Dagblaðið - 14.10.1978, Side 24

Dagblaðið - 14.10.1978, Side 24
Týndi jeppinn fundinn — seldur fyrír milljón — DB-lesandi benti lögreglunni á bflinn Jeppinn, sem stolið var af plani bíla- sölu hér í borg 1. október, er fundinn. Sex tímum eftir útkomu Dagblaðsins sem sagði frá vandræðum eigandans vegna stuldar jeppans hringdi lesandi DB og kvað jeppann vera á Tungu- vegi. Lögreglan kom þegar á staðinn og þar"var jeppinn. Afturnúmer var rifið af og gerðar ráðstafanir til að ræsa mætti vél án lykils. Annað var ekki að. Ekki er vitað hvort bíllinn stóð þarna frá 1.—11. október en snemma auglýsti lögreglan eftir biln- um í útvarpi. Eins og nærri má geta varð eigandi jeppans, 23 ára gamall maður sem er að hefja búskap á Vesturlandi, glaður við tíðindin. Hann ætlaði að nota sölu- andvirði jeppans upp í útborgun dráttarvélar. Það tókst honum líka vel. Vinur hans, Ómar Dagbjartsson sem býr i Garðabænum, bað DB að V .................. iia i ........ birta fregn um jeppann sem var búinn að vera týndur í 11 daga. Sem fyrr segir tók það 6 klukkustundir að fá þær upplýsingar sem dugðu til að finna jeppann. Ómar náði I jeppann og hélt áfram að auglýsa hann til sölu því bóndinn þurfti dráttarvélina. 1 gær var „týndi” jeppinn seldur fyrir milljón á borðið. Dráttarvélar- kaup bóndans eru tryggð og allt hefur endað vel sem í ævintýri. Guðmundur Hermannsson, yfir- maður rannsóknardeildar lögreglunn- ar í Reykjavik, sagði að jeppinn hefði fundizt samkvæmt tilvísun. Hefði hann verið á bílastæði við Tunguveg og staðið næst hitaveitustokk og ekk- ert athugavert verið við hann. - ASt. Ómar Dagbjartsson, til hægri, heldur i afsalið fyrir jeppanum sem stolið var og týndur i 11 daga. Nýi eigandinn heldur feimnislega i homið á afsalinu en mun væntanlega ekki taka jafnfeimnislegum hðndum á hinu ágæta ökutæki sem hann nú er eigandi að. DB-mynd Hörður. Alþýðuflokkurinn með frumvarp í burðarliðnum: _________ Z SEÐLABANKI SKYLDAÐUR TIL RAUNVAXTASTEFNU Hundahald hefur nú verið leyft á Eskifirði — með ýmsum kvöðum þó. Bæjarstjórnarfundur i síðustu viku fjallaði að langmestu leyti um þessi brennandi heitu mál hundanna og eig- enda þeirra. Undanfarin ár hefur hundahald verið bannað í bænum, án þess þó að það hafi verið virt. Hafa margjr haft hunda í bandi, sér og sinum til skemmtunar, og síðastlið- inn vetur fjölgaði hundaeigendum um helming þannig að í bænum voru einir 12 hundar þrátt fyrir bannið. Fannst þá mörgum mælirinn fullur því margir eru andvigir hundahaldi i bæjarsam- félagi. Sendi bæjarstjóri 'harðort bréf til hundaeigendanna um að hundarnir yrðu fjarlægðir fyrir 1. júni sl. Sumir eigendanna létu þá drepa hunda sína eða sendu þá til sveita. Eru nú eftir 5 eða 6 hundar i bænum. Eftir að bæjarstjórnin samþykkti hundahald á fimmtudaginn var gilda þau skilyrði fyrir hundahaldi að sótt sé um leyfi til bæjarstjórnar, hundar séu merktir, að þeir séu tryggðir, að hundaeigendur sjái árlega um hreins- un á hundum sinum — og greiði 75 þúsund króna skatt til bæjarfélagsins fyrir að hafa hund. Samþykkt þessi var send félags- málaráðuneytinu til nánari umfjöllun- ar. - Regína/ JBP Allir þingmenn Alþýðuflokksins i neðri deild Alþingis flytja bráðlega frumvarp til laga þar sem Seðlabanki íslands verður skyldaður til að taka upp raunvaxtastefnu, ef það verður samþykkt. Frumvarpið fjallar að öðru leyti um vaxtamál sem flutningsmenn telja að nú þurfi verulegrar endurskoðunar við. Ríkjandi vaxtastefna sé einn stærsti verðbólguvaldurinn. Við verð- bólgunni verði ekki brugðizt að neinu gagni nema tekin verði upp gerbreytt vaxtastefna, þ.e. raunvaxtastefna. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að breytingin þurfi að verða í áföngum með tilliti til útflutningsatvinnuveg- anna og afurðalána. Nefnd eru tvö ár sem aðlögunartími varðandi þessa aðila. Frekari grein verður gerð fyrir efni frumvarpsins þegar það verður lagt fyrir Alþingi. lijálst, nháð dngblað LAUGARDAGUR 14. OKT. 1978 Flugleiðir vilja ekki Vængistrax — ekki eðlilegt á meðan taperá innanlandsflugi Nýlega ákváðu forráðamenn Flug- leiða að hætta viðræðum við forráða- menn Vængja um sameiginlegan rekstur eða kaup á félaginu. Er það m.a. vegna þess að innanlands- flug FL og Vængja er rekið með tapi þar sem far- og farmgjöld í innanlandsflugi frá árinu 1971 þar til nú hafa ekki hækkað nema um 463 prósent en far- gjöld með sérleyfisbilum um 679 pró- sent, svo eitthvað sé nefnt. Fulltrúar beggja telja hins vegar að við eðlilegar aðstæður væri rétt að starf- rækja áætlanaflug félaganna sameigin- lega. - G.S. Dagblöðin 5 sinnum ódýrari en tímaritin — dagblaðaverðið hækkar hlutfallslega jafntogeyrarlaunin Islenzk dagblöð eru hátt í fimm sinn- um ódýrari en almenn tímarit. 1 Dan- mörku er munurinn aftur á móti mun minni. Þar fást tæplega þrjú eintök af dagblöðum fyrir sömu upphæð og al- gengustu tímarit kosta. Er þetta enn ein vísbendingin um að islenzk dagblöð séu ódýr og hlutfallslega ódýrari en annað prentað mál. Meðaltalstölur byggðar á verði dag- blaða í Danmörku og á íslandi segja að algengt verð timarita í Danmörku sé jafnvirði 360 króna íslenzkra. Á íslandi eru slik rit seld á 530—550 krónur og þaðan af hærra. Íslenzk tímarit eru því mun dýrari en dönsk. Um dagblöðin gegnir aftur á móti öðru máli. Algengasta verð danskra dag- blaða er 129 krónur. lslenzk dagblöð til- kynntu verðlagsstjóra fyrir nokkru að þau hygðust setja verð i lausasölu upp I 120 krónur fyrir eintakið. Það verð er þvi lægra en í Danmörku en þar eru dag- blöðin seld á svipuðu verði og á öðrum Norðurlöndum. Verð í Sviþjóð er þó nokkru hærra. Við athugun á þróun verðs dagblað- anna og samanburði við laun hafnar- verkamanna frá árinu 1969 til 1978 kemur I Ijós að dagblöð hafa hækkað nær hlutfallslega alveg jafnt og launin á eyrinni. . ÓG íbúöin fylltist af reyk Slökkviliðið var kvatt að Barmahlíð 34 i gær vegna reyks sem lagði út úr mannlausri íbúð. Er komið var á staðinn kom í ljós að á eldavél hafði gleymzt pottur með mat. Slökkt var skjótlega en reykur hafði valdið talsverðum spjöllum á íbúðinni og jafnvel víðar i húsinu. ^st.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.