Dagblaðið - 07.10.1978, Side 24

Dagblaðið - 07.10.1978, Side 24
Kjarasamningar VR lausir—vísað til sáttasemjara eftir helgi: Verzlunarmenn í verkfall? „Við vísum þessu máli einhliða til sáttasemjara ríkisins, ef við fáum ekki úrslit um viðhorf viðsemjenda okkar,” sagði Magnús L. Sveinsson, formaður samninganefndar Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur í viðtali við DB. „Við erum meö lausa samninga frá því i febrúar sl.,” sagði Magnús. „Það er staðreynd, að opinberir starfsmenn höfðu hliðsjón af kjörum launastétta á hinum frjálsa vinnumarkaði i siðustu samningum. Við teljum eðlilegt, að tekið verði tillit til hugmynda okkar, meðal annars um nýja launaflokka- skipun til samræmis við opinbera starfsmenn,” sagði Magnús L. Sveins- son. Hann bætti við: „Það er ekkert leyndarmál, að okkur hefur gengið illa að fá viðsemjendur okkar til að setjast við samningaborðið. Það getur ekki gengið endalaust.” Meðlimir VR eru um 8000 og félagið því með sterkustu launþega- samtökum landsins. • BS „Verkfair’ kaupenda áfengis: Hækkunin rýrir greinilega tekjur ríkiskassans „Ætli salan hafi ekki dregizt saman hér um 30% eða meira frá síðustu hækkun,” sagði verzlunar- stjórinn í einni áfengisútsölunni í Reykjavik eftir lokun i gær. Verzlunarstjóramir í öllum þremur áfengisútsölunum voru sammála um það í samtölum við fréttamann blaðsins í gærkvöld að áfengissala hefði minnkað verulega frá síðustu áfengis- hækkun. „Það dregur alltaf úr sölu, þegar áfengið hækkar,” sagði einn þeirra, „en siðan jafnar það sig venjulega aftur. Við erum hins vegar sammála um það núna að þetta hafi verið óvenjulangur tími með minni sölu en áður.” „Þetta er eitthvað að jafna sig,” sagði annar verzlunarstjóri, „en það á samt langt í land með að verða eins og það var fyrir tvær siðustu hækkanir.” Það virðist því nokkuð augljóst að siðasta áfegishækkun gefur ekki þær auknu tekjur til rikis-jððs sem henni var ætlað. -ÓV. Talsvert fjölmenni var við vínbúðirnar í gær rétt fyrir lokun, þó ekki eins og vant er fyrsta föstudag mánaðar. Þarna var þó bilafjöldi og mannþyrping — en sem sé ekkert likt þvi sem venjan er. — DB-mynd R. Th. Sig. Allir fá kakó eins og þeir geta í sig látið — þegar skátar íBústaðahverfi kynna starfsemi sína í dag og á morgun Skátar í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfunum ætla að kynna ibúum hverfanna starf félags síns, Garðbúa, nú um helgina. Kynningin verður í félags- heimilunum við Mosgerði og Hólmgarð 34 i dag og á morgun kl. 14—18. Þar verða skátar með ýmsa kynningarfundi, sýna föndur, syngja skátasöngva og innrita nýja félaga. Allir gestir fá eins mikið kakó og þeir geta í sig látið. 1 fyrradag voru tuttugu ár liðin frá upphafi skátastarfs í hverfunum, en félagið Garðbúar verður 10 ára i febrúar næstkomandi. Það er von foringja félagsins að gamlir skátar í hverfunum og foreldr- ar, sem og aðrir ibúar. bregði undir sig betri fætinum og líti inn hjá skátunum um helgina. ÓV. Skátarnir i Smáibúða- og Bústaða- hverfi sjást hér i starfi og leik. SÍÐDEGISBLÖÐIN KÆRÐ FYRIR VERÐLAGSDÓMI í gær lögðu verðlagsyfirvöld fram krónur, en auglýsingaverð hækki kæru á hendur Dagblaðinu og Vísi samkvæmt beiðni blaðanna.” fyrir brot á ákvörðunum um verð dag- Þessari samþykkt hlýddu Dagblaðið blaða. Hafa forráðamenn þessara og Vísir ekki en ákváðu lausasöluverð blaða verið kvaddir fyrir sakadóm krónur 120. Jafnframt tilkynntu þau Reykjavíkur á mánudagsmorgun. að áskriftarverð blaðanna yrði 2400 Verðlagsyfirvöld gerðu fyrir fáum krónur á mánuði. dögum svofellda samþykkt: Heimila Málið verður nú rekið fyrir skal dagblöðunum i Reykjavík að verðlagsdómi og siðan sent saksóknara hækka áskriftarverð sín í kr. 2200 og ríkisins til umfjöllunar. að lausasöluverð þeirra skuli vera 110 -ASt. Blaðamenn álykta um blaðaverðið Vegna ákvörðunar um verðlagningu hverjar afleiðingar það getur haft, ef dagblaða og umræðu, er orðið hefur i útgáfa dagblaða er hindruð með þeim kjölfar hennar, samþykkti stjórn hætti. Með því er harkalega vegið að Blaðamannafélags íslands eftirfarandi prentfrelsi i landinu og komið í veg á fundi sínum í fyrrakvöld: fyrir eðlileg skoðanaskipti og tjáning- Blaðamannafélag islands vekur arfrelsi, sem nauðsynlegt er í hverju athygli á þeim háska, sem því er lýðfrjálsu landi. samfara, ef blaðaútgáfu er stefnt í I Ijósi þessa væntir Blaðamanna- voða með opinberum aðgerðum. félag tslands þess, að stjórnvöld taki Stjórnvöldum er bent á að íhuga náið þessi mál til endurskoðunar. -ÓV. fijálst, nháð dagblað LAUGARDAGUR 7. OKT. 1978. Tveir hörku- árekstrar í Kef lavík — við beztu aksturs- skilyrði Tveir hörkuárekstrar urðu í Keflavík i gær og voru þó akstursskilyrði öll hin beztu. í báðum tilfellum var biðskylda ekki virt, en ekið rakleitt inn á miklar umferðaræðar. í öðrum árekstrinum slösuðust tveir menn sem voru saman í bíl. Meiðsli þeirra voru ekki talin alvar- leg. - ASt. Pilturá vélhjóli fótbrotnaði í árekstri Ungur piltur á léttu vélhjóli Ienti í árekstri við bifreið á mótum Þórunnar- strætis og Þingvallastrætis á Akureyri í gær. Ungi maðurinn fótbrotnaði i árekstrinum, en var ekki talinn alvarlega meiddur. - ASt. Vestmannaeyjar: Vínveitingar á hótelinu og nýja sam- komuhúsinu Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt fyrir sitt leyti að Hótel Vest- mannaeyjar og Samkomuhúsið í Eyjum fái vínveitingaleyfi verði ákveðnum skilyrðum fullnægt. Frá þessu segir í Vestmannaeyjablaðinu Fréttum nýlega. Hótel Vestmannaeyjar hafði vínveitingaleyfi til skamms tima en síðan var það leyfi tekið af húsinu og hefur hótelið verið lokað siðan 20. ág. Hefur það verið auglýst til sölu. Ungur Vestmannaeyingur, Róbert Granz, hefur nú hug á að hefja rekstur í húsinu og er bæjarstjóm reiðubúin að veita honum vínveitingaleyfi tvo daga vikunnar. Bæjarstjórn er einnig tilbúin að veita hinu nýja samkomuhúsi eyjaskeggja vínveitingaleyfi, en um þessar mundir er að hefjast vinna við innréttingar þess. Samkomustaðir í Eyjum — aðrir en Hótel Vestmannaeyjar — hafa ekki fyrr fengið vínveitingaleyfi. -ÓV. /yKaupið\x ,3 TÖLVUR VJl I* OG TÖLVUUP »1 BANKASTRÆTI8 1276}^

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.