Dagblaðið - 20.10.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978.
Brádabirgðalögin um skattahækkanir íframkvæmd f Reykjavík:
8520 EINSTAKLINGAR OG LIÐLEGA
2 ÞÚSUND FYRIRTÆKIFÁ BRÉF
— hæsti einstaklingurinn fékk yf ir sex milljóna viðböt
I viðbótarskattskrá Reykjavikur
vegna bráðabirgðalaganna kemur
fram að af þeim 8.520 einstaklingum
sem fá viðbótargjöld er 12 gert að
greiða meira en hálfa aðra milljón.
Alls nema umframgjöld á einstaklinga
tæpum639 millj.
Guðmundur Jörundsson, sem gerði
út togarann Narfa, fær mestu viðbót-
ina, tæpar 6,2 millj., þá Þorvaldur
Guðmundsson kaupmaður í Síld og
fisk, tæpar 5,3, Páll Guðmundsson
skipstjóri (Guðmundur RE), rúmar
3,2, Jón Franklín Franklínsson, sem
m.a. gerði út Austra og Suðra, liðlega
3, Helga Jónsdóttir, ekkja Sigurliða
Kristjánssonar i Silla og Valda, rúmar
2,8, Ingimundur Ingimundarson skip-
stjóri 2,6, Guðmundur Þengilsson
byggingameistari, sem var hæsti gjald-
andi í Reykjavík er síðasta skattskrá
kom út, rúmar 2,1, Pálmi Jónsson
kaupmaður í Hagkaupi 1,9, Valdimar
Þórðarson kaupmaður í Silla og Valda
tæpar 1,9, Sveinbjörn Sigurðsson
byggingameistari liðlega 1,7, Daníel
Þórarinsson kaupmaður i Vinnufata-
búðinni tæpar 1,6 og Gunnar Haf-
steinsson, sem gerði út togarann
Freyju, liðlega 1,5 milljón.
Þá var bætt á 2.050 félög í Reykja-
vík upp á samtals liðlega einn milljarð.
Átta félöggreiða yfir 10 milljónir í við-
bótarskatta.
Mest greiðir SlS, tæpar 65 milljónir,
þá Eimskip, tæpa 51 milljón, Olíu-
félagið hf. (Esso), tæpar 44, Skelj-
ungur, liðlega 32, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, tæpa 21, IBM; tæpar
17, Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan
Hafnarhvoli liölega 11 og Fálkinn hf.
rúma 10 og hálfa milljón.
Á öllu landinu fengu 22.911 ein-
staklingar viðbótarskatta og 4.048
félög. Af álögum einstaklinga vó
eignarskattsauki þyngst á metunum,
þá sérstakur skattur af atvinnurekstri
og loks tekjuskattur. Sérstakur skattur
af atvinnurekstri var hærri liðurinn
hjá fyrirtækjunum en hinn liðurinn er
éignarskattsauki.
-G.S.
Um sovézka
kvikmyndadaga
í tilefni af 60 ára afmæli októberbylt-
ingarinnar mun sovézka sendiráðið sýna
þrjár kvikmyndir I Laugarásbiói 1 dag og
næstu tvo daga. Byltingarafmælið er
jafnframt afmæli listrænnar kvikmynda-
gerðar þar 1 landi. Fræg er setning
Lenins gamla: „Kvikmyndalistin er
mikilvægust allra lista”. Og á fyrstu
árum eftir byltinguna litu dagsins ljós
mörg af helztu meistaraverkum kvik-
myndasögunnar. Má þar nefna Beiti-
skipið Potemkin, Alexander Nevsky og
Ivan grimma eftir Eisenstein, Móðurina
eftir Pudovkin, Vopnabúrið og Jörð eftir
Dovzhenko svo eitthvað sé nefnt.
Lítið sézt hér
Á síðustu árum höfum við lítið séð af
merkilegum myndum frá Sovét, að
myndum Andrei Tarkovskys og Larissu
Shepitko undanskildum, en þau tvö má
hiklaust telja með áhugaverðustu leik-
stjórum sem starfandi eru í dag. Þær
myndir sem hér verða sýndar voru
valdar með það i huga að sýna sem
flestar hliðar samtímakvikmyndagerðar
i Sovétríkjunum. Ein er gamanmynd,
önnur ballettmynd og sú þriðja raun-
sæismynd. Allar myndirnar eru með
enskum skýringartexta.
Eigin skoðanir
Leikstjóri er Yuli Karasik en hann
hefur m.a. gert mynd eftir leikriti Chek-
hovs, Mávinum. Með eitt af aðalhlut-
verkunum fer Lyudmilc Chursina sem
er gestur sovézku kvikmyndadaganna,
Myndin gerist í stórri verksmiðju. At-
vinnusálfræðingurinn Petrov og félags-
fræðingurinn Olga eru fengin á staðinn
til þess að rannsaka.tafir í framleiðslunni
og af hverju verkamenn ráða sig burt frá
verksmiðjunni. Þessi mynd er sögð gefa
góða mynd af lifnaðarháttum í Sovét i
dag. Myndin verður aðeins sýnd einu
sinni, í kvöld kl. 8.30.
Ivan grimmi
Höfundar þessarar ballettmyndar,
þeir Vadim Derbenev og Yuri Grigoro-
vich, hafa áður starfað saman með
góðum árangri, t.d. gerðu þeir ballett-
myndina Spartacus nýlega. Báðar þessar
DIMMER
minnkar eða eykur
lýsinguna, eftir því
hvað við á
RAR'ORUR Sl=
LAUGARNESVEG 52 -• SÍMI 86411
myndir eru gerðar af Bolshoj leikhúsinu
í Moskvu. Ballettinn er byggður á sögu
ívans grimma sem varð fyrstur til að
sameina Rússa í eitt ríki á 16. öld. Ball-
ettinn segir frá brúðarvali ívans og ill-
indum innan hirðarinnar sem því fylgja.
Helztu dansarar eru Jurí Vladimirov,
Natalia Bessmertnova og Boris Akimov.
Þessi mynd ætti að njóta sín vel á breið-
tjaldinu í Laugarásbiói. Myndin verður
sýnd kl. 5,7 og 9 á föstudag.
Ástarsaga af
skrifstofu
Leikstjóri þessarar gamanmyndar er
Eldar Ryazanov. Hann hefur nær ein-
göngu fengizt við gerð mynda af léttara
taginu. Myndir hans hafa þó oft haft al-
varlegan undirtón og vona ég að hér sé á
ferðinni nöpur satíra á skrifstofuveldið í
Sovét. Myndin gerist á einni af hinum ó-
teljandi skýrslugerðarskrifstofum
Moskvuborgar. Skrifstofustjórinn, sem
Friðrik Þ. Friðriksson
er kvenkyns, er í augum starfsmanna
hennar óaðlaðandi persóna sem gengst
upp í starfinu. Undirmaður hennar er
miðaldra metnaðarsneiddur skriffinnur.
Fyrir einhvern misskilning takast með
þeim ástir sem draga dilk á eftir sér.
Þessi mynd verður aðeins sýnd einu
sinni, þ.e. á laugardagskvöld kl. 21.
Atríði úr ballettinum Ivan grímmi.
.\V
\ \l
, lll
I I//
♦
LAUGARDAGS-
MARKAÐUR
/ /
L/ /,
(LL.
SIMCA:
1508 GT 1977
1100 GLS 1974
1100 GLS .... 1975
1100 GLS .... 1976
Rancho .... 1977
Toyota Landcr .... 1966
Torino station . .. .1971
VWPassat 1974
VW1200L 1976
Saab 99. ..
1972
Mazda 929 .................. 1977
Mazda 929 station..........1975
Mazda 929 station............1978
Bílarnir eru f
okkar bjarta og
glæsilega bílasal
PLYM0UTH:
Volaré Premier..........1977
Valiant.................1975
Duster..................1970
Chevrolet Concours......1977
Plymouth Volaró
Premier 77, 4dr
glœsilegur fólksbíll
I sórfíokki - látið
ekki happ úr hendi
sleppa.
Cortina...............1974
Oldsmobie.............1969
Staðgreiðslutilboð
óskast í góðan Int-
ernational Scout
jeppa órgerð 1974
— gott tækrfæri
fyrir fjáðan.
VILTU SEUA7VILTU SKIPTA? VILTU KAUPfl?
OPIÐ KL.10-17 Á MORGUN, LAUGARDAG
CHRYSLER
nnnn
bjuu
£
SUÐURLANDSBRAUT 10 - SÍMAR 83330 -83454