Dagblaðið - 20.10.1978, Page 6

Dagblaðið - 20.10.1978, Page 6
SVEFNHERBERGISHÚSGÖGN Þessi vönduðu húsgögn eru til sölu. > Upplýsingar á aug/ýsingaþfónustu Dag blaðsins. Sími27022. H—2010. Tilkynning Vér viljum hér með vekja athygli heiðraðra viðskiptavina vorra á því að vörur sem liggja í vörugeymsluhúsum vorum eru ekki tryggðar af oss gegn bruna, frosti eða öðrum skemm- dum og liggja þar á ábyrgð vörueigenda. — Athygli bifreiðainnflytjenda er vakin á því að hafa frostlög í kælivatni bifreiðanna. Hf. Eimskipafélag íslands Til sölu við Sundin 3ja herbergja efri hæð, ca 90 ferm, allt sér. Stórar svalir, rúmgóð geymsla og þvottahús. íbúðin er sérlega vel útlítandi og þarfnast engra viðgerða. íbúðinni fylgir 50 fm bílskúr með hita og 3 fasa raflögn. Ræktuð lóð með miklum trjágróðri. íbúðin getur verið laus fljótlega. Upplýsingar í síma 82768. Bókhaldsþjónusta Bjarna Garðars, Austurstrœti 7,2. hmð. Dömur athugið! Nú er tækifærið að kaupa jólagjöfina á góðu verði. Náttkjólar frá kr. 2.600.- Barnanáttfatnaður frá kr. 1.300.- Opið laugardag kl. 9-12. Túlípaninn Ingólfsstræti 6. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978. Bók menntir wöjulcgir leséodöf urlvfjánaa. I Jtvtntýrabeúuinoni vr háð barália upp á tíf og dauða. i hiúni dtur- Ivfjanna virðtst ríkja ré sálarlifsinv t*ti varla ncraa á yfirtorðlrai — þrl að ðftinn er cinaig áhrifaiHÍkill jiar. Þessir tvrir itdmar sn«ia.vt afla sögwia I gcgn, renna jafnvd nð dnfmrju |e>íi saman. Nvar fáum við — - íest héndur? Allv stnðar, þvi að við komumst njtainm --uimmi. mwiu, pvi .<«> rni að þ>i nð hér er eagu ððru lý*t cn veruldkanum vjálfum. Sagan er f>rvta skátósaga kornungv höfundar og f»ð hcr hán öll merki þjálfunar og revnvlu bsrði að þvi cr vnertir cfniMök. pcr- sðnuh'vitigar og meðfcrð máfvinv Kr ckki vafi á Jrvf að bðr éftir vcrður beðið mcð ðþrcyju eftir hvcrri nýrri tú»k frá Magncu Matthiasdúlinr. \iagnra scndi frá sér Ijóðabókina Kopar árið Í976 og hcíur ritað bamavogur fjrír útvarpið. lilffilföÍÍBllili ll HIÍ vl'' Kápa bókarínnar. Pælt meðal dflenda Hægara pælt enkýlt eftir Magneu J, Matthiasdóttur Um skáldsögu Magneu J. Matthias- dóttur, Hægara pælt en kýlt, 150 bls. Almenna bókafélagið. „Refurinn hleypur niður brekkuna á leið til skógar. Það stirnir á rauöan likama hans í smaragðsgrænu grasinu. Fast á hæla hans koma Hundarnir — hreinræktaðir kynbættir sérþjálfaðir hundar með lafandi tungur...” Svona hefst skáldsaga Magneu J. Matthíasdóttur, Hægara pælt en kýlt, sem Almenna bókafélagið gefur út í stóru upplagi. Skyldi þetta vera þjóð- saga, ævintýri eða opið ljóð hugsar les- andinn í fyrstu? Frekari lestur opin- berar skyndilega allt annan hugar- heim, þ.e. veröld hassista og annarra vímudýrkenda í stórborginni, þar sem menn „pæla” sinnulausir fremur en „kýla” aforku. Nýtt viðhorf Áfengi hefur verið talsvert fyrir- ferðarmikið i íslenskum nútímabók- menntum, minnst hefur veriö á annað „dóp” á stöku stað, en ég man ekki eftir heilli skáldsögu með dópistum sem aðalpersónum fyrr en nú. Sú stað- reynd endurspeglar eflaust breytt við- horf og nýja tíð. Eins og vænta má, hafa „dóp”bókmenntir hins vegar grasserað í Bandaríkjunum hin síðari ár en viðhorf höfunda hafa breyst þar í landi með árunum. „Dóp”dýrkun sjötta áratugsins hefur sjatnað, trúboð Timothy Learys er fyrir bí og blóma- börnin frá 1968 hafa snúið til sins heima eða þá sigla um San Francisco sem stefnulaus reköld. Draumurinn er áendaog nirvanareyndisttálsýn. Heimur tálvona Höfundur gengur út frá þessu and- rúmslofti vonleysis og tálvona, þar sem fólk vafrar um iðjulaust, bíður eftir næstu pípu, stundar Kabbala- kukl, talar hrognamál vímudýrkenda (og glósur fylgja aftast i bókinni) og hefur ofan af fyrir sér með að „díla”, þ.e. selja öðrum hass eða pillur. Um- hverfi þeirra er ekki nafngreint og það skiptir e.t.v. ekki öllu máli, en virðist þó eftir öllum sólarmerkjum vera Kaupmannahöfn. Menn tala um að taka ferjuna og selja Svíum „dóp”. Kristjanía er sjálfsagt ekki langt undan. Söguþráður er einfaldur. Stúlka sem kallast „prinsessa” er á flækingi með börn sín tvö og tvo félaga, og þau setjast upp hjá öðrum ertir Magneu J. Mattliíasdóttur Magnea J. Matthlasdóttir. rænuleysingjum. Þar líða dagarnir við reykingar, ástaratlot og „dilingar”. Ráðvillt prinsessa Smátt og smátt heltast menn úr lest- inni, einn er handtekinn fyrir hass- smygl og aðrir kjósa að ganga borgara- legu lifi á hönd, fá sér atvinnu, eignast börn, buru og bíl. 1 lokin er prinsessan nær ein eftir, eins ráðvillt og hún var í upphafi og við skiljum við hana þar sem hún gerir sig líklega til að hefja „dílingar” sjálf. Samhliða þessu er rak- in sagan af „prinsinum” og ævintýrum hans, leit hans að konu sinni, börnum og hamingju, i hreinum fabúlu-stil. Nú er bókmenntalegt mat oft byggt á tvenns konar viðmiðun, annars vegar bókmenntalegri og hins vegar lifsreynslu. Nú þekki ég ekki þær að- stæður sem höfundur lýsir, en finnst frásögn hans af hvunndagslegu basli hassistanna hanga nokkuð vel saman sem sköpunarverk, ergó bókmenntir. Grafið undan raunsæi Þó finnst mér gæta tveggja höfuð- galla í verkinu. Er annar þeirra tækni- legs eðlis en hinn varöar afstöðu höf- undar til þess sem hún lýsir. Tækni- lega séð á ég erfitt með að skilja til- gang ævintýris prinsins inn á milli raunsærri kafla. Það hlýtur að grafa undan raunsæinu og virkar hreinlega ekki sem einhvers konar táknræn sam- svörun. Meðan prinsinn stefnir ótrauður að einhverju marki, situr prinsessan föst í vitahring allan tím- ann. Sömuleiðis finn ég afar lítiö sem tengir söguþræðina tvo frá kafla til kafla. 1 öðru lagi fórnar höfundur tals- vert miklu á altari þess „andrúms- lofts” eða „stemmningar” sem hann leitast við að lýsa, einkanlega allri per sónusköpun. Ekkert er látið uppi um uppruna fólks, aðdraganda þess lífs sem það nú lifir, tilfinningar og ástæð- ur þeirra. Það er þarna einfaldlega á flækingi eins og máðar dúkkulísur sem við höfum litla sem enga samúð með. Orsök og afleiðing Eðli þessa „súb-kúltúrs” og tengsl hans við islenskt þjóðlif verðskulda vissulega rækilegri umfjöliun. En það er einmitt í þeim tilfellum sem höfund- ur gerir sig liklegan til að kafa undir yfirborðið að tvíræðni eða óákveðni hans kemur í Ijós. í öðrum kafla lætur hann að þvi liggja að utangarðsfólkið sé að einhverju leyti afkvæmi „borgar- innar”: „Borgin er krabbamein á lík- ama landsins. Rotinn blettur, sem eitrar meir og meir út frá sér. Skrímsli sem gleypir í sig alla hreina bletti. Vanabindandi eitur.” (bls. 13). En þegar liður að lokum bókarinnar og sagan og ævintýrið renna saman, þá er sögupersónum gefinn kostur á því að velja á milli tveggja heima, heims vimugjafanna og hinnar eiginlegu ver- aldar, sem kemur varla heim og saman við fyrri tilraunir höfundar til orsaka- tengsla. í umræddum kafla má einnig skilja það á höfundi að hann leggi að jöfnu hassheiminn og allt það sem er utan þess hrings og eru ýmsir lausir endar á þeirri staðhæfingu. Þrátt fyrir þessar og aðrar brotalamir, er þó fengur í þessari bók sem heimild um ákveðinn hugsunarhátt. Athugasemd frá Vegagerð ríkisins: EINBYLISHUS OG VEGIR Vegna skrifa Hafsteins Sig- urðssonar, ísafirði, i Dagblaðinu 14. okt. sl. með yfirskriftinni „Vega- gerð ríkisins byggir einbýlishús í stað vega” vill Vegagerö rikisins taka það fram að sundurliðað er i þingsályktun um vegáætlun það fjármagn sem fara skal til vegagerðar annars vegar og byggingaframkvæmda hins vegar. Dylgjur þess efnis að Vegagerð ríkisins noti það fjármagn til hús- bygginga sem Alþingi hefur ákvarðað til vegagerðar, m.a. á Vestfjörðum, eru úr lausu lofti gripnar og þeim vísað á bug sem staðlausum. Væntum vér þess að ofangr. athugasemd fái inni í blaöi yðar sem fyrst. Virðingarfyllst, Gunnar Gunnarsson deildarstjórí

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.