Dagblaðið - 20.10.1978, Side 2

Dagblaðið - 20.10.1978, Side 2
DAGBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR.20. OKTÓBER 1978. Sfldveiðar íreknet: Aðkomu- bátar afskiptir með löndun —taka þyrfti upp sömuað- ferð ogvið loðnulöndun Raddir lesenda :v: ■■ f Vestmannaeyingur hringdi: § Nokkrar umræður hafa verið að undan- Srförnu um síldveiðar í reknet. Hornfirðingar ||hafa kvartað yfir þvi að vökuíögin séu brot- Jan og aðkomubátar landi í helgarfríum. 3 Þetta kann rétt að vera. En það verður . að taka annað með í dæmið. Mestum hluta V síldarinnar er landað i Höfn í Hornafirði og r þar sitja heimabátar fyrir með iöndun. Þeir geta landað alla daga, en aðkomubátarnir kannski 2—3svar í viku. Það er þvi eðlilegt að þeir reyni að bæta sér þetta upp. Til þess að bæta úr þessu mætti hugsa sér að tekin yrði upp sama aðferð og við loðnulöndun. Þar ganga heimabátar ekki fyrir öðrum, heldur bátar teknir eftir þeirri röð, sem þeir koma inn með afla. Vestmannaeyingur telur heppilegra aö taka upp sömu löndunaraðferðir við síld og loðnu, þar sem heimabátar ganga ekki fyrir. DB-mynd Sv. Þorm. Póstsendum SVR GANGIUT í ÖRFIRISEY Leið 2, Grandi — Vogar, gengur ekki nógu langt fyrir þá sem starfa i Orfirisey og þvi þurfa þeir að ganga á annan kilómetra. DB-mynd Ragnar Th. Þórarinn Björnsson, Laugarnestanga 9b, skrifar: Ég leyfi mér að óska eftir undir- skriftalistum allra þeirra sem stunda störf úti á Grandagarði og í örfirisey, með kröfu til borgarráðs um bætta þjónustu. Veita þarf okkur þá sjálf- sögðu þjónustu að vagna SVR verði látnir ganga út í örfirisey milli kl. 7 og 9 á morgnana og síðan þrjár ferðir síð- degis, þ.e. kl. rúmlega 16,17 og 18. Ég býst við því að flestir sem þarna stunda störf, yrðu þessari nýskipan þakklátir. Við sem vinnum úti i örfirisey, skiljum ekki af hverju okkur eru meinuð sömu réttindi er aðrir borgarbúar njóta. Við þurfum að ganga á annan km til vinnu okkar frá síðasta viðkomustað vagnanna. Og þá er ekki minnst á þá furðu, að annað bæjarfélag skuli hafa meiri rétt á þjónustu Strætisvagna Reykjavíkur en hluti borgarbúa, og á ég þá við Sel tjarnarnesið vellrika. /

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.