Dagblaðið - 07.10.1978, Page 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978.
15
Þaö cr ekki lifsleiðinn í þessari mynd, öðru nær. Litla barniö er bökstaflega aö
springa af gleöi og leikur við hvutta um leið og bráðnauðsynlegum þörfum er
sinnt. Sumarmynd DB, Þórður Kr. Jóhannesson, Völvufelli 48 Rvik.
URSLITINÆSTA
MÁNUÐI
— og þá fæst úr því skorið hver hreppir
CANON-vélina
Dómncfnd í myndakcppninni
Sumarmynd DB '78 hcfur hafið
störf sín. Er þar mikiö starf fram-
undan, myndirnar maryar og fjöl-
margar eru mjög góðar. Þökkum
við lesendum fyrir þátttökuna og
óskum þeim jafnframt til hamingju
með að svo virðist sem Ijósmyndun
hérá landi sé á hraðri uppleið.
Myndum verður skilað til þátt-
takenda þegar dómnefnd /ýkur
störfum. —
• SUMARMYND DB 78 •
Þau eru efnileg,
íslenzku bömin!
Ung og efnileg manneskja á ferð á far-
artæki sínu, þriggja hjóla, núll komma
núll eitthvað hestöfl. En hér er það
ekki hestaflatalan sem veitir UfsfyU-
ingu. Sumarmynd DB, Þórður Jó-
hannesson, Ægisíðu 117 Rvik.
Ú-ú-ú p-s! — ég skal sko aldeilis ná
niður töskpnni hennar mömmu, segir
sá Utli og gerir sitt ýtrasta. Sumar-
mynd DB, Eirikur Jónsson, Skipa-
sundi 60 Rvik.
Liklega er þessi með snudduna að bjóða gestum sinum til kaffidrykkju. Svipurinn
er hýrlegur, enda snuddan á sínum staðrSumarmynd DB ’78, Kristbjörg Jensen,
Grundargerði 27 Rvík.
Mikill fjöldi sumarmynda hefur bor-
izt til blaðsins og talsvert hefur verið
birt i blaðinu af svarthvitum myndum
og reyndar Ifka litmyndum. í Vikunni
verða margar ágætar litmyndir úr
keppninni birtar innan skamms. Þá er
það ætlun okkar að birta nokkrar
seríur af beztu myndunum í Dagblaö-
inu en því miður erum við nokkuð
bundnir við prentun á svarthvitum
myndum.
Sumarið ’78 einkenndist af óróleika
á sviði stjórnunar landsins. Hvert sem
litið er virðist við blasa brostinn
grundvöllur fyrir rekstri, sumum
virðist allur grundvöllur fyrir tilver-
unni hér á landi brostinn, svona yflr-
leitt.
En myndasmiðirnir okkar, alls eitt-
hvað um 500 talsins, eru greinilega
ekki á sama máli. Þeir hafa sent alls
þúsundir mynda, margar hverjar bráð-
skemmtilegar. Og í dag ætlum við að
sýna nokkrar barnamyndir. Börnin
eru sannarlega efnileg og á myndunum
má sjá að landið sem við byggjum cr
gott. Það er svo annað mál hvað full-
orðna fólkið gerir f málinu. En litum á
nokkrar myndanna.
Sólin og sjórinn gera manninum gott og áreiðanlega hafa mörg börn frá Islandi
safnað góðum forða af fjörefnum i utanlandsferðum I sumar. Gjaldeyrinum er lík-
lega ekki sóað i öllum tilfellum. llér er ein Iftil að dunda sér viö crlcnda strönd.
Sumarmynd DB, Lars Björk, Langholtsvegi 108 Rvík.
Sumar í sveit: fátt er unga fólkinu hollara. Og hér hefur einn ungur maður komizt i kynni við gamlan mann og gömul
vinnubrögð. — Sumarmynd DB, Sigurður Harðarson, Vikurbakka 16 Rvik.