Dagblaðið - 14.10.1978, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978.
13
Dodge Charger Super Bee 383
Magnum, árgerð 1971:
r
Sennilega eina
„súper býflugan”
hér á landi
í byrjun áratugsins 1960 hófu bif-
reiðaverksmiðjurnar í Detroit mikið
kapphlaup um það hver gæti smíðað
sterkustu bílana og kraftmestu vélarnar.
Fordverksmiðjurnar lögðu áherzlu á
Shelbyinn og 428 Cobra Jet Mustang og
Torino en General Motors kepptist við
að selja Pontiac GTO, 396 Super Sport
Lettana og 442 Oldsmobile bilana.
Chrysler verksmiðjurnar létu sitt ekki
eftir liggja og einbeittu sér á B-boddíun-
um en til þeirra teljast bílar eins og
Dodge Coronet R/T, Plymouth GTX,
Plymouth Road Runner og Dodge
Super Bee. B-boddíin voru seld með svo-
kölluðum B-vélum, en það eru 361, 383
og 400 kúbika big block vélar. Einnig
var hægt að fá þá með svokölluðum RB-
vélum en vélarblokkirnar í þeim voru
hærri. R B-vélarnar voru 413,426 og 440
kúbik.
B-boddíin nutu mikilla vinsælda.
einkum eftir ’67 þegar Road Runnerinn
og Super Beeinn komu á markaðinn.
Voru það bæði fallegar línur bílanna og
gifurlegt afl vélanna sem stuðluðu að
vinsældum þeirra. Þrátt fyrir að B-
boddíin væru yfirleitt miklu þyngri en
keppinautar þeirra stóðu þau fyllilega i
þeim. Og ef Big Block Lettarnir gerðust
erfiðir gátu Chrysler aðdáendur fengið
B-boddiin sín með 426 Hemi vélinni og
áttu þá auðvelt með að steikja and-
stæðingana. 426 Hemi vélin var seld
með tveimur fjórföldum blöndungum og
var hún skráð 425 hestöfl, sem mun vera
mjög vanmetið.
1 Keflavík fundum við eitt af fallegri B-
boddiunum sem Chrysler lét fara frá sér.
Er það Dodge Charger Super Bee með
Vissara er að umgangast býfluguna broddhvössu úr Keflavtk með varúð og gæta þess að styggja hana ekki þar sem slikt gæti
reynzt varasamt. DB-myndir Jóhann A. Kristjánsson.
383 kúbika Magnum vél. Billinn er nú í
eigu Hallgríms Sigurðssonar sem átt
hefur hann frá því í maí síðastliðnum.
Bíllinn hefur gengið á milli manna allt
frá því að Ivar leturgrafari Björnsson
flutti hann inn fyrir um það bil fimm
árum. Mun þetta sennilega vera eini
Super Beeinn á landinu. Þó höfum við
haft spurnir af öðrum sem á að vera
einhvers staðar á Vestfjörðum. Ekki
vitum við hvort sá orðrómur er réttur en
sá bíll stendur þá sennilega einhvers
staðar á beit úti á túni.
Tækniatriði
Svo sem fyrr sagði er vélin í bíl
Hallgríms Sigurðssonar 383 kúbika
Magnum vél. Munurinn á 383 Magnum
og öðrum 383 vélum er að á þeim eru
hedd af 440 vélinni ásamt ventla-
gormum, knastás og undirlyftum úr
sömu vél og eru þær kraftmeiri fyrir
bragðið. Búið er að gera nokkrar
breytingar á vél Hallgrims og er á henni
Edelbrock Streetmaster soggrein með
780 cfm Holley blöndungi.
Kveikjukerfið, kveikjan og há
spennukeflið eru frá Mallory en
Appliance pústflækjur sjá um losun út-
blástursins. I vélinni er síðan Street
Hemi knastásinn frá C'hrysler. í bilnum
er fjögurra gira gírkassi með Hurst skipti
en fyrir framan hann er sprengihelt
kúplingshús frá Lakewood. Kúplingin
sjálf er frá Scheefer. Hásingin er 8 3/4
Chrysler hásing með læstu mismuna-
drifi. Undir bilnum að aftan eru loft
demparar en fjöðrunin er, eins og á
flestum keppnisbilum, sérstyrkt. -JAK-
383Lvélin 1 Super Beenum var tekin upp siðastliðið vor og á nú að vera vel heilbrigð enda er hún með ýms- B-boddi Chrysler bilarnir nutu mikilla vinsælda, einkum eftir að Road Runnerinn og Super Beeinn komu
um aukagræjum. á markaðinn um ’67.
V
Super Stock kvartmfluf lokkur kynntur:
Bílamir verða að vera sem næst í
upprunalegri mynd örfáum atriöum öörum
Bilar sem keppt er á í Super Stock
flokki verða að vera verksmiðjufram-
leiddir og i höndum almennings.
Flokkurinn skiptist i tvo hópa, bein-
skipta og sjálfskipta biia. Hvor hópur
um sig skiptist siðan i 16 undirflokka
eftir hlutfalli rúmtaks vélarinnar og
þyngd bílsins. Þrátt fyrir að undir-
flokkarnir séu margir er einungis einn
sigurvegari í Super Stock flokki. Sigur-
vegararnir i undirflokkunum keppa
innbyrðis til úrslita og fær slakari bíll-
inn forskot, þ.e. hann leggur af stað á
undan, og verður hinn bíllinn að ná
honum og fara fram úr til að sigra.
Bannað er að breyta útliti bílsins
með öðru en málningu. Óleyfilegt er
að nota boddíhluta úr áli eða fiber og
ekki má hafa loftinntak á húddinu ef
það var ekki á bilnum þegar hann var
framleiddur. Innréttingin verður að
vera óbreytt, en leyfilegt er að bæta
við mælum í mælaborðið. Super Stock
vélar verða að vera sama tegund og ár
gerð og billinn sem þær eru í. Bannað
er að nota í þær annan útbúnað en
þann sem framleiðandi bílsins fram-
leiðir. Þó má nota hvaða knastás,
undirlyftur og ventlagorma sem er en
ekki má breyta ventlunum í vélinni.
Blöndungurinn verður að vera af
sömu tegund og árgerð og sá sem var á
vélinni í upphafi. Óleyfilegt er að
breyta blöndungnum að öðru leyti en
þvi að skipta um nálar i þeim.
Heimsmetið í Super Stock er 9.64
sek. en hraðametið er 218.8 km/klst.
Það eru margir þeirrar skoðunar að
betra sé að hafa bíla beinskipta en
þrátt fyrir það er heimsmethafinn i
Super Stock sjálfskiptur. Bezti timi
beinskiptra bíla i Super Stock er 9.84
sek. en báðir bílamir eru ’68 árgerð af
Cudu með 426 kúbika Hemi-vélum.
Jóhann Kristjánsson
Frú Margaret Glembocki hefur keppt árum saman i kvartmilunni. Siðastliðið haust tókst henni að ná i sinn fyrsta meiri hátt-
ar titil er hún vann Fallsnational keppnina sem haldin var i Seattle i Washington.
Dave Borteman hefur staðið sig mjög vel i Super Stock flokki en hann keppir á
’71 Dodge Challenger. Borteman á metið i SS/IA undirflokknum en það er 10.98
sek.
Judy Lilly hefur sigrað oftar i keppni en nokkur önnur kona sem keppt hefur i
kvartmilunni. Hún hefur keppt f mörgum flokkum en hin siðari ár hefur hún aðal-
lega keppt i Super Stock flokki.
\
✓