Dagblaðið - 20.10.1978, Blaðsíða 4
r ■' ..........
Miamiferðir að verða
tízkufyrirbrigði á íslandi
Farþegum þangað fjölgar stöðugt en ennþá dauf
eftirspurn ef tir Kanaríeyjaf erðum
Ferðir til Miami á Florida eru óðum
að komast i tizku hjá lslendingum.
Þátttakan í þeim eykst jafnt og þétt en
að sania skapi er — að minnsta kosti
ennþá — mun daufari eftirspurn og
skráning í vetrarferðir til Kanaríeyja
sem verið hafa aðaltízkufyrirbrigðið i
ferðamálum íslendinga undanfarin ár.
Verð á ferðunum má teljast mjög sam-
bærilegt.
Birgir Ólafsson, sölustjóri Flugleiða
í Lækjargötuskrifstofunni, kvað Flug-
leiðir vera með 3ja vikna ferðir til
Miami á ferðaáætlun á 3ja vikna
fresti. Næði sú áætlun til 29. marz
1979.
Verð á þessum föstu hópferðum
Flugleiða, sem farnar eru með farar-
stjórum, skiptist í tvo flokka. Fram til
14. desember kostar hópferð til Miami
um 260 þúsund fyrir manninn. Er þá
reiknað með að búið sé‘í tveggja
manna herbergi en hótel og fæði eru
innifalin i verði. 14. desember hefst
háannatimi ferðamála á Miami og
stendur til páska. Flækka þá mjög
hótelgjöld og kostnaðarliðir svo ferðin
er talin munu kosta 330 þúsund miðað
viðtvíbýli.
Flugleiðir hófu þessar Miamihóp-
ferðir sl. vor og var farið hægt af stað.
En nú er farið á 3ja vikna fresti og
hafa þátttakendur verið um 40 að
meðaltali i hverri ferð.
Birgir sagði að margir Íslendingar
færu til Florida á eigin vegunt, eða
utan hópferðanna. Flugfar héðan
(vetrarfargjald) kostar með viðkomu í
New York í báðum ferðum 155
þúsund fram og til baka. Farþegar
verða þá að sjá um hótel sín sjálfir og
önnur mál en hægt er að panta hótel
hjá Flugleiðum.
Það verð sem hér hefur verið nefnt
er mjög álíka og Kanaríeyjaferðir
kosta, nema háannatimagjöldin. Þeir
sem farið hafa um báðar slóðir líkja
vart saman hve Florida býður upp á
skemmtilegri möguleika til dvalar og
afþreyingar.
Að sögn Birgis er enn dauft yfir
eftirspurn til Kanarí. Vetrarferðir
þangað hefjast 28. október og verða
vikulegar frá miðjum desember. í
fyrstu ferðirnar (þrjár vikur) er
reiknað með að fargjaldið verði um
240 þúsund á mann miðað við 2ja
manna íbúð.
- ASt.
Svona nokkuð gera þeir út frá Miami
— hér er fljótabáturinn Frumskógar-
drottningin á fullri ferð, fullhlaðinn far-
þegum.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978.
\
Nýja bíó frumsýnir Stjörnustrídið:
BRÚTTÓTEKJUR
NEMA 23 MILUÖRDUM KR.
Týndiveskinu
Ung kona, nýkomin heim frá
Svíþjóð, varð fyrir því óhappi ekki alls
fyrir löngu að tapa seðlaveski sínu með
öllum skilrikjum, bæði íselnzkum og
sænskum.
Konan vinnur i SS-verzluninni i
Iðufelli og telur sig hafa týnt veskinu
þar. Auk skilríkjanna, sem mjög
nauðsynlegt er fyrir hana að fá aftur,
voru í veskinu um fimm þúsund krónur
í peningum og fjöldi nafna og heimilis-
fanga kunningja hennar og vina í
Svíþjóð og víðar.
Um er að ræða blátt leðurseðlaveski,
með nafngyllingu. Konunni er ekki svo
annt um peningana, en vill fá skilríkin
aftur og segist vilja borga góð fundar-
laun.
Veskinu má skila á ritstjórn Dag-
blaðsins, eða til Karólínu Thorarensen,
Unufelli 30, eða á vinnustað hennar í
SS-búðinni, Iðufelli.
-ÓV.
— ævintýramynd sem gerist íöðru sóíkerfi mörg þúsund Ijósár íburtu
WAWA'A-Ok 'A VTV/7Y/7y
Montemario Handsaumaöar; ítalskar
karlmannamokkasínur
Sérlega mjúkar og vandaðar.
Litir: Brúnt og svart. Kr. 13.990.
Skór í sérstökúm
gæðaflokki
Opið fóstudag til kl. 7,
laugardag 9—12.
V^.V^.O.w.v>?ox/.v/.v/.v/.W/.C
Laugavegi 69 simi168bU
Frægasti útvarpsplötusnúður
Bretlands heimsækir Hollywood
á sunnudaginn:
Kanadíski strákurinn sem hóf feril
Það er skammt stórra högga á milli i
kvikmyndahúsum höfuðborgarinnar um
þessar mundir. í dag hefur Nýja bíó sýn-
ingar á kvikmyndinni Stjörnustrið (Star
Wars) eftir George Lucas, einn vinsæl-
asta og (nú orðið) ríkasta kvikmyndaleik-
stjóra Bandaríkjanna.
Engin kvikmynd í sögunni hefur aflað
jafnmikilla tekna og Stjörnustríð. Fyrir
réttum mánuði voru brúttótekjurnar
orðnar um 75 milljón dollarar — eða
hvorki meira né rninna en tuttugu og
þrir milljarðar íslenzkra króna. Til
samanburðar má geta þess að brúttótekj-
urnar af Close Encounters voru á sama
lima liðlega helmingi lægri.
Stjörnustríð er ævintýramynd sem
gerist í öðru sólkerfi mörg þúsund Ijósár
i burtu. Sagan fjallar um ástir Loga
»
Mark llamill i hlutverki Loga geim-
gengils ásamt vélmcnnunum tveim, R-2
D-2 og C-3P0, sem fara meö veigamikil
hlutverk i myndinni um stríð stjarnanna.
Sótti f rægðina til
Luxemburg og
BBC en konuna til
Islands
sinn sem útvarpsplötusnúður aðeins
16 ára og kynnti þá sígilda tónlist,
síðan popptónlist í Radio Luxemburg í
sex ár og er nú orðinn einn alvinsæl-
asti „snúður” á Bretlandi og starfar
fyrir BBC, mun heiðra gesti Holly-
wood á sunnudagskvöldið. Hann
heitir Kid Jensen.
Frægð sína hefur hann sótt til alls
fjögurra útvarpsstöðva — en konuna,
Guðrúnu Þórarinsdóttur, sótti hann
til íslands fyrir þrem árum. Kemur
hún með honum hingað ásamt dóttur
þeirra.
Réttu nafni heitir hann David Alan-
Jensen en þegar hann hóf störf hjá
Radio Luxemburg, aðeins 18 ára, var
hann langyngstur plötusnúða og fékk
þá viðurnefnið Kid (krakki). Nú er
hann 28 ára.
Kid virðist fleira gefið en bara að
„trekkja” plötuspilara ef dæma má af
umsögn um þátt hans í tónlistartíma-
ritinu Melody Maker í síðasta mánuði.
Þar segir að þátturinn, sem áður fyrr
hafi verið barnalegur og einfaldur,
hafi í meðförum Kid Jensens tekið að
líkjast efnisríku tímariti, fremur en
venjulegum útvarpsþætti, þar sem
fjöldinn allur af viðfangsefnum sé tek-
inn fyrir auk tónlistarinnar. Er Kid
þakkað að Radio l risi úr meðal-
Þaö er nokkur mælikvaröi á vinsældir
Kid Jensens að hann kemur yfirleitt
ekki fram nema meö lífvörðum til aö
halda aðdáendum i hæfilegri fjarlægð.
mennskunni öðru hvoru, eins og það
er orðað í blaðinu.
Á mánudagskvöldið mun hann
aftur vera i Hollywood i einkasam-
kvæmi sem staðurinn hyggst halda
fastagestum sínum. . G.S.
geimgengils og prinsessunnar Lilju og
baráttu góðra og vondra kalla og auð-
vitað sigrar hið góða að lokum. En áður
gengur ýmislegt á, eins og nafnið gefur
til kynna.
George Lucas, höfundur sögunnar og
leikstjóri Stjörnustríða, hefur lengi verið
hugfanginn af vísindaskáldsögum. Hug-
myndina að myndinni er hann sagður
hafa fengið sem litill drengur þegar hann
lá öllum stundum yfir sögum af Hvell-
Geira og svipuðum, ímynduðum persón-
um ogfyrirbærum.
Myndin hefur hlotið mikið lof gagn-
rýnenda — einkum fyrir tæknilegu hlið-
arnar — og hlaut hún Óskarsverðlaun á
því sviði við síðustu úthlutun.
Aðalhlutverk leika Mark Hamill,
Harrison Ford, Sir Alec Guinness, Peter
Cushing og Carrie Fisher, sem er dóttir
þeirra Debbie Reynolds og Eddie Fisher.
-ÓV
tommu
með fjarstýringu
aðeins kr. 464 þús.
Katt kerfi 2-in-linemyndlampi-aðeins 6 einingar í staö 14 í
öðrum tækjum, sem auðveldar alla þjónustumöguleikar fyrir
plötu- og myndsegulband
litsjónvarpstækin SJÓIMVARP og RADÍÓ, Vitastíg 3. Sími 25745.
J V