Dagblaðið - 14.10.1978, Síða 3

Dagblaðið - 14.10.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14.0KTÓBER 1978. ísafjörður: Vegagerð ríkisins byggir einbýlishús í stað vega — embættisbústaðir á ísafirði fyrir u.þ.b.450 milljónir Hafsteinn Sigurðsson ísafirði skrifar: Hér á ísafirði eru 16 einbýlis- eða tvíbýlishús í eigu opinberra aðila, að verðmæti nálægt 450 milljónum. Auk þess á bæjarsjóður ísafjarðar nokkur eldri hús, einnig fjölbýlishús. Hús þessi eru ætluð eftirtöldum aðilum: 4 einbýlishús fyrir lækna sjúkra- hússins: Urðarvegi 20. Seljalandsvegi 73, Seljalandsvegi 68, Isafjarðarvegi 2, einbýlishús fyrir dýralækni Urðarvegi 16, einbýlishús fyrir tannlækni Urðar- vegi 34, einbýlishús fyrir skattstjóra Urðarvegi 30, einbýlishús fyrir sóknarprest Miðtúni 12, einbýlishús fyrir bæjarstjóra Engjavegi 15, einbýlishús fyrir bæjarfógeta Hrannargötu 4, einbýlishús fyrir Orkubú Vestfjarða Seljalandsvegi 16, hæð í tvíbýli fyrir Orkubú Vestfjarða Hlíðarveg 15, einbýlishús fyrir banka- Heimtös- iæknir svarar Raddir lesenda taka við skilaboöum til umsjónar- manns þáttarins „Heim- ilislæknir svarar" í síma 27022, kl. 13-15 alla virka daga. stjóra Útvegsbankans Engjavegi 12, tveggja hæða hús fyrir Mennta- skólann Sundstræti 28. Tveggja hæða einbýlishús fyrir bankastjóra Landsbankans er í byggingu á lóð sem aldrei var ætluð undir hús, aldrei auglýst í almennum lóðaúthlutunum og isfirzkum byggingaraðilum ekki gefinn kostur á að byggja. Síðast en ekki sízt er það Vegagerð ríkisins sem lætur sig hafa það að byggja einbýlishús fyrir umdæmis- verkfræðinginn en hann hefur búið í 4 herbergja íbúð sem Vegagerðin á i nýlegu fjölbýlishúsi. Allur áhugi eða peningar Vegagerðarinnar, nema hvort tveggja sé virðist hafa farið i einbýlishúsið en ekki i vegina. Hún hefur nefnilega ekki, það sem af er þessu ári, sýnt þann manndóm að ganga frá 500 metra nýbyggingu á Breiðadalsheiði, frá siðastliðnu hausti, heldur skilið þannig við þennan smá- spotta að margir bilar hafa skemmzt þar I sumar fyrir hundruð þúsunda króna. lsafjörður. Maður kemst ekki hjá því að setja fram þá spurningu hvers vegna fáum einstaklingum séu afhent einbýlishús, jafnvel húsaleigulaus, ef þeir aðeins vilja fara út á land. Er kannski litið á landsbyggðina sem útlegð? Ég geri mér fulla grein fyrir þeim húsnæðisvanda sem er á landsbyggð- inni en ég legg til að hér á Isafirði, verði það leyst þannig að öll einbýlis- húsin verði seld, en i staðinn verði byggt fjölbýlishús þar sem þessu fólki gefst kostur á að leigja i 3—4 ár á meðan það er að komast yfir húsnæði. Leggjum bifreiða- eftirlitið niður „Bifreiðaeigandi” hringdi: „Nú er mikið rætt um nauðsyn þess að spara og sérstaklega að draga úr „yfirbyggingunni” svonefndu. Víða blasa við skattborgurunum dæmi um fáránlegt fyrirkomulag og hreina eyðslu sameiginlegra sjóða þjóðfélags- ins. Bifreiðaeftirlitið stingur mig sérstak- lega í augu. Til hvers I veröldinni er þetta bákn sett á laggirnar? Þama erum við búnir að hrúga upp fólki til þess að stimpla skjöl og rifa kjaft við heiðarlega borgara út af einhverjum smámunum. Ég geri það að tillögu minni að Bifreiðaeftirlitið verði lagt niður hið snarasta. Skatta og önnur gjöld má einfaldlega innheimta í pósti og það á að gera ökumenn og eigendur bifreiða ábyrgari fyrir ástandi bifreiða sinna. Enda má benda á það að ekki bjargar Raddir lesenda Bifreiðaeftirlitið mér er bíllinn verður bremsulaus einhvers staðar uppi á háfjöllum. Nei, ég þarf engan afdankaðan bifvélavirkja á launum hjá ríkinu til þess að segja mér hvað sé að bílnum mínum, það skal ég sjá um sjálfur. Enda fæ ég bágt fyrir, ekki Bifreiðaeftirlitið, ef eitthvað kemur fyrirmigá lélegum bil. Fyrir alla muni, hættum þessum barnaskapog leggjum Bifreiðaeftirlitið niður.” Btiasalan Skeifan heldur g/æsilega bílasýningu í dag. Meðai sýningarbíla eru td.: Volvo 244 de Luxe sjálfskiptur, Volvo 244 de Luxe Volvo 244 de Luxe Volvo 244 de Luxe Volvo 244 de Luxe Volvo 244 de Luxe Volvo 244 de Luxe Volvo 244 de Luxe Volvo 343 árg.1978 vökvastýri. árg. 1977 árg. 1976 árg. 1975 árg.1974 árg.1973 árg. 1972 árg. 1971 árg.1977 Mazda 818 Datsun 180 B Honda Civic Skoda Amigo Hornet Amc Lancer1400 EL Triumph TR7 Ford Escort Audi 100 LS Buick Appolo Þetta er iítið brot af öiium þeim fjöida bí/a sem eru hjá okkur á staðnum, því sé bíiiinn á staðnum se/st hann strax. Bílasalan Skeifan Skeifunni 11 Símar35035og84848. árg. 1976 árg. 1978 árg.1976 árg. 1977 árg.1977 árg. 1975 árg. 1977 árg. 1976 árg. 1974 árg. 1974 Vr Spurning dagsins Ertu í einhverjum íþróttum? (Nemendur i Álftamýrarskóla spurðir). Eirikur Stephensen, 11 ára: Já, ég er i fótbolta í 5. flokki í Fram. Það er mjög skemmtilegt og svo höfum við líka góðan þjálfara. Hann heitir Þórður. Gisli Jónsson, 11 ára: Já, ég er í körfu- bolta I Fram. John þjálfar okkur, hann er alveg svakalega góður. Styrmir Jóhannsson, 11 ára: Já, ég er i körfubolta i Fram. Já, há, hann John er sko góður. Körfuboltinn er skemmti- legasta íþróttin sem ég hef verið I. Bergur Ragnarsson, 9 ára: Nei, ég hef aldrei stundað iþróttir í neinu íþróttafélagi. En ég er stundum I fót- bolta og finnst mér það gaman. Ég held með Val, þeir eru langbeztir á Islandi. Kristinn Eiriksson, 9 ára: Já, ég er i fót- bolta I Fram. Það er miklu skemmtilegra að vera I fótbolta en öðrum íþróttum. Segðu'að Fram sé miklu betra en Valur. ■ ■ Kristján Þórarinsson, 11 ára: Já, ég er i fótbolta I KR og handbolta I Fram. Þó svo að ég sé bæði I handbolta og fót- bolta, þá finnst mér fótboltinn skemmti-

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.