins og andans. Villandi þættir Ég hef skrifað þennan formála vegna þess að undanfarið hefur verið óvenjumikið af góðri tónlist I sjón- varpinu. Nú er aðeins eftir einn tón- skáldaþáttur. Hann verður um De- bussy sem kannski var frumlegasti tónsmiður Frakka. En því miður eru þessir þættir svo ómerkilegir að það borgar sig varla að fylgjast með þeim. Þeir eru i fyrsta lagi svo stuttir að þeir eru varla byrjaðir þegar þeir taka enda. 1 öðru lagi eru þeir mjög óná- kvæmir og jafnvel villandi (t.d. þáttur- inn um Beethoven) og halda oft fram leiðinlegum þjóðsagnaskoðunum sem svo ótrúlega mikið er til af um fræga tónlistarmenn. Skástur var þáiturinn

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.