Dagblaðið - 20.10.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER1978.
Nýir og gamlir siðir á Alþingi:
Flytur þingmaðurinn f rum
varp fyrir fyrirtæki sitt?
drættisskuldabréfa og ýmiss konar Ef þetta heitir ekki að ota sinum minnsta kosti getað fengið einhvern
verðbréfa, þ.e. Fjárfestingafélags tota á hinn siðlausasta hátt, þá er annan til að flytja frumvarpið.
íslands hf. hrafninn ekki svartur. Hann hefði að 6900-2218
Með nýjum mönnum á þingi hafa
þegar verið lögð fram ýmis ný og merk
mál. Er þar stundum tekið á málum
sem hið virðulega þing hefur ekki
tekið á til þessa og er það vel. Nýju
þingmennirnir hafa margir boðað nýtt
siðferði á Aiþingi og benda fyrstu verk
þeirra þar til þess að við það ætli þeir
að standa.
Það vakti athygli að eitt fyrsta
málið sem einn af „gömlu” þingmönn-
unum lagði fyrir, var útþvælt mál og
rotið: útgáfa happdrættisskuldabréfa.
Það vakti ennþá meiri athygli mína að
flutningsmaður frumvarpsins, Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, er í stjórn fyrir-
tækis sem lifir á kaupum og sölu happ-
Hringið
ísíma
27022
miltt kl.
13 og 15
Ná verðlagslögin ekki jafnt
til
allra?
Frú Sigríður Auðuns hríngdi og sagði:
„Það er augljóst mál að ekki eru
allir jafnir fyrir verðlagslögum hér á
landi. Það sést bezt á þeim réttarhöld-
um sem nú hafa staðið út af 10 króna
hækkun á lausasöluverði dagblaða og
á atviki sem varð nokkurt bitbein milli
mín og verðlagsstjóra á þessu ári.”
Sigríður kvaðst hafa farið í hár-
greiðslustofu i Glæsibæ og beðið um
klippingu. Fyrir klippinguna, sem tók
fáar minútur, var sett upp 1600
krónur. Þá fékk hún þær upplýsingar
hjá verðlagsstjóra að leyfilegt verð
fyrir klippingu væri 850 krónur.
Kvaðst hún hafa bent mönnum verð-
lagsstjóra á hið háa verð þeim til at-
hugunar, en'ekki vildi hún leggja fram
ákveðna kæru, því hún vissi um fleiri
stofur sem voru með verð klippingar
hærra en leyfilegt verð var.
Konunni var á það bent, að litið
sem ekkert væri hægt að gera í þessu
máli, og ekkert ef hún hefði ekki nótu
fyrir 1600 króna upphæðinni. Nót-
unnar aflaði hún með nokkrum erfið-
leikum og kom henni til verðlags-
stjóraskrifstofunnar.
Mikið vatn er siðan til sjávar runnið
og verð öll á klippingu orðin breytt.
Munu þau nú vera leyfileg 15—1700
krónur. En jafnsnarlega hafa verð
hárgreiðslustofanna hækkað umfram
leyfilegt verð. Klipping í Glæsibæ
kostar nú 3200 krónur.
„Það er ekki einu sinni að skrifstofa
verðlagsstjóra hengi upp hin heimil-
uðu verð á hárgreiðslustofunum. Það
ætti þó að vera lágmarkskrafa. Þessi
dæmi sýna að það eru ekki allir jafnir
fyrir lögunum hér á landi.”
Raddir
lesenda
Fyrsta /jóðabók
Jónasar Friðriks
er komin í bóka verslanir
Svarthöfði sagði m.a. í Vísi 17. október sl.:
^G'
\jÐ*ifv
Það er nefnilega þannig með
einstaka menn, sem fást við
að skrifa, að þeir eru
forvitni legir og sumir
jafnvel snjallir. Og grunur
leikur á þvi, aö Jónas
Fríðrík sé einn I þeirra 1
hópi. Þess vegna er
kannski brýnna að ná
I Ijóðabók hans en •
helftina af því sem
kemur ót fyrir þessi
jól...
\ GV-U ■
. . . Það er þvl eins og
að koma út i hlákuvind
á vetrardegi að fá í
hendur bók, sem kemur
manni til að hlæja —
skella upp úr aftur og aftur,
jafnvel þótt enginn maður sé
nærstaddur til þess að
taka þátt I gleðinni. En það
er einmitt þetta, sem bók
Jónasar Fríðriks Guðnasonar,
Flóðhestar i glugga, gerír
lesendum sinum...
VS i Tímanum 15/10 ’78.
í Z
ÖÉÉISfc'íS SBI
«l,^ i's- '4 '4$$$
.
.
.. .
fe. i ■ -'
Tryggið ykkur eintak í tíma,
uppiag takmarkað.
Útgefandi.
3
Spurning
dagsins
Lestu bœkur?
Vilborg Ævarsdóttir, 11 ára: Já, ég les
mikið af bókum og finnst það
skemmtilegt. Mér finnast ævintýra-
bækurnar skemmtilegastar. Ég fer alltaf
í bókasafnið I Sólheimum.
Auður Helgadóttir, 11 ára: Já, þó les ég
aðallega bamabækur. Ég fæ flestar
bækur sem ég les I bókabílum i hverfmu
heima.
Sigríður Jóhannsdóttir, 11 ára: Já, það
geri ég. Mér finnst skemmtilegast að lesa
hasarbækur. Ég les lika ævintýrabækur
og sögubækur. Ég hef kort til þess að
fara i bókabíl og þar er hægt að fá fullt
af bókum.
Elin HaUsteinsdðttir, 11 ára: Það er
alltaf gaman að lesa bækur. Ég les mikið
af dularfullu bókunum, einnig eru
ævintýrabækurnar skemmtilegar.
Arndis Jónasdóttir, 11 ára: Já, ég les
mikiö af bókum. Mér fínnst sérstaklega
gaman að lesa dularfullu bækurnar.
Þær eru I uppáhaldi hjá mér núna. Svo
er lika gaman að Nancy og sumar hasa-
bækur eru ágætar.
Gunnar Sigurðsson, 8 ára: Nei, ég les
ekki mikið. Ég er ekki nógu duglegur að
lesa bækur. Stundum les ég Tinna, hann
er svo skemmtilegur og hann lendir i
ýmsum ævintýrum.